Sagnir - 01.06.1996, Side 39
Frímúrarinn
--- LsaSSsT
Ólafur dvaldi lengi á
Suöureyjum, vestur af
Skotlandi og fékk þar
inngöngu í Frímúrarahreyfing-
una áriö 18.. sem gerir hann
aö fyrsta íslenska
frímúraranum.
störfuðu íslenskar frímúrarastúkur innan
dönsku Frímúrarareglunnar en meðal
stofnenda Eddu voru þeir Ludvig
Kaaber, Sveinn Björnsson, Jón Aðils
sagnfræðingur og Knud Jacobsen kaup-
maður. Það var síðan árið 1951 sem
Frímúrarareglan á Islandi var stofnsett
og varð Sveinn, sem þá var orðinn fors-
eti Islands, fyrsti stórmeistari hennar.7
Nýjar heimildir um
eitraða Ólaf
Fyrir tveimur árum birtist í Sögnum grein
um Olaf nokkurn Loftsson.8 Ólafur
þessi var alræmdur svikahrappur og er
jafnan minnst sem leiðsögumanns skoska
barónsins Sir George Steuart Mackenzie
í Íslandsleiðangri hans sumarið 1810. I
greininni var rakið að ýmislegt annað
merkilegt hafa borið á daga Ólafs sem
var ákaflega kynsæll maður. Hann mun
til að mynda hafa átt sjö börn með sjö
konum svo vitað sé en reyndar er ekki
ljóst hvað um Ólaf varð eftir 1815.
Hann var þá einungis 32 ára gamall og
jafnvíst að hann hafi ratað í frekari
ævintýri úti í hinum stóra heimi.
Ferðalög Ólafs hófust haustið 1807
er hann hugðist sigla til Kaupmanna-
hafnar til að afla sér frekari læknis-
menntunar. Hann varð hins vegar
skipreka á Suðureyjum við Skotland og
vegna Napóleonstyrjaldanna voru skip-
brotsmenn meðhöndlaðir
sem stríðsfangar þar sem Danir og
Englendingar voru sitt hvoru megin
víglínunnar. Stríðsfangarnir voru sendir
áfram til Edinborgar allir nema Ólafur
sem ílentist í Stornoway á Lewis-eyju til
að ástunda Iækningar.
i greininni í Sögn-um var ályktað að
Ólafur hefði komist
til nokkurra metorða
á Stornoway þar sem
hann hefði verið
tekinn inn í
frímúrararegluna þar á
staðnum. Þær
upplýsingar hafði
höfundur komist yfír
með hjálp góðra
manna í Stornoway og
sýna heimildir ytra að
Ólafur gekk í
Frímúrarastúku
staðarins, Lodge Fortrose, hinn 29.
ágúst 1809 sem félagi númer 2I7.9 Var
greint frá þessum nýju upplýsingum í
greininni án þess að sérstakt mat væri
lagt á mikilvægi þeirra. Nokkru seinna
var höfundi hins vegar bent á að ef
Ólafur gekk raunverulega í Frímúrara-
regluna þetta haust þá gerði það hann
jafnframt að fyrsta íslenska frímúrara-
num.
Heimildin umrædda sýnir svo ekki
verður um villst að Ólafur gekk sannar-
lega í regluna fyrstur Íslendinga. Hér er
á ferðinni nýlegt félagatal frímúrara-
stúku einnar á Stornoway og er þar að
finna upplýsingar sem eru þess eðlis að
sennilegt verður að teljast að skrásetjari
frímúraratalsins hafi aflað sér upplýsinga
um Ólaf á íslandi þar sem færslan er
nánast samhljóða þeim upplýsingum sem
finna má um Ólaf í t.d. Íslenskum
æviskrám Páls Eggerts Ólafssonar.10
Færslan um Ólaf í Frímúraratalinu er
annars sem hér segir:
No. 217 - William Lopson, innvígð-
ur þann 29. ágúst 1809. Sjómaður
sem hafði verið um borð á skipi sem
var á leið frá Íslandi til Kaupmanna-
hafnar þegar það neyddist til að leita
skjóls í höfninni í Stornoway sökum
storms. Þar sem Danmörk og Bret-
land áttu um þær mundir í stríði var
farþegum og áhöfn haldið sem föng-
Ólafur þessi var alræmdur svikahrappur ...
Hann mun til að mynda hafa átt sjö börn
með sjö konum svo vitað sé en reyndar er
ekki Ijóst hvað um Ólaf varð eftir 1815.
Hann var þá einungis 32 ára gamall og
jafnvíst að hann hafi ratað í frekari
ævintýri úti í hinum stóra heimi.
39 -Sagnir 1996