Sagnir - 01.06.1996, Side 42

Sagnir - 01.06.1996, Side 42
Dagfinnur Sveinbjörnsson Marxismi og byltingarnar 1848 Að binda enda á söguna ... Árið 1921 hitti Steinn Elliði fyrir meinlætamann af skóla Benedikts frá Núrsíu. Hann lýsir því að það sem hann hafi orðið áskynja um múnkareglurnar hafi nægt honum til að sanna sér að hver regla um sig, og hvert klaustur væri ekki annað en dálítið sameignarríki. Og hann segir við meinlætamanninn: Gott og vel, herra minn, í þessum sameignarríkjum ykkar er náúnga- kærleikur kristindómsins og tíu boð- orð guðs framkvæmt á einfaldan hátt ... með einfaldri stjórnfræði, skipu- lagi grundvölluðu á mannviti. Og það er samskonar stjórnfræði, sams- konar skipulag grundvallað á sams- konar mannviti, sem felst í kenníngu Marx...1 Sameignarskipulag klaustra er samkvæmt þessu boðskapur marxismans. Að skipan þjóðmála skuli grundvallast á náunga- kærleik kristindómsins og tíu boðorðum guðs. Heilagir feður svífi yfir vötnum og aðgerðir breyskra manna taki á sig svipmót trúarinnar. Samfélag heilagra. Árið 1989 brutust ríki Mið- og Austur-Evrópu undan oki sovéskrar kúg- unar og tóku upp stjórnarhætti frjálsra lýðræðisríkja. Meðal þeirra sem fögnuðu var Francis Fukuyama, stjórnspekingur sem trúir því að framþróun mannkyns nái fullnustu í frelsi og lýðræði. Kok- hraustur lýsti hann því yfir, að breyt- ingaskeiðið væri runnið á enda, tog- streitu hugmyndastefna lokið og „enda- lok sögunnar" runnin upp.2 I ljósi þess- Blek Kommúnistaávarpsins var vart þornað þegar byltingar brutust út um alla Evrópu árið 1848. Pá hlaut kenning marx- ismans um stéttir og stéttabar- áttu eldskírn. Dagfinnur Svein- björnsson fæst við kenninguna og afdrif hennar. Hugað erað viðbrögðum kenningasmiðanna og orsökum þess að miðbik 19. aldar markaði ekki endalok sögunnar arar hástemmdu yfirlýsingar, er forvitni- legt að hugsa til þess að í kenningu Karls Marx felst fyrirheit um „endalok Karl Marx (1818-1883) Sagnir 1996 - 42 sögunnar“ í sama skilningi þ.e.a.s. þeim skilningi að marxisminn marki endalok í togstreitu hugmyndastefna, sé hin eina kenning, líkt og frelsi og lýðræði í hug- mvndum Fukuyama. Segjum að Steinn Elliði hafi nokkuð til síns máls. Hitt er skýrara að marx- isminn sé boðskapur um „endalok sög- unnar“ í skilningi Fukuyama. Af þessu tvennu leiðir að við „endalok sögunnar" rísi himnaríki á jörðu. Guðspjöll þess- arar trúar voru rituð um miðja 19. öld. Þau eru margslungin og tyrfin en hitt er athyglisverðara að rétt um það leyti sem ritun guðspjallanna stóð yfir þóttist guðspjallamaðurinn sjá teikn á lofti um þá byltingu sem hann boðaði. Blek Kommúnistaávarpsins var vart þornað þegar byltingar brutust út í febrúar 1848 en á því ári brutust út fleiri byltingar um Evrópu en nokkru sinni fyrr eða síðar. Sviðið spannaði Evrópu frá Kaupmanna- höfn til Palermo og frá París til Búda- pest. Hvarvetna voru reist vígi, barist var á götum, konungar flúðu lönd og ríkis- stjórnir féllu. Stuttu síðar, í júni, brut- ust út óeirðir „verkamanna" í París. Hvernig koma þessir atburðir heim og saman við guðspjöllin? Hér verður rýnt í boðskapinn og þá sérstaklega í kenningu Marx um stéttir og stéttabar- áttu. Þetta er gert með það fyrir augum að varpa ljósi á þá kenningu sem hlýtur eldskírn. Sjónum er beint að þcim af- drifum sem kenningin hlýtur í þjóð- félagshræringum ársins 1848, en þó fyrst og fremst að viðbrögðum Marx og Engels. Fjórir frumtextar eru lagðir til grundvallar. Eldri textarnir tveir sem eru

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.