Sagnir - 01.06.1996, Síða 48

Sagnir - 01.06.1996, Síða 48
.QASMNM.SyMPiO.RN5.SM innra. Júlí-lýðveldið var lýðveldi borg- arastéttarinnar, landeigendur voru ráð- andi og flestir þræðir lágu í höndum fjármagnseigenda sem sáu m.a. til þess að lagt var bann við verkföllum. Aðg- erðir Louis-Philippe og ráðherra hans benda fyrst og fremst til þess að hagur ofangreindra þjóðfélagshópa hafi setið í fyrirrúmi.33 Þegar pólitísk ólga varð tilfinnanleg braust út bylting í febrúar 1848. Á því ári brutust út fleiri byltingar víðsvegar um Evrópu en nokkru sinni fyrr eða síð- ar. Sviðið spannaði Evrópu frá Kaup- mannahöfn til Palermo og frá París til Búdapest. Hvarvetna voru reist vígi, bar- ist var á götum, konungar flúðu lönd og ríkisstjórnir féllu. Stuttu síðar, í júni, brutust út óeirðir „verkamanna" í París en þær voru barðar niður með harðri hendi. Þá var ljóst að sú eining sem menn trúðu að skapast hefði í febrúar, þvert á stéttaskipti, var endanlega úr sögunni. Þó var samin stjórnarskrá. I henni var almennur kosningaréttur stað- festur. Þeirri kenningu haldið á lofti að allt vald kæmi frá þjóðinni sem kaus bæði löggjafarþingið og forsetann, en kjörtímabil hans var fjögur ár og mátti ekki endurkjósa hann í næstu kosning- um. Það fór þó svo að nýkjörinn forseti, Lúðvík Napóleon Bonaparte (bróður- sonur keisarans mikla) leysti upp þjóð- þingið 2. desember 1851. Stjórnlaga- rofið hlaut samþykki eftir á í þjóðar- atkvæðagreiðslu og Bonaparte var kos- inn forseti til tíu ára. Eftir aðra þjóðaratkvæðagreiðslu var stofnað keisaradæmi og Bonaparte forseti varð Napóleon III keisari. Þróunin var mörg- um þungbær. Skáldið Victor Hugo fór í sjálfskipaða útlegð um árabil. Ymsum skýringum hefur verið hampað varðandi hin miklu bylt- ingaruppþot ársins 1848. Þjóðernishyggja nefnd, samsæri alþjóðlegra byltingar- samtaka og fleira.34 Þó virðist einsýnt að orsakirnar voru fyrst og fremst efnahagslegar. Byltingarnar voru hámarkið í röð kreppna - efnahagslegra, félagslegra og stjórnmálalegra - sem áttu sér stað síðla á 5. áratugi 19. aldar. Frumorsökin var léleg uppskera, og afleiðingarnar mögn- uðust vegna alþjóðlegrar fjármála- og iðnaðarkreppu. Víða blasti við víðtækt hungur, sjúkdómar, atvinnuleysi og gjaldþrot.35 Saga Frakklands um miðja 19. öld er prófsteinn marxískrar kenningar. Þá gerðist það sem Victor Hugo ræddi um í Vesalingunum, að úr djúpi dimmunnar, angistarinnar, eymdarinnar og heiftarinnar; gagnstætt öllum reglum um frelsi og jöfnuð og fóstbræðralag, reis götulýðurinn upp gegn þjóðinni. Stjórnmálaklúbbar mynduðust þar sem róttækar skoðanir blómstruðu. Vorið 1848 voru 250 klúbbar starfandi í París. Á slíku hafði ekki borið undir stjórn Bourbons árið 1830 og raunar þarf að leita allt aftur til byltingarinnar 1789 til þess að finna hliðstæður.36 Undir niðri ólgaði rík byltingarhefð. Frakkland var hin klassíska fyrirmynd. I ljósi aðstæðna er ekki að undra að oft er litið til byltinganna í Frakklandi 1848 sem sósíalískra byltinga þar sem baráttuglaðir öreigar börðust innblásnir af boðskap Kommúnistaávarpsins. Júní- óeirðirnar voru fyrstu átökin sem hægt var með ein- hverjum v hætti að kenna við markmið og vonir verkamanna og öreiga sem stéttar. Þá taldi Marx að við blasti, „... fyrsta stórorustan milli þeirra tveggja stétta, er þjóðfélag nútímans skiptist í ...*‘37 - borgara og öreiga. Kommúnistaávarpið hafði engin teljandi áhrif á þessa atburði og þótt margir byltingarmenn væru undir áhrifum sósíalískra hugmynda og stéttaandstæðurnar milli borgara og verkamanna hafi í sumum tilvikum komið glöggt fram þá átti þessi mikla byltingahrina ekki rætur í sósíalisma nema að takmörkuðu leyti.38 Baráttan ■----------beindist iðulega gegn einveldi og lénshátt- um og átti víða upptök í millistétt.39 Kjör verkamanna- stéttarinnar versnuðu ekki í tíð kapítal- ismans. Svo virðist sem lífskjör hafi al- mennt batnað, jafnvel þrátt fyrir að fólks- fjölgun væri talsverð. = Kapítalisminn var ðferðilega kaldranalegur en fylgdu efnislegar framfarir.40 e.t.v. honum Hinar sígildu andstæður milli kapítalista og iðnverkamanna féllu í skugga þess að allur fjöldi byltingarsinna var enn sem fyrr smáborgarar og öreigar sem lifðu í hugar- og tilfinningaheimi sem var fremur mótaður af hugmyndum jakobína um frelsi, jafnrétti og bræðralag en af hugmyndum marxismans um stétt gegn stétt. Hugmyndir Kommúnistaávarpsins biðu ósigur. Marx og Engels horfðu beiskir í augu við veruleikann. Marx ræðir um tímabilið 1848-51 sem lærdómstíð, „... sem að vísu átti að fara á undan febrúarbyltingunni, hefði hún átt að vera annað en yfirborðshreyfing."41 Spádóm- ur Kommúnistaávarpsins um að öreigum myndi safnast lið úr öllum stéttum rættist ekki. I júni kom það í ljós að öreigum safnaðist ekki lið úr öllum þjóðfél- agshópum heldur sameinuðust allar stéttir og allir flokkar stjórnfestu- flokkunum gegn öreigastéttinni, stj- órnleysisflokknum, sósíalismanum, kommúnismanum.42 Með öreigum Parísar stóðu engir nema þeir sjálf- ir.43 Nú er spurt. Afhjúpar þjóðfélags- þróun áranna 1848-1851 falsspádóm Kommúnistaávarpsins. Miða hugmyndir Sagnir 1996 - 48
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.