Sagnir - 01.06.1996, Qupperneq 51

Sagnir - 01.06.1996, Qupperneq 51
MABXÍSKJÁIS.Ý.N. gegn arðræningjum - jafnvel þótt venjur þeirra, hugarfar og markmið séu sundur- leit og spretti af mismunandi tengslum við framleiðsluöflin.57 Það er jafnvel enn athyglisverðara að undir eðlilegum kringumstæðum einkennast samskipti stétta fyrst og fremst af samvinnu og hver sú kenning sem gerir ráð fyrir hinu gagnstæða hlýtur að byggja á undan- tekningartilfellum.58 A það er hins vegar að líta að Marx átti engra kosta völ. Þjóðfélagsgreining hans gerir þá kröfu að samskipti stétta einkennist af fjand- skap. Ef fjandskapur ríkir ekki milli stétta þá er byltingin tæplega óum- flýjanleg og kerfið myndi lyppast niður. Stéttabaráttan er þungamiðja sögunnar og um hana liggur leiðin til sósíalískrar dögunar. I inngangi að „Stéttabaráttunni í Frakklandi 1848-1850“, sem ritaður er 1895, gerir Engels athyglisverða játn- ingu: „Við upphaf febrúarbyltingarinnar voru hugmyndir okkar allra um fors- endur og þróun byltingarhreyfinga mjög undir áhrifum undangenginnar sögulegr- ar reynslu og þá fyrst og fremst hinnar frönsku.1'59 I ljósi atburðanna 1848 voru Marx og Engels „... ekki í neinum efa um, að hin miklu úrslitaátök væru hafín, (og) að þeim mundi ljúka á samfelldu löngu og atburðaríku byltingarskeiði, sem þó gæti aðeins endað með lokasigri öreiganna."60 Þeir virðast fljótt átta sig á því að sigurbrautin var ekki samfelld; við lýstum því yfir þegar haustið 1850, að lokið væri a.m.k. fyrsta þætti byltingarskeiðsins, og einskis væri nú að vænta fyrr en næsta heimskreppa skylli á."61 Þetta er sá lærdómur sem Marx og Engels draga árið 1850-51. En þessi viðhorfsbreyting orsakar ekki breytingar á söguskoðun. I huga þeirra stóð söguleg efnishyggja óhögguð og kenningin um stéttir og séttabaráttu er óbreytt. Þeir hafa ekki misst trú á öreigabyltinguna, kjósa þvert á móti að líta á byltingar- ósigrana 1848 sem óhjákvæmilegan þátt í þróunarsögu byltingarinnar. Kenningar Marx og Engels standa höllum fæti gagnvart þjóðfélagsþróun og róstum miðrar 19. aldar. Þrátt fyrir að formleg stéttaskipting hafi verið óskýr um miðja 19. öld, þá voru lífskjörin aðskiljanleg og stjórnmálabaráttan dreg- m nýjum dráttum. Júníuppreisnin var ekki borgaraleg uppreisn í hefðbundnum skilningi undangenginnar reynslu. Hún var ólík öllu því sem á undan var gengið og það er einmitt þess vegna, sem skáld- inu Victor Hugo fallast hendur og lýsir því yfir að öll fyrri orð sín tapi gildi þegar komi til þessa stórkostlega upp- þots. Ásamt samtímamönnum stóð hann ráðþrota gagnvart því sem honum virtist, .. angist hínna vinnandi stétta sem óttuðust um rétt sinn." Af þessu má ráða að Hugo hafi öðrum þræði talið óeirðirnar spretta af sósíalískri rót. En um réttmætið er hann ósammála Marx; telur að nauðsynlegt hafi verið að bæla uppreisnina niður vegna þess að hún ógnaði lýðveldinu. Júníuppreisnin hafi Niðurstaða hans í hinum sagnfræðilegu textum er sú að byltingarósigrarnir hafi einungis verið endalok þeirra aukaatriða sem gengu á undan byltingunni og voru „... mótuð af þjóðfélagsaðstæðum, þar sem ekki höfðu enn þróazt skarpar stéttaandstæður..." því reynst; „Uppreisn alþýðunnar gegn sjálfri sér.“62 Framhald sögunnar ... Þess var áður getið að viðfangsefni marxismans væri að bylta hugarfarinu og skapa hugtakamynstur pólitískra og félagslegra breytinga, þannig að mann- kynssagan yrði leidd til lykta í öreiga- byltingu mannlegrar reisnar. Byltingar- róstur miðrar 19. aldar mörkuðu ekki upphafið að „endalokum sögunnar" að hætti Marx. En Marx lét ekki deigann síga og boðaði byltingu framtíðarinnar ótrauður. Hann sagði öreigabyltinguna óumflýjanlega. En hver voru markmiðin og hvers vegna gerðist það ekki að hin óumflýjanlega öreigabylting markaði „endalok sögunnar" í Frakklandi um miðbik 19. aldar? Kommúnistaávarpið er vissulega falsspádómur þegar kemur til bylting- anna 1848. Því var ekki spáð að þróunin yrði eins og raun ber vitni. Fjölda- hreyfingin stóð ekki djúpum rótum í marxískri kenningu. En hugmyndafræði- leg endurskoðun er takmörkuð. Hann færir ýmsar skýringar á þeirri þróun sem átti sér stað, en þær miða að því að fella atburðina að kenningakerfinu. Marx er samkvæmur hugmyndum Kommúnista- ávarpsins í „Átjánda Brumaire Lúðvíks Bonaparte" þegar hann greinir stétt smá- bænda og í „Stéttabaráttunni í Frakk- landi 1848-1850" heldur hann fast við þá hugmynd Kommúnistaávarpsins að öreig- unum muni safnast lið úr öðrum stéttum þjóðfélagsins. Rök Marx eru þau að júníósigurinn hafi verið forsenda þess að slík sameining gæti átt sér stað síðar. Og hann spáir fyrir um þá þróun. Marx felst einungis á að byltingin sé ótímabær. Hún komi ekki til mála við skilyrði hinnar almennu velmegunar er leiði af örri þróun framleiðsluafla hins borgara- lega þjóðfélags. Niðurstaða hans er því sú að byltingarósigrarnir hafi einungis verið endalok hinna forbyltingarlegu aukaatriða. Júníósigurinn væri framar öðru þáttur í sigur- göngu byltingarinnar. Þessi viðhorfsbreyting orsakar ekki breytta söguskoðun. Söguleg efnishyggja stendur óhögguð og kenningin um stéttir og stétta- baráttu er óbreytt. Þeir missa ekki trú á öreigabyltinguna, kjósa þvert á móti að líta á ósigrana sem óhjákvæmilegan þátt í þróunarsögu hennar. I ljósi þessa er sú spurning knýjandi sem aldrei fyrr; Hvers vegna náði kenn- ingin ekki fram að ganga? Hver voru markmiðin? Þar er skýringanna e.t.v. að leita. En ekki er á vísan að róa því að Marx gerði enga viðhlítandi grein fyrir boðskap sínum um ríki mannlegrar reisnar. Og hver er hin mannlega reisn? Felst marxísk hugsýn í því að á jörðu muni rísa samfélag heilagra? Marxisminn felur í sér náðarútvalningu. Öreigarnir eru hinir útvöldu. Himnaríki er dvalar- staður útvaldra. Andlegt sameignarríki. I Kommúnistaávarpinu ræðir Marx um sam- félag þar sem frjáls þróun hvers einstak- lings er skilyrði fyrir frjálsri þróuh heildarinnar. Þessi orð minna um margt á hina skáldlegu lýsingu Halldórs Laxness á jöklinum sem ber við loft og landinu sem hættir að vera jarðneskt. Jörðin fær hlutdeild í himninum, segir hann; „... þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðs- ynleg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu."65 Sýn marxismans, hið stéttlausa þjóðfélag, er skáldleg, gildum er bylt, þjóðfélagi umturnað. Andstæður hverfa rétt eins og sorg og gleði skáldskaparins. Jörðin fær hlutdeild í himninum. Feg- urðin mun ríkja. Fegurð himins. Ríki hinnar andlegu einingar hefur ekki enn litið dagsins ljós. Til of mikils er mælst af byltingarkenningu að hún lýsi og skýri flókinn þjóðfélagsveruleika með algildum hætti. Takmarkanir kenn- 51 -Sagnir 1996
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.