Sagnir - 01.06.1996, Page 58
S !6 R.ÚN. Sj S.URÐARDÓTI! B.
Á árunum 1856-1860 bjó Ólafur á stúdentagarðinum við Stóra Kanúkastræti. Ósjaldan sat hann í litlu
herbergi sínu á gangi 6, íslendingaganginum og skrifaði heim.
heimkomunnar; þótt mönnum máskje
kunni að þykja það undarlegt."16
I bréfasafninu er einnig að finna bréf
sem Steingrímur skrifaði frá Oðinsvéum.
Þar kveður við sama tón. Steingrími leið
illa í danska sumarhitanum, og lítið
skrifaði hann um gestgjafa sína þau
Önnu og Olaf. Fallegustu ummælin í
þessu bréfi fá börn Ölafs þau Hannes og
Sigríður. Steingrímur skrifaði:
Hannes er fremur lítill og spinkeel
en fjörkálfur mesti og einstaklega
góðlegur ... Sigga er þar á móti tölu-
vert stærri eptir aldri og yndislega
fallegt og gott barn; þau voru ósköp
spennt, uppá að sjá mig og vita ekki
hvað þau eiga að gjöra til þess að
skemmta mér; Sigga gengur í skóla
frá kl. 9-2 og þangað fylgi ég henni á
morgnana en Ólafur sækir hana
vanalega á daginn.17
Ekki verður annað séð en að Stein-
grímur hafi fengið hlýlegar móttökur í
Óðinsvéum og erfitt er að segja til um
hvað það er sem olli ólyndi hans og
heimþrá. Steingrímur var þegar hér er
komið sögu kominn í ágæta stöðu sem
kennari i trúarbragðafræði og söng við
Lærða skólann í Reykjavík.18 Hann var
ókvæntur og barnlaus og eftir heimildum
að dæma verður ekki séð að hann hafi
orðið fyrir neinu stóru áfalli sem gæti
hafa dregið úr honum. Samkvæmt bréf-
unum tveimur frá árinu 1879 hefur þó
orðið mikil persónuleikabreyting á
Steingrími. Sjálfstraustið og lífsgleðin
sem einkenndu hann hér áður fyrr fyrir-
finnast ekki i þessum bréfum.19
Eins og áður sagði var Steingrímur i
hlutverki stjórnandans á námsárum sín-
um í Höfn og á ég þá ekki einungis við
að hann hafi stjórnað félögum sínum i
Höfn heldur stjórnaði hann einnig for-
eldrum sinum upp að ákveðnu marki.
Sagnfræðingar eru flestir sammála um að
á nitjándu öld hafi vald fjölskyldu-
föðursins á heimilin fyrst og fremst
skapast vegna fjárhagslegrar stöðu hans
sem fyrirvinnu heimilisins.20 Hannes
Johnsen stjórnaði lífi og lífsstíl Ölafs
sonar sins að miklu leyti (og var þannig
nálægur í uppeldi hans á Hafnarárunum)
með þvi að skammta honum pening á
námsárunum. Hannes reyndi einnig að
stjórna lífi og eyðslu Steingrims en
óhætt er að segja að vopnin hafi snúist í
höndunum á honum. Steingrimur eyddi
langt um efni fram. Hann sendi föður
sinum skýrslu um eyðsluna, útskýrði
hversu „nauðsynlegt" það væri fyrir
hann að fá hærri fjárupphæð til úthlut-
unar og þar fram eftir götunum. „Fáein
ord þarf eg ad tala vid þig fadir minn
um mínar peningasakir ,..“21 skrifaði
Steingrimur i mars 1869 en setningar á
borð við þessa er að finna í nánast
hverju einasta bréfi sem hann skrifaði
föður sinum. Sem dæmi um eyðslu
Steingrims má nefna að fyrsta mánuðinn
sem hann var i Höfn, haustið 1866,
eyddi hann u.þ.b. 100 ríkisdölum sem er
töluvert meira en ferðin með
gufuskipinu frá Reykjavik til Kaup-
mannahafnar kostaði á sama tíma.22
Veturinn I870-I87I eyddi Stein-
grímur að meðaltali 40-60 ríkisdölum á
mánuði en var þó alltaf að reyna að
spara eftir því sem hann sagði sjálfur.28
Sumarið 1869 skrifaði hann til að
mynda „...hvad mikid sem madur reynir
að spara, svo brúkar madur þó mikid, ef
madur ekki alveg ætlar, að loka sig inni;
eg vona ad þú sjáir, ad eg get ekki haft
þad öðruvisi..."24
Af bréfum Steingríms að dæma er
ekki annað að sjá en að föður hans hafi
þótt meira en nóg um eyðsluna og reynt
að fá hann til að draga úr tóbaksnotkun
og öðrum munaði.25 Ólafur hafði að
sama skapi áhyggur af útgöldum föður
síns vegna Steingrims2® en sjálfur sagði
Sagnir 1996 - 58