Sagnir - 01.06.1996, Side 81

Sagnir - 01.06.1996, Side 81
.. S AG NIR,. .5A6 A N. .QG. §.Q6 U N E M A R. og Gunnar Karlsson prófessor. Þær byggja á sagnfræðilegum rannsóknum og voru upphaflega unnar í námskeiði Gunnars sem bar heitið „Sagnfræði, sannleikur og skáldskapur." Þessar sögur eru til marks um að kennarar og nemar í sagnfræði við Háskóla Islands hafa áhuga á því að prófa sig áfram, feta ótroðnar slóðir og reyna eitthvað nýtt. Eg hafði mjög gaman að lestri allra sagnanna og gladdist mjög yfir þessum gróskuvotti í sagnfræði- deildinni. Saga Erlu Huldar Halldórsdóttur, „Dauðasök liggur við“, er listilega vel skrifuð og afar áhrifarík. „Dagbókarbrot" Viggós As- geirssonar eru líka sérlega vel heppnuð. Sögur af þessu tagi geta hentað mjög vel í notkun við sögukennslu og svo mikið veit ég að a.m.k. ein smásagnanna í Sögnum verður notuð í ónefndum framhaldsskóla í Reykjavík næsta haust, þ.e.a.s. ef til- skilið leyfi fæst! Ekki er víst að margir sagnfræðingar muni taka sér skáldaleyfi á þennan hátt í sagnaritun sinni. Til þess þarf mikið hugrekki og skáldlegt innsæi sem ekki er öllum gefið en þess má geta hér að virtir sagnfræðingar hafa gert svona nokkuð. Ég man i svipinn eftir hinum þekkta þýska sagnfræðingi Golo Mann sem það gerði í „Wallenstein", ævisögu eins aðalvígamannsins í þrjátíu ára stríðinu, en sú bók kom út fyrir nokkum áratugum. Þar er kafli sem „Nachtphantasien (hugarórar að næturþeli) þar sem sagnaritarinn skyggnist inn í huga söguhetjunnar. Gleymum því ekki að þótt sagnfræði sé ekki skáldskapur þá eru sögurit auðvitað bókmenntir. A.m.k. tveir sagnfræðingar hafa hlotið bókmenntaverðlaun Nóbels og áðurnefndur Golo Mann fékk æðstu bókmenntaverðlaun í Þýskalandi. Slíkt gæti varla gerst nú og á Islandi er helstu bókmenntaverðlaununum tvískipt, ann- ars vegar eru skáldrit, hins vegar fræði- rit. Sú staðreynd segir meira en mörg orð um það efni sem hér hefur verið rætt. Áður en skilið er við þemaumfjöllun Sagna langar mig að varpa fram þeirri spurningu til þeirra sem að útgáfunni standa hvers vegna ekki er leitað til sögunema. Það er að vísu skiljanlegt og í sumum tilvikum æskilegt að leitað sé til stöndugra sagnfræðinga og þekktra manna utan greinarinnar en Sagnir eru nú einu sinni rit sögunema og að mínu mati því eðlilegt að rödd þeirra heyrist þegar rætt er um álitamál. Sagnir 1994 (15. árgangur) Veigamestu greinar þessa árgangs fjalla báðar um samskipti Islendinga við út- lendinga. Onnur þeirra er eftir Einar Hreinsson og heitir „Frakkar á Fróni. Samskipti Frakka og Islendinga 1600 - 1800“, hin er skrifuð af Sverri Jakobs- syni og ber nafnið ,,“Þá þrengir oss vor áliggjandi nauðsyn annara meðala að leita". Siglingar Englendinga til Islands á 17. öld.“ Þær eru skýr vitnisburður um það að tengsl Islendinga við umheiminn voru miklu meiri heldur en margur hyggur. Landsmenn voru ekki einangr- aðir enda segir Sverrir að hér hafi verið „allt morandi í útlendingum á þessum árum“ en þar á hann við 2. áratug 17. aldar. Grein hans er löng, kannski full- löng og varla neinn skemmtilestur fyrir venjulegan lesanda. Hún er hins vegar afar vönduð og höfundur styður mál sitt með ótal dæmum úr annálum og öðrum heimildum. Númer- aðar tilvísanir eru 157 og ekki kæmi mér á óvart ef það reyndist vera Sagnamet! Af þeim greinum sem eru í Sögnum þetta árið hygg ég að þetta sé sú sem hefur mest fræðilegt gildi. Frakkar voru fjölmennir hér við land á 19. öld og fram á þá 20. enda hefur margt verið um það ritað eins og Einar Hreinsson bendir réttilega á. Hann sýnir hér hins vegar fram á að á 17. og 18. öld voru samskipti þjóðanna „töluverð" og „að Frakkar virðast hafa sótt hingað til lands á nær hverju ári þessar tvær aldir.“ Hér er enn- fremur greint frá tveimur stórmerkilegum frönskum Ieiðöngrum til landsins á síðari hluta 18. aldar sem fáir hafa hingað til vitað nokkuð um. Þörf væri á því að gera þeim nánari skil. Tvær greinar tengjast þema þessa árgangs um fullveldi Islands. Margrét Gunnars- dóttir skrifar um skaut- búning Sigurðar Guðmunds- sonar málara en þar höfum við gott dæmi um það hve myndir geta bætt miklu við efnið. Niðurstaða Margrétar er að að „frá sjónarhóli hins rómantíska þjóð- frelsismanns hlytur markmiðinu með gerð hátíðarbúnings að vera náð.“ Þetta má draga í efa því telja má víst að Sigurði málara hafi dreymt um almennari notkun skautbúningsins en raun varð á. Eiríkur P. Jörundsson, sem jafnframt er ritstjóri Sagna 1994, ritar langa og metnaðarfulla grein um Jón Aðils. Hér er á ferð heilmikil greining á hug- myndum Jóns jafnframt því sem höf- undur leggur sig fram um að lýsa megin- einkennum rómantísku stefnunnar. Giiðmiindur Hólfdanarson Ferð til fullveldis LfðirlJóhilMti í Krykui-ik IK.júni 1944 S ÓLifiir var ckki rinn uiu |>ovat ulfmn- þnrra auguin var l> ðwldið alk rkki n>- Iivarpi mn Olal'ur Tlion flutn frá mpr. því að f>nr kytidóðinrit ton »Jrit uofnun: „Vrr lióiutn rtKÍurrritt lýðvcld- tropiniiii ujónurriíWiúttim I umbandinu viA Díiii var hið yálfumVi ið i Undi vocu". u^>i Euur OlKríruon á Kr> k>ivíL 18. júiii 1944. i §öl- lýðvddi rkki fynt o* frrma Mjúnurt'onn útifundinum við ujónurráðið. og ÓLifur nirtiiiuin útiftindi í tilrfni itofnuiur lýð- hrklur hrimðí. [ur icm þjóðin pi< lokt- Thori var hjarunirp uiiiináLi fornunni vrhiivnn. likti luiin vipi þjwVinntur við im fundið fh»>mn i ngíri húuixði - nú Sóiúlituflokkum i rxvVi únni.' I*jð var frrðala^ „ídriidinpir. \vr rrum koinntr var þjo*'in _lok« konun hriin nici' jIU |>W t.'hlcgt að þjót'm lcitaði táknrxm hriin. Vrr rrum frjáh þ>óð“. up'i luim utt. fullvalda oj? óháð". cim oj* Gnli uppnma Kðvvkliúm á hngvóllum þar londuin viiium.1 I augum lum var hu> Svvimaon alþmpvforvrti or.Vu'i það á vrm hið fonu þjiíðvrldi og hið nýja nývtofnaða lýðvrkli fyrirhcttna landið hmgv'ivllum vu> vtotiiun l>ðvrkiivinv.í í»- ntnnu i ritt í npiinpinm. vnn þjóðm hafði vtrfnt að i nxr 7UI ára lcndmgar lújfðu hyggt þctta liriitiili áður. Orð Mjóminálanunnaniu birta mjög cyðitnerLurjtúngu undir crlcndn vtjóm. töklu ujómmiLmtmninur. af þvrl að i ákvrðin viðhotf til uofhunar idmvka 50 SAGNIR Þaö gustaöi af Guðmundi þegar hann fyrst viöraöi skoðanir sínar um ber heítið frjálshyggju og sjálfstæöisbaráttu 19. aldar og skrif hans eru tvímælalaust “ ferskasta framlag til sögu sjálfstæöisbaráttunnar í seinni tíð. 81 -Sagnir 1996

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.