Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 108
SVARTIDAUÐI Á ÍSLANDI - Plágurnar 1402 og 1495
Helgi Skúli Kjartansson
Samanburður á svartadauða
og stórubólu
Ég vil þakka ykkur, kæru sagnfræðinem-
ar, fyrir að gefa mér tækifæri til að taka
þátt í þessunr umræðum - urn efni sem
mér er jafnan hugleikið, auk þess sem
mér er sómi að vera leiddur fram i félags-
skap þeirra ágætu fræðimanna sem hér
hafa talað á undan mér.
„Ef við berum saman bein-
ar lýsingar á stórubólu og á
plágunum, þá kemur í Ijós
að eðli þeirra virðist mjög
ólíkt, en það eru afleiðing-
arnar sem freistandi er að
bera saman."
Ég kann ykkur einnig þökk fyrir að
hafa falið mér umræðuefni sem er bæri-
lega afmarkað fyrir stutta tölu, og þó
spennandi í sjálfu sér: Samanburð á plág-
um 15. aldar við stórubólu, þá einu stór-
kostlegu drepsótt sem gengið hefur yfir
Island í nokkurn veginn fullu ljósi sögu-
legra heimilda.
Um manndauða í stórubólu eru beinar
heimildir, einkum í annálum, sem Jón
2
Steffensen hefur unnið úr til nokkurrar
hlítar. Allsherjarmanntal 4-5 árum fyrir
bóluna og manntal í þremur sýslum rösk-
um 20 árum eftir hana hjálpa til við að
setja hana í fólksfjöldasögulegt samhengi
— þau hafa bæði verið gefin út í heild og
unnið úr þeim tölfræðilega í hagskýrsl-
um. Þá er Jarðabók Arna og Páls samin á
árunum kringum bólu og geymir miklar
beinar upplýsingar urn afleiðingar hennar
á byggð, auk þess sem bera má saman
upplýsingar hennar sem teknar eru fyrir
og eftir bólu. Hér við bætist litilræði af
varðveittum prestsþjónustubókum og
sóknarmannatölum, og svo ýmiss konar
heimildir um byggðar jarðir og ábúendur.
Ur öllu þessu hefur verið unnið að
nokkru marki, og þó engan veginn allt
sem nota mætti til skilningsauka á farsótt-
arsögunni.
Nóg vitum við þó til þess að freisting-
in er löngu orðin ómótstæðileg að nota
stórubólu sem eins konar Hkan að stóifclldri
drepsótt sem síðan megi beita til að glögg-
va skilning sinn á öðrum skæðurn sóttarf-
aröldrum, og þá einkum plágunum
tveimur á 15. öld.
Ef við berum saman beinar lýsingar á
stórubólu og á plágunum, þá kemur í ljós
að eðli þeirra virðist mjög ólíkt, en það
eru afleiðingarnar sem freistandi er að
bera saman.
Annars vegar afleiðingar sem við höf-
lcf&vftf vcifllr ftí -Vivv á£nv4
trvc vfHUto aú íttv?T»
í CffYA WWS X ílUÍl
Skorið í kýli á pcstarsjúklingi. Ólíklegt er að amiálaritarar hafi getað ruglast á kýlapest og bólusótt.
106 SAGNIR