Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 95

Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 95
traustustu heimildirnar um svartadauða hér á landi. r Utbreiðsla og mannfall Plágan kom með Einari Herjólfssyni í Hvalfjörð sumarið 1402 og fór víða um land. Nýi annáll nefnir árið 1403 „mann- dauðaár hið mikla“ og 1404 „mann- dauðavetur hinn síðari" en samkvæmt fornbréfum er talað um „pláguveturinn", þ.e. 1402—1403 og „manndauðahaustið seinnara“, þ.e. haustið 1403. Ólíklegt er að plágan hafi þolað tvo vetur og senni- legast hefur hún fjarað út einhvern tím- ann um veturinn 1403-1404 og þá lík- lega frekar fýrr en síðar. Hversu marga lagði plágan að velli? Um það hafa verið skiptar skoðanir en lengi vel trúðu menn annálum sem sögðu að einungis þriðjungur hefði lifað af sótt- ina í Noregi 1349—1350 og svipað hefði gerst hérlendis. A síðari árum hafa fræði- menn áætlað mannfallið um þriðjung. Gunnar Karlsson og Helgi Skúli Kjart- ansson áætla að „yfir helmingur lands- manna (50—70%; nákvæmari tala sam- ræmist varla eðli útreikinganna)“ hafi lát- ist og bæta við að niðurstaða þeirra sé „ekki ótraustari en þær áætlanir sem fræðimenn hafa hingað til látið sér nægja. Þetta eru orð að sönnu en sanna hvorki tölur þeirra né annarra. Er yfirleitt hægt að reikna út eða áætla af einhveiju viti út frá fyrirliggjandi heimildum hve margir féllu í plágunni hér á landi í upp- hafi 15. aldar? Svarið er nei, það er ekki hægt. Mín niðurstaða er að miða við meðaltal frá Evrópu á bilinu 25—45% vegna þess að ég tel að útbreiðsla og ein- kenni sóttarinnar hafi verið sambærileg. Tölur um fjölda kennimanna og þjónustufólks sem létust eru mjög háar samkvæmt útreikn- ingum Gunnars Karlssonar og Helga Skúla Kjartanssonar eða frá 54-98%. Samkvæmt annála- greinum var talið að um 83% presta í Skálholtsbiskupsdæmi og 95% presta í Hólabiskupsdæmi hafi látist í plágunni en ems ég hef bent á eru þær gagnslaus heimild. Þess vegna hafa þeir ekki viljað uota þær til að álykta almennt um mann- fall út frá þeim. Þeir benda á að prestar seu vegna starfa sinna í meiri hættu á að smitast og dánarhlutfallið á þessum stöð- um geti þess vegna einungis verið dæmi- gert fýrir þau heimili þar sem plágan kom en einhverjar sveitir eða bæir hafi sloppið við pláguna. Þessi skýring, þótt góð sé, getur ekki orðið grundvöllur undir út- reikninga um mannfall á landinu. Rétt er að hafa í huga að víða erlendis lagði yfir- stéttin á flótta undan pestinni og einangr- aði sig og ef til vill ættu tölur um mann- fall í yfirstétt, þ.m.t. presta, að vera lægri en hjá almenningi. Hvert hefði hlutfallið þá orðið á Islandi? I Englandi eru til mjög góðar og áreiðanlegar heimildir um dauða kennimanna í einstökum biskups- dæmum en hvergi var dánarhlutfallið meira en 50% og ljóst er að ekki er hægt að alhæfa um mannfall almennt út frá þeim tölum einum. Af Nýja annál verður ekki ráðið með vissu hve margir hafa dáið af lærðum inönnum jafnvel þótt hægt væri að áætla fjölda þeirra fýrir pláguna með nokkurri vissu. Til þess eru ffásagnirnar grunsamlega staðlaðar, þar sem tölurnar þrír og sex leika aðalhlutverkin, og óljósar, t.d. varðandi Þykkvabæ árið 1403. í Nýja annál eru nafngreindir tólf einstaklingar, sjö lærðir og fimm leik- ir, sem létust, þrír 1402 og níu 1403. Staðinn í Skálholti aleyddi 1402 og 1404, raunar þrisvar það ár en ekkert slíkt gerðist 1403. Sagt er að sex bræður í Þykkvabæ og sjö systur í Kirkjubæ hafi látist auk þess sem báða staðina eyddi þrisvar árið 1403. í ann- álnum er getið dauða fjögurra veraldlegra höfðingja, auk konu eins þeirra, og ekki hefúr nokkrum manni dottið í hug að áætla mannfall út frá þeim fjölda. Athyglivert er að sökudólgurinn, Einar Heijólfsson, virðist ekki hafa látist úr sóttinni. Skálholtsbiskup kom út samsumars sóttinni og ekki sýktist hann og ekki heldurVigfús ívarsson hirð- sq'óri eða Arni Ólafsson síðar biskup.'8 Það virðist koma fram í heimildum að mannfall hafi verið meira meðal þjón- ustufólks en meðal hinna lærðu manna. Einu tölurnar sem talið er hugsanlegt að gætu átt við dauðsfoll meðal almennings eru frá Kirkjubæ samkvæmt Nýja annál en þar segir að komið hafi verið með 675 lik til greftrunar (795 lík ef gert er ráð fýrir stórum hundruðum) en þá hafi menn hætt að telja en margir hafi dáið eftir það. Þessar tölur hafa hins vegar ekk- ert með mannfall í plágunni að gera og hafa því ekkert gildi fýrir þessa útreikn- inga. I Kirkjubæ hefur sennilega verið til skrá yfir greftranir, skrá yfir látna eða ár- tíðaskrá eins og við flestar kirkjur og klaustur víða erlendis. Telja má líklegt að slíkar skrár hafi verið til hérlendis, a.m.k. á stærri stöðum. Klaustrið í Kirkjubæ var stofnað árið 1186 og þessar greftranir hafa átt sér stað einhvern tímann á þeim tíma (1186 til 1402 = 216 ár = 3,7 greftranir á ári). Annaðhvort hefur bókin verið upp- skrifuð eða hætt hefur verið að skrifa í hana, kannski vegna þess að fjöldi manns dó á stuttum tíma. Skráin eða heimild um hana hefur verið skrásetjara annálsins til- tæk á sínum tírna. Engar sambærilegar upplýsingar eru frá Skálholti, Hólum eða öðrum stöðum og annállinn segir ekkert um svartadauða í Hólabiskupsdæmi.Til dæmis greinir hann ekki frá heitgöngum, föstum og gjöfum til Guðmundarskrínis á Hólum sem Gottskálksannáll segir frá eða hinum mikla prestadauða sem fornbréfin vitna 20 um. Plágan virðist hafa gengið harðar á þéttbýlli svæðum og mannmörgum stöð- um en i dreifbýli og tölur um mannfall frá einu svæði til annars eru svo breytileg- ar að vafasamar upplýsingar um fjölda lát- „Telja má fullvíst að mann- fallið hafi ekki verið meira en 45% enda eru engin dæmi um slíkt nema þar sem algjört hrun samfélagsins fylgdi í kjölfarið. Það gerðist ekki á ís- landi en plágan olli uppstokk- un í valdakerfi og atvinnulífi." SAGNIR 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.