Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 114

Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 114
SVARTIDAUÐI Á ÍSLANDI - Plágurnar 1402 og 1495 stinga." Benedictow réðst harkalega að Jóni Steffenesen fyrir að þýða þetta orð „stingi" senr brjóstverkur. Eg skoðaði ná- kvæmlega fmnanleg dænri um orðið stingi og þar kemur í ljós að hægt er að ákveða hverslags verkur stingi er, það er að segja verkur í brjóstholi. Þetta er miklu betri heimild um sjúkdómseinkenni sóttarinnar en er til um pláguna á Islandi. Haraldur Briem: Þetta er örugglega rétt að menn hafi fengið lungnabólgu sem er mjög algengur fylgikvilli hvort heldur kýlapestar eða hreinnar blóðsýklunar án kýlasóttar. Það er hins vegar ekki forsenda fyrir því að sjúkdómurinn breiðist út að mínu viti. Þegar menn fá sína lungnasýk- ingu þá fá þeir sting fyrir bijóstið, þeir fá brjósthimnubólgu, blóðspýju og deyja yfirleitt innan sólarhrings. En það segir ekkert til um það hvort farsóttin breiðist út sem lungnapest. Hclgi Sktili Kjartansson: Lungnapestar- kenningjóns StefFensens gerir ráð fyrir smitferju.Jón gengur út frá því alla tíð að það þurfi smitferju og hans hugmynd er að smitið varðveitist í fótunr eða tuskum. Hann var ekki óvitandi unr þennan ann- rnarka. Haraldur Briem: En í fötunum var flóin. Eg satt að segja á erfitt með að ímynda mér að bakterían liggi bara í fötum og geti þá þyrlast upp með þeim hætti að hún valdi lungnasótt. Það er fýrir mér afar óskiljanlegt. Jón Olafur ísberg: Rétt er að taka fram hvernig þessi lungnapestarkenning er til- komin.Jón Steffensen gekk út frá því sem vísu að hér hafi ekki verið rottur. Hann leitaði að skýringu: Hvernig getur þetta gengið án þess að hafa rottur? Hann hafði lesið bók eftir Pollitzer og Meier sem hann átti og eina eintak hennar er geymt í safni hans. I henni voru fræðimenn að rannsaka útbreiðslu plágunnar í Suður- Egyptalandi. Þar kom upp lungnapestar- tilfelli sem dó mjög fljótt út. Þeir veltu vöngum yfir þessu og giskuðu á að lungnapestin gengi ekki í heitu og þurru loftslagi. Þetta er nákvæmlega það sem Gísli nefndi, einhver raunvísindamaður kemur með tillögu og það verður að staðreynd hjá öðrum fræðimanni. Jón Steffensen tók þetta sem staðreynd: Hún þrífst ekki í heitu og þurru loftslagi, hún þrífst vel í köldu og röku loftslagi. Þannig er kenningin tilkomin og hægt er að rekja þetta í skrif- um hjá Jóni og af miðum hans í um- ræddri bók. En eins og Gísli sagði þá er kenningin komin út í hafsauga og til- gangslaust að vera að eltast við rottur lengur. Beina frekar sjónunum að ein- hverju öðru. Haraldur Briem: Eg get nú ekki alveg skilið þessa umræðu með rottuna. Kvikind- ið hefúr ábyggilega verið alls staðar þó hún sé ekki í bókinni góðu hans Gunnars. Hún hlýtur að hafa verið til út um allt og hlýtur að hafa komið til Islands með skipaferðum þó hún hafi ekki náð sér hér á strik. Jón Olafur Isberg: Jón Steffensen gerði ráð fyrir því að hún hefði komið en hafi dáið strax. Karl Skírnisson: Eg vildi gjarnan taka þátt í að kveða þessa rottuumræðu end- anlega niður. Eg vil leggja á það áherslu að ef við gefum okkur að rottur hafi ver- ið hér á miðöldum og fram undir 1750, þá hefðu bein af þeim fundist í öllum þeim öskuhaugum sem fornleifafræðing- ar hafa verið að grafa í. Þær hafa ekki fundist og það er í mínum huga sönnun fyrir því að þær hafa verið mjög sjaldgæf- ar þó ég taki undir það sem Haraldur sagði að þær gætu hafa komið af og til með skipaferðum. En af líffræðilegum or- sökum hafi þær ekki getað lifað í landinu. Gunnar Karlsson: Eg held að við séum sammála því að kominn sé tími til að ræða um eitthvað annað en rottuna og því var ég í mínu erindi að reyna að færa þetta yfir á rannsóknarfræðilegt og rann- sóknarsögulegt plan. Ef maður segir að lungnapest geti ekki borist svona um landið, þá er þeim mun ósennilegra að sótt geti borist um landið með skepnu sem ferðast ekki yfir ársprænu af sjálfsdáð- um. Hér voru ekki brýr yfir ár. Hér var ekkert farartæki á hjólum. Það er ekki hægt að ferðast með betra farartæki en hrossi. En plágan berst mjög hratt. Maður þarf að vísu að taka mark á Vatns- fjarðarannál, sem Jón Olafur var að hafna hér áðan, til að fá vitneskju um hvenær pláguna bar að landi. En við vitum að hún er komin norður í Eyjafjörð í janúar. Það ferli gengur ekki upp ef við hugsum okkur að hún berist með því að mynda farsótt í rottum. Því næst drepist rott- urnar á hverjum stað og flærnar fara á menn og rnenn- irnir flytja flærnar í næstu sveit. Haraldur Briem: Hvað gera menn með varning þegar skip koma að landi? Er honum ekki dreift um landið? Jafnvel þó ekki séu til hjól á Islandi fýrr en á 19. öld þá var hægt að skipa þessu í koff- ortum sem flærnar leyndust í og eins og Karl nefndi getur mannafló lifað býsna lengi með pestarsýklinum í sér. Eg hef Plágati hetjar á bókagerðarmctm. „Ég satt að segja á erfitt með að ímynda mér að bakterían liggi bara í fötum og geti þá þyrlast upp með þeim hætti að hún valdi lungnasótt. Það er fyrir mér afar óskiljanlegt." Haraldur Briem 112 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.