Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 77
Karl Skírnisson
Rottur og flær
Smitberar pestarinnar
Hvað er pest?
Svartidauði eða pestin er sjúkdómur sem
bakterían Yersinia pestis veldur í mönnum
og fjölmörgum öðrum tegundum spen-
dýra. Pestarbakterían lifir einnig og fjölg-
ar sér í ýmsum skordýrum, meðal annars í
flóm (Siphonaptera). Erfitt er að útrýma
bakteríunni þar sem hún hefur náð fót-
festu því að ákveðin spendýr og skordýr
hfa með hana langtímum saman og við-
halda þannig pestarsmiti úti í náttúrunni.1
Auðvelt er þó að drepa pestarbakteríuna
með sýklalyfjum og vinna þannig bug á
faröldrum í mönnum sem enn þann dag í
dag koma reglulega upp á ákveðnum
svæðum í Asíu, Afríku og Norður- og
Suður-Ameríku en þar hefur pestin verið
landlæg síðan í síðasta alheimsfaraldri
svartadauðans sem gekk um heiminn um
síðustu aldamót (mynd 1).
Árið 1990 greindust 1250 tilfelli af
svartadauða í mönnum í heiminum og
létust 11% sjúklinganna. Um þriðjungur
tilfellanna var í Víetnam en pestarinnar
varð þetta árið vart í alls 12 þjóðlöndum.2
Smitleiðir og sjúkdómsform
svartadauða
Þar sem pestarbakterían getur lifað í fjöl-
mörgum tegundum spendýra og skordýra
getur smit í menn borist
eftir mörgum leiðum.
Iðulega hefur þó tekist
að rekja upphaf faraldra í
mönnum til nagdýra og
nagdýraflóa sem halda til
t nágrenni við mannabú-
staði. Helstu þekktu
smitleiðir pestarsýkilsins,
frá dýrum í menn annars
vegar og milli manna
hins vegar, eru sýndar á
mynd 2.
Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin greinir á milli þriggja sjúk-
dómsmynda pestar eða svartadauða í
mönnum: Kýlapestar (bubonic), blóðsýk-
mgar (septicemic) og lungnapestar
(pneumonic).3
Faraldrar í mönnum byrja yfirleitt alltaf
sem kýlapest þótt aðrir möguleikar séu
einnig hugsanlegir (2. mynd). Kýlapest
kemur fram þegar pestarbakteríur berast
inn í líkamann í gegnum hörund. Slíkt
gerist til dæmis þegar pestarsnrituð fló
stingur bakteríumenguðum sograna sínum
í gegnum húðina eða þegar bakteríur úr
saur flóarinnar, eða jafnvel úr einhverju
öðru smituðu skordýri, berast inn í lík-
amann í gegnum opin sár. Pestarbakterí-
urnar berast síðan úr sárinu inn í sogæða-
kerfi líkamans
og áfram til
eitla þar sem
þær fjölga sér
og mynda
graftarkýli. Ber
kýlapestin nafn
sitt af þessum
eitlaígerðum.
Oft eru kýlin á
hálsi eða í nára.
Meðgöngutími
smitsins er yfir-
leitt á bilinu
2-7 dagar og að minnsta kosti helmingur
þeirra sem smitast deyr eftir 2-4 daga.
Pestarbakterían getur einnig lifað í blóð-
rás senr blóðsýking án þess að ígerðir nái að
koma fram í eitlum (kýlapest) eða að bakt-
erían fjölgi sér í lungum (lungnapest).4
Veikin er bráð og yfirleitt deyja sjúklingar
með blóðsýkingu eftir 1-3 daga. Blóðsjúg-
andi skordýr eins og flær smitast við að
sjúga blóð mengað pestarbakteríum (mynd
2) sem síðan Qölga sér í meltingarvegi
skordýranna. Mjög er misjafnt eftir teg-
undum hversu hratt pestarbakterían fjölgar
sér. I sumum tegundum flóa verður fjölg-
unin svo ör að meltingarvegurinn þrengist
eða stíflast algjörlega. Soltnar flær verða
sérlega blóðþyrstar og árásargjarnar.Yfir-
leitt er talið að hættulegustu smitdreifar úr
hópi skordýranna séu stíflaðar eða hálf-
stíflaðar rottuflær. Fjölmargar fleiri teg-
undir geta þó einnig kornið hér við sögu
eins og nánar verður rakið hér síðar. Rétt
er að geta þess hér að pestarsmitaðar flær
geta sumar hverjar lifað með bakteríuna
vikum og mánuðunr saman.5 Nái þær að
stinga ósýkta einstaklinga kemur fram
kýlapestarsmit sem svo getur þróast áfram í
blóðsýkingu og lungnapest.
Þriðja form svartadauða í mönnum
hefur verið nefnt lungnapest. Kemur það
fram í sumum kýlapestarsjúklingum þeg-
ar pestarbakterían hefur náð að berast úr
blóðrás og hún fer að fjölga sér í lungum
(mynd 2). Um sólarhring eftir smitun fer
bakterían að berast út í andrúmsloftið
sem úðasmit úr lungum með hósta eða
hnerra. Veikin er bráð og sjúklingarnir
verða fljótt fárveikir þannig að þeir kom-
ast sjaldan langt frá smitunarstað áður en
„Árið 1990 greindust 1250 til-
felli af svartadauða í mönn-
um í heiminum og létust 11%
sjúklinganna. Um þriðjungur
tilfellanna var í Víetnam en
pestarinnar varð þetta árið
vart í alls 12 þjóðlöndum."
SAGNIR 75
SVARTIDAUÐI Á ÍSLANDI - Plágurnar 1402 og 1495