Sagnir - 01.06.2007, Síða 67

Sagnir - 01.06.2007, Síða 67
Hugmyndafræði að verki orðrœðu og samfélagslegar mýtur. Við lítum einnig til þess Itvernig stjórnmálamenn og flokkar nýttu sér þjóðernismýtur til að afla málstað sínurn Jýlgis og gefa honum löggildingu. Báðar fýlkittgar, ttieð og á ntóti samningnum, staðhcefðu að markmið sin vceru að vernda fullveldi og sjálfstceði landsins. Voru raunverulega skiptar skoðanir unt merkingu fullvalda ríkis eða var íslensk þjóðernishyggja einungis skálkaskjólfýrir raunverulega stefnu stjórnmálamanna? Orðrœðan myndast Hugmyndafræði sjálfstæðisbaráttunnar hefur fest sig rækilega í sessi í hugum og hjörtum landsmanna en sú þróun var ekki neinum tilviljunum háð. Menntastofnanir og stjómvöld ráku um áratugaskeið markvissa innrætingu þjóðemisgilda og endurspegluðust áhrif þessarar innrætingar víða um samfélagið, þá ekki síst á stjómmálasviðinu. Söguritarar eins og Jón J. Aðils og Jónas Jónsson frá Hriflu hafa skilgreint sjálfstæðisbaráttuna sem homstein íslenskra stjómmála og þjóðfélagsumræðu um áratugaskeið. Ymsir ffæðimenn telja þessar hugmyndir hafa mótað sameiginlegar minningar Islendinga um sögu sína og síðan orðið að ríkjandi þjóðemisorðræðu.1 Söguskoðun Jóns Aðils vatt sér leið inn í íslenskt skólakerfi en Jónas Jónsson ffá Hriflu skrifaði í grein um Jón Aðils að alþýðufyrirlestrar hans hefðu verið óhemjumikilvægir þjóðinni og í raun myndað homsteina íslenska lýðveldisins. í þeim þremur vakningarritum, sem birtust frá hendi Jóns Aðils á fyrstu tíu áram 20. aldarinnar fengu hugsjónamennimir eld, ljósker sinna pólitísku drauma. Ekki þurfti lengi að bíða mikils árangurs. Árið 1908 svaraði yfirgnæfandi meirihluti íslenzkra kjósenda spumingunni um viðhorfið til Dana á þann hátt að þeir vildu meira en, að ísland væri ffjálst land í veldi Danakonungs ... svo mikið er víst, að sú vinna, sem Jón Aðils lagði fram frá aldamótum og þar til... 1911 hafði stórmikla þýðingu til að benda þjóðinni og leiðtogum hennar á hvert væri hennar hlutverk.2 á 19. öld þegar sjálfstæðisbaráttan var í algleymingi. Fjallkonan var hönnuð með það í huga að tengja saman fjarlæga fortíð og framfarir, náttúru og nútíð og eru engar heimildir um tilvist hennar á fyrri öldum. Jón J. Aðils (1869-1920) er talinn einn áhrifamesti sagnfræðingur Islandssögunnar en þrátt fyrir það lauk Jón aldrei háskólaprófí. Jón var bóndasonur frá Seltjarnarnesi sem hóf nám í læknisfræði og sagnfræði en lauk prófi í hvorugri greininni. Þrátt fyrir prófleysi var hann ráðinn sem sagnfræðikennari við stofnun Háskóla íslands og gerður að heiðursdoktor árið 1919 og hlaut þá um leið prófessorsstöðu við Háskólann. Þekktastur er Jón fyrir alþýðufyrirlestra sína sem öllum góðum sagnfræðinemum ber skylda til að þekkja. Ef fyrirlestrar Jóns Aðils létu landsmönnum í té „ljósker sinna pólitísku drauma" þá varð kennslubók Jónasar ffá Hriflu í Islandssögu til þess að móta þjóðemissinnaða söguvitund landsmanna áratugum saman. Enda var yfirlýst markmið þessara rita að kveikja með ungmennum, sem ekki höfðu upplifað sjálfstæðisbaráttuna persónulega, „tilfinningu fyrir því að hún væri hinn rauði þráður Islandssögunnar, raunveralegt inntak hennar.“3 Stjómarskráin 1874 var ávöxturinn af æfilangri baráttu og sjálfsfóm Jóns Sigurðssonar og með henni hófst nýtt tímabil í sögu íslendinga. Þá var landið í kaldakoli eftir margra alda kúgun og misvitra stjóm Dana. En síðan Islendingar fengu hönd í bagga með stjóm landsins hefir þjóðin tekið meiri ffamforam á einum mannsaldri en á öllum þeim öldum samanlögðum, sem erlendir menn höfðu stýrt þjóðarmálefhum íslendinga.4 Islandssaga Jónasar endurómar þannig kenningar og skoðanir landsfeðranna um hina illu erlendu stjóm er átti sök á bágu efnahagslegu ástandi landsins. Hugmyndir og kenningar era þar með orðin saga. Gríðarlega áherslu á íslenska sögu í menntakerfinu telur Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur afleiðingu þess hve stóran sess „gullöldin" skipaði: „[Fjramkvöðlar sjálfstæðisbaráttunnar litu svo á að glæst fortíð þjóðarinnar væri óræk sönnun þess að sjálfsforræði væri grannur SAGNIR - 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.