Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Síða 17
DV Helgarblað Föstudagur 10. ágúst 2007 17
ÞAU HURFU AF ALÞINGI Í VOR
Guðmundur Hallvarðsson, Sjálfstæðisflokki
Aftur til Hrafnistu
„Ég var áður en ég hætti á þingi stjórnarformaður
Hrafnistuheimilanna og það er ég er að fást við nú um
stundir. Það eru mikil umsvif með lækkandi sól, miklar
byggingarframkvæmdir og ég á von á því að veturinn
verði erilsamur. Það er engin eftirsjá að þingsetu. Ég var
sáttur við ákvörðunina að hætta, mér fannst 16 ára seta
á þingi vera orðið gott og ákvað að fara að skoða eitt-
hvað annað.“
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Samfylkingu
Framtíðin óráðin
„Ég er bara að koma heim úr sumarfríi. Sumarið hef-
ur verið mjög fínt, ég hef að mestu verið innanlands og
þá í Skagafirði.“ Hún segir ekkert ráðið með hvað hún
muni gera í framtíðinni. „Það er ýmislegt í deiglunni.
Þingmennskan var áhugavert og skemmtilegt starf, ég
sóttist eftir að halda áfram en ég varaþingmaður og
mun sinna því eftir því sem kostur gefst.“
Sæunn Stefánsdóttir, Framsóknarflokki
Allt að skýrast
„Ég er í sumarfríi og er svo að fara vinna á öðrum
stað. Þetta er allt að skýrast og ég reikna með að byrja
með haustinu Það er ekki tímabært að segja meira
um það.“ Hún viðurkennir að það sé eftirsjá að þing-
mennsku. „Ég bauð mig fram til endurkjörs og ég bjóst
við að þetta yrði erfiður róður. Það hefði náttúrulega
verið glópalán ef ég hefði komist inn aftur. Ég verð
áfram ritari Framsóknarflokksins og er hvergi nærri
hætt í pólitík.“
Jón Gunnarsson, Samfylkingu
Flytur inn umbúðir
Jón var staddur í Noregi þegar DV tók hann tali.
„Ég er að gerast framkvæmdarstjóri Umbúðalausna
ehf. sem sérhæfa sig í innflutningi á ýmiss konar um-
búðum. Það leggst alveg ágætlega vel í mig,“ segir Jón
sem er jafnframt eigandi fyrirtækisins. „Það hefur verið
gaman í sumar, nóg að brasa og ég hef verið að horfa í
kringum mig , það er alltaf nóg af tækifærum. Það er
sagt að lífið sé pólitík en ég er að upplifa að það er líf eft-
ir pólitík.“ Hann viðurkennir þó að það sé ákveðin eft-
irsjá að þingsetu.
Margrét Frímannsdóttir, Samfylkingu
Ljúft líf í sumarfríi
Margrét segist ekki sjá neitt eftir þingsetu. „Þetta var
fínn tími en það var alveg kominn tími á að hætta. Ég
er bara í sumarfríi um þessar mundir, það hefur verið
ljúft líf. Að auki er ég að klára verkefni sem ég var með
í gangi. Það er ekkert ákveðið með framtíðina, en ég er
að byrja að skoða þau mál.“
Rannveig Guðmundsdóttir, Samfylkingu
Tekur á móti krötum
„Ég er þessa dagana í mjög skemmtilegu verkefni,
ég tók það að mér að undirbúa stjórnarfund norrænna
jafnaðarmanna í Norðurlandaráði, en ég hef starf-
að með þeim í einn og hálfan áratug, ársfundurinn er
hér á Íslandi. Gestirnir koma á mánudag og verða hér
á landi í fjóra daga. Á þeim tíma verður fundað og land-
ið skoðað. Ég hef þó ekki alveg losað mig við pólitíska
þátttöku. Síðar í ágúst mun ég til dæmis fara á fund í
norræna menningarsjóðnum. Þá er ég formaður fram-
kvæmdastjórnar Samfylkingarinnar þannig að ég verð
eitthvað utan í pólitíkinni áfram.“
Valdimar Leó Friðriksson,
Frjálslynda flokknum
Málar húsið sitt
„Ég er bara að mála húsið okkar í Mosfellsbænum.
Við fjölskyldan höfum tekið því rólega, erum að klára
að ditta að húsinu núna.“ Hann segist ekki vita hvað
hann muni taka sér fyrir hendur á næstunni. „Ég hef
aðeins verið að þreifa fyrir mér á vinnumarkaðnum.
Það virðist vera nóg af tækifærum, það er mikil þensla
á markaðnum.“
Hann viðurkennir að eftirsjá sé að þingmannsstarf-
inu. „Það var gaman að starfa á þinginu og reyna að
koma góðu til leiðar, en ég er ekki endilega alfarið hætt-
ur í stjórnmálum.“
Jónína Bjartmarz, Framsóknarflokki
Á leið til Kína
Fyrrverandi umhverfisráðherra hefur ákveðið að
venda sínu kvæði í kross og er nú á leið til Kína í einka-
erindum með eiginmanni sínum. Það fer því lítið fyrir
stjórnmálaþátttöku hjá Jónínu á næstunni. Ekki náðist
í Jónínu.
Mörður Árnason, Samfylkingu
Tekst á við Laufáskirkjur
„Ég er að fást við ýmis verkefni og þó aðallega að
efna gamalt loforð sem gefið var í minningargrein um
Hörð Ágústsson og felst í að hjálpa til við frágang bók-
ar um Laufáskirkjur. Þetta verkefni verður út mánuð-
inn og hefur staðið í sumar. Ég hef unnið nokkuð mik-
ið, en þetta er ekki hefðbundin launavinna.“ Hann segir
nokkra eftirsjá vera að þingsetu. „Ég ætlaði mér ekki að
hætta á þingi en því verður þó að taka og nú eru nýjar
aðstæður komnar upp og þá held ég bara áfram.“
Ekki náðist í þau Guðjón Hjörleifsson, Guðrúnu Ögmundsdóttur, Halldór Blöndal, Jóhann Ársælsson, Jón Kristjánsson og
Sigurrós Þorgrímsdóttur við vinnslu greinarinnar.