Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Qupperneq 21
Kirkjulistahátíð í Reykjavík verður haldin í ellefta sinn dagana 11. til 19. ágúst:
Stórstjörnur á Kirkjulistahátíð
Á fimmta hundrað listamanna
koma fram á Kirkjulistahátíð sem
hefst á morgun en hátíðin er sú
stærsta sinnar tegundar í Evrópu.
Hápunktar há-
tíðarinnar eru
flutningur á
tveimur stærstu verkum kirkjutón-
bókmenntanna, messu í h-moll eftir
Bach og óratóríunni Ísrael í Egypta-
landi eftir Handel sem verða flutt
bæði í Hallgrímskirkju og Skálholts-
dómkirkju.
Erlendar stórstjörnur koma fram
á hátíðartónleikum á opnunardeg-
inum á morgun þar sem messa
Bachs verður flutt. Bassasöngvarinn
Peter Kooij frá Hollandi hefur hlot-
ið sérstaklega mikið lof fyrir túlkun
sína á verkum Bachs í gegnum tíð-
ina. Hún þykir einstaklega hlý með
óvenjulega blíðlega raddbeitingu
og framúrskarandi textaframburð.
Breski kontratenórinn Robin Blaze,
sem er aðalgestur hátíðarinnar í ár,
tók þátt í eftirminnilegum flutningi
á Matteusarpassíunni á Kirkjulista-
hátíð 2005. Auk þess að taka þátt í
flutningi á h-moll messunni syng-
ur hann einsöng og leiðbeinir með-
limum Schola cantorum í flutningi
á óratóríunni Ísrael í Egyptalandi
eftir Handel sem verður flutt í Skál-
holti 17. ágúst og í Hallgrímskirkju
19. ágúst. Þýska sópransöngkonan
Monika Frimmer hefur sérhæft sig
í flutningi barokktónlistar og hún
hefur starfað mikið með Kooij. Gerd
Türk tenórsöngvari hefur látið mjög
að sér kveða á óperusviðinu víða um
Evrópu undanfarin ár.
Auk áðurnefndra tónleika verð-
ur boðið upp á dans, gjörning,
kvikmyndasýningar og myndlist
á Kirkjulistahátíð í ár. Allar nán-
ari upplýsingar um hátíðina eru á
kirkjulistahatid.is.
Hafnardagar í Þorlákshöfn
Bæjarhátíðin Hafnardagar verður haldin í Þorlákshöfn um helgina.
Fjölbreytt dagskrá verður á boðstólum, til dæmis sýningar,
dorgveiðikeppni, götu- og handverksmarkaður, golfmót, krafta-
keppni, varðeldur og dansleikur. Nánari upplýsingar um dagskrá
hátíðarinnar er að finna á www.hafnardagar.is.
DV Menning föstudagur 10. ágúst 2007 21
hátíð
Hallgrímskirkja Kirkjulistahátíð fer
fram í Hallgrímskirkju og skálholtskirkju.
heldur hefur hún selst jafnt og þétt,“
segir Hafdís. „Umboðsskrifstofan
mín og plötufyrirtækin bjuggust al-
veg við því þar sem þetta er svona
plata sem þú fréttir af hjá vinum
þínum. Og svo lengi sem þú klifrar
upp á við held ég að þú getir ekki
kvartað.“
Hafdís segir ofboðslegan mun á
því að vera í danshljómsveit eins og
Gus Gus og FC Kahuna og því sem
hún fæst við í dag. „Í þessari hljóm-
sveit spila ég við kertaljós, fyrir sitj-
andi áhorfendur með mitt glimmer
og í mínum prinsessukjólum. Ég fíla
þetta miklu betur. Ég hafði ofsalega
gaman af hinu á meðan ég var að
gera það og það var ótrúlega mikil
reynsla. Kannski myndi ég ekki vita
það í dag að ég vildi gera þetta ef ég
hefði ekki prófað eitthvað gjörólíkt.
En þetta er allt annar heimur og allt
önnur nálgun. Við spilum til dæmis
allt „live“. Þetta hentar okkur vel og
ég vil gera þetta svona.“
Gert ráð fyrir danstónlist
Hafdís hefur lent svolítið í því
að fólk geri ráð fyrir að hún geri
danstónslist vegna fortíðar henn-
ar í þeim geira. Á Glastonbury-há-
tíðinni í sumar var hún til dæmis
bókuð á danssvæðinu. „Þegar við
löbbuðum inn í tjaldið fyrir sound-
tékkið, með banjó og klukkuspil,
var það fyrsta sem við sáum tveir
plötusnúðar í sundskýlum, með
gympgrímur og glo-sticks. Sarah
spurði hvort við værum viss um að
þetta væri rétt tjald, sem var raun-
in. Og sem betur fer komu mín-
ir aðdáendur á tónleikana þannig
að fólk fylgdist greinilega með því
hvar við vorum. En það eru ennþá
sumir sem búast við því að ég geri
danstónlist, sem mér finnst svolítið
fyndið því ég var í Gus Gus þegar ég
var fimmtán ára og flestir hafa þró-
að sinn smekk frá þeim aldri þar til
þeir eru orðnir 28 ára.“
Aðspurð hvort sú staðreynd að
hún var í Gus Gus og FC Kahuna
á sínum tíma komi að gagni við
að koma sér á framfæri í dag seg-
ist Hafdís upplifa þetta eins og hún
sé að byrja upp á nýtt. „Stundum
kannast fólk við að ég hafi verið í
Gus Gus en yfirleitt ekki. Ef ég hefði
verið með dansplötu hefði verið
miklu auðveldara að nota þær leið-
ir. En eftir að hafa tekið mér tíma til
að vera í skólanum og allt það var
það bara ekki það sem mig langaði
til að gera. Ég ákvað að gera frekar
plötu sem ég væri rosalega ánægð
með og vona að fólk myndi þá bara
gefa sér tíma til að kynnast mér upp
á nýtt. Það virðist vera að margir í
Frakklandi þekki það sem ég hef
gert áður en mestmegnis er þetta
fólk sem er að uppgötva þetta sem
nýja tónlist.“
Hefur það einhverja þýðingu
upp á erlendan markað að gera að
fá Íslensku tónlistarverðlaunin? „Ég
veit ekki hversu mikið það hjálpar
til en ég fór í viðtal hjá BBC stuttu
eftir að ég fékk verðlaunin og þá var
ég spurð út í þau. Fólk ber alla vega
mikla virðingu fyrir íslenskri tónlist
og íslensku tónlistarlífi þannig að
ég held að í huga fólks sé það gæða-
stimpill að fá tónlistarverðlaun á Ís-
landi.“
Líklega hafa einhverjir rekist
á videoblogg og eins konar stutt-
heimildamyndir Hafdísar og hljóm-
sveitarinnar á Youtube. Hafdís segir
það hafa komið þannig til að fólk frá
löndum sem þau hafa aldrei spilað
í, til dæmis Bandaríkjunum og Jap-
an, hafi haft samband og kvartað
yfir því að geta ekki séð þau á tón-
leikum. „Við ákváðum því að taka
upp þessar heimildamyndir á tón-
leikaferðalögunum og þá líður fólki
vonandi eins og það sé svolítið með
í „stemmaranum“. Ég held að þetta
gefi líka aðeins raunverulegri mynd
af hljómsveitinni og því sem hún er
að gera. Svo höfum við bara gaman
af þessu.“
Leiklistin á kantinum
Á netinu er líka hægt að horfa á
auglýsingar fyrir Reykavodka sem
Hafdís leikur í. Hún segir þátttöku
sína í því hafa komið þannig til að
hún var á skrá hjá módelskrifstofu
úti til að eiga möguleika á að öngla
saman einhverjum krónum sam-
fara því að vera í dýru námi. Hafdís
var beðin um að mæta í prufur og til
að gera langa sögu stutta fékk hún
starfið. Nýlega lék hún svo í auglýs-
ingu fyrir Samsung.
Hafdís hefur daðrað nokkuð við
leiklistargyðjuna í gegnum tíðina,
lék meðal annars í kvikmyndun-
um Íslenska draumnum og Villi-
ljósi. „Ég hef voðalega gaman af
leiklist og á tímabili velti ég fyrir
mér hvort mig langaði að einbeita
mér að tónlist eða leiklist. Í eitt ár,
rétt eftir Gus Gus, lék ég í þessum
myndum og sjónvarpsþáttum. En
svo saknaði ég þess svo rosalega að
gera tónlist og ákvað því hella mér
út í það af fullum krafti. Ég vona þó
að ég haldi áfram að fá tækifæri til
þess að leika því það er líka ofsalega
gaman að skipta algjörlega um um-
hverfi og gera eitthvað allt annað í
svolítinn tíma,“ segir Hafdís en þess
má geta að hún fer með litla rullu í
myndinni Heiðinni sem frumsýnd
verður í haust.
Hafdís segist lifa af tónlist sinni
í dag, auk leiklistarverkefnanna.
Hún býr í þorpinu Kings Cliffe rétt
fyrir utan Peterborough og læt-
ur vel af sér. „Fyrst þegar ég kom
þangað leið mér eins og ég væri í
breskri bíómynd. Öll húsin, um 50
talsins, eru hlaðin steinhús, það
er einn pöbb þarna, ein búð, eitt
pósthús og ein kirkja. Og stund-
um þarftu að stoppa ef kind þarf
að komast yfir götuna. Af því að
við spilum á stórum hátíðum og í
stórborgum finnst mér þetta tilval-
ið, að geta verið algjörlega í ró og
næði heima hjá mér.“ Sérðu fyrir
þér að búa þarna næstu árin? „Ég
bara hef ekki hugmynd um það.
Núna er ég svolítið með annan fót-
inn á Íslandi því ég er að vinna að
barnaplötu og þá fæ ég að vera hjá
mömmu og pabba. Ég bý allavega
í Kings Cliffe núna, er stundum á
Íslandi og stundum í rútu. Ég tek
bara einn dag í einu.“
Börn, töffarar og prinsessur
Barnaplatan sem Hafdís nefn-
ir inniheldur ný barnalög sem hún
hefur samið og kemur platan út hjá
Skálholtsútgáfunni í haust. Með-
fram náminu vann Hafdís sem
kennari í sunnudagaskóla íslenska
safnaðarins í London. Þá segist hún
hafa komist að því að lögin sem þar
eru notuð séu mörg hver mjög fal-
leg, en séu kannski komin svolítið til
ára sinna. „Mér fannst því kominn
tími til að semja eitthvað nýtt sem
væri kannski aðeins meira í takt við
það sem krakkar hlusta á í dag. Ég
sótti því um styrk frá Kristnihátíðar-
sjóði til að semja ný lög fyrir sunnu-
dagaskólann og fékk styrkinn. Ég
hef svo verið að semja í sumar og
mun taka upp lögin með 5 og 6 ára
krúttum í næstu viku,“ segir Hafdís,
full tilhlökkunar.
En hvenær er svo ný „fullorðins-
plata“ væntanleg? „Á næsta ári. Ég
mun mixa barnaplötuna í septemb-
er og eftir það fer ég til Kings Cliffe,
horfi á kindurnar út um gluggann
hjá mér og sem nýja plötu. Þetta
hljómar kannski væmið en það er
til svo mikið af töffurum. Það þarf
líka prinsessur inn á milli.“
kristjanh@dv.is
Tónlistarkona á uppleið Hafdís hefur spilað víða undanfarna mánuði, m.a. í
Bretlandi, frakklandi, Belgíu og á spáni og komið fram í hinum ýmsu sjónvarps- og
útvarpsþáttum.
The Besties á
Íslandi
Bandaríska indípopphljóm-
sveitin The Besties heldur
tvenna tónleika hér á landi á
næstunni ásamt fimm íslensk-
um hljómsveitum. Fyrstu tón-
leikarnir fara fram á sunnudag-
inn á veitingastaðnum Paddy‘s í
Keflavík og þeir seinni mið-
vikudaginn 15. ágúst á Organ
í Reykjavík. The Besties lauk
nýverið tónleikaferð um Svíþjóð
og Bretland, en sökum mikils
áhuga á landi og þjóð ákvað
sveitin að koma við hér á landi
til að spila fyrir íslenska aðdá-
endur. Hljómsveitin á rætur sín-
ar að rekja til Flórídaríkis en síð-
astliðin ár hafa meðlimir hennar
verið búsettir í New York.
Spari- og
afmælisball
Hinn árlegi sparidansleikur
Milljónamæringanna verður
haldinn á Broadway á morgun.
Að þessu sinni er þetta einnig
afmælisball og útgáfutónleikar
því Millarnir eru 15 ára á árinu,
hafa starfað síðan 1992. Margir
ástsælustu söngvarar þjóðar-
innar koma fram enda hafa
margir komið við sögu hljóm-
sveitarinnar á þessum tíma,
meðal annarra Stefán Hilmars-
son, Raggi Bjarna, Bjarni Ara
og Bogomil Font. Einnig verður
Laddi sérstakur heiðursgest-
ur en hann ásamt Millunum á
einn af sumarsmellum ársins,
Milljarðamæringinn. Miðasala
hefst kl. 13 á morgun á Broad-
way en aðgangseyrir er 2000 kr.
Álfheiður
sýnir á
Akranesi
Ásgerður Ólafsdóttir opn-
ar sýninguna Líf fram undan,
laugardaginn 11. ágúst kl. 14 í
listasetrinu Kirkjuhvoli á Akra-
nesi. Álfheiður hefur fengist
við myndlist síðastliðin sautj-
án ár bæði í formi grafískrar
hönnunar og málverka. Hún
útskrifaðist frá Myndlistar- og
handíðaskóla Íslands 1990 og
hefur hún haldið fjölmargar
einkasýningar síðan þá. Árið
2000 gaf hún út barnabókina
Grímur og Sækýrnar en olíu-
málverk úr þeirri bók verða
einnig til sýnis á Kirkjuhvoli.
Þjóðtrúin er sterk í Fljótshlíð-
inni þar sem Álfheiður er alin
upp og endurspeglast sú trú í
listsköpun Ásgerðar. Sýningin
stendur til 26. ágúst.
Fyrir mömmu
Kristján Jóhannsson óperusöngvari syngur á tónleikum í
íþróttahöllinni á Akureyri 9. september. Tónleikarnir bera
yfirskriftina Fyrir mömmu. Með Kristjáni koma fram Sofia
Mitropoulos sópran og Corrado Allessandro Cappita baritón. Á
efnisskrá eru meðal annars aríur úr óperum eftir Verdi, Bizet,
Mascagni og Leoncavallo.