Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Síða 34
FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 200734 Sport DV VALERI BOJINOV Fæddur 15. febrúar árið 1986. Bojinov sló í gegn með Lecce og lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu aðeins sextán ára gamall. Við miklu var búist af stráknum og Fiorentina festi kaup á honum. Þar náði Bojinov ekki að festa sig í sessi og var lánaður til Juventus. Það verður athyglisvert að fylgjast með þessum efnilega strák. CRISTIANO RONALDO Ronaldo skaust upp á stjörnuhim- ininn árið 2003 þegar hann var keyptur frá Sporting fyrir 1,5 milljarða króna. Síðan þá hefur Ronaldo sýnt og sannað að hann er einn besti leikmaður heims. Ron- aldo bar fyrirliðaband portúgalska landsliðsins fyrr á þessu ári, 22 ára gamall. STJARNAN SPÁ DV Manchester United mætir með sterkara lið til leiks í ár en í fyrra. Ef/þegar Tevez kemur til liðsins verður sóknin illviðráðanleg. Ferguson veit hvað til þarf til að vinna ensku úrvalsdeildina og reynsla hans og lykilleikmanna mun vega þungt. Ná að verja titil sinn. 1 MAN. CITY Sven-Göran Eriksson er mættur á svæðið ásamt nokkrum nýjum andlitum, en ekkert þeirra er enskt. Það er deginum ljósara að síðasta leiktíð var vonbrigði. Manchester City endaði í fjórtánda sæti á síðustu leiktíð og Stuart Pearce var látinn taka pokann sinn. SPÁ DV Sven-Göran Eriksson er klókur knattspyrnustjóri sem hefur víðtæka reynslu og þekkingu. Hann hefur haft frjálsar hendur með leikmannakaup í sumar og hans handbragð því alfarið á liðinu. Hann hefur keypt marga erlenda leikmenn, sem getur verið varasamt og spurning hvort þeir nái vel saman. HEIMAVÖLLURINN City of Manchester Stadium er völlur í hæsta gæðaflokki. Hann var fyrst notaður til knattspyrnuiðkunar árið 2003 og tekur 47.726 áhorfendur. Auk þess að vera íþróttaleikvangur eru nokkrir tónleikar haldnir þar ár hvert, þar sem 60 þúsund áhorfendur komast fyrir. 10 Brasilíumaðurinn Elano hefur fengið tækifæri með landsliðinu eftir að Dunga tók við landsliði Brasilíu. Elano var fyrsti leikmaður úkraínsku deildarinnar til að spila með brasilíska landsliðinu. Hann skoraði tvö mörk fyrir Brasilíu í 3-0 sigri liðsins á Argentínu í september á síðasta ári. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN SVEN-GÖRAN ERIKSSON: Sven-Göran Eriksson var búinn að vera atvinnulaus í nokkra mánuði áður en hann ákvað að taka við Manchester City. Svíinn hefur víða komið við á ferli sínum og þjálfað lið í Svíþjóð, Portúgal og Ítalíu og unnið deildina í öllum þessum löndum. Hann þykir mjög taktískur og skipulagður þjálfari. FARNIR: Alan Smith, Giuseppe Rossi, Kieran Richardson, Danny Rose, Floribert Ngalula, Phil Marsh. MAN. UTD Manchester United hefur titil að verja og þegar þetta er skrifað hefur félagið eytt 48 milljónum punda í leikmannakaup, eða tæpa 6,2 milljarða króna. Ferguson, stjóri Manchester United, ætlar sér sigur bæði í ensku- og Meistaradeildinni í vetur. HEIMAVÖLLURINN Manchester United spilar heimaleiki sína á Old Trafford, sem oft er kallaður Leikhús draumanna. Hann tekur 76.212 áhorfendur í sæti. Völlurinn á það til að fara illa á veturna og yfirleitt þarf að skipta um gras á honum. FYLGIST MEÐ STJÓRINN SIR ALEX FERGUSON: Sir Alex Ferguson þarf vart að kynna fyrir knattspyrnuunn- endum. Hann tók við Manchester United í nóvember 1986 og hefur unnið allt sem hægt er að vinna sem knattspyrnustjóri félagsliðs. Ferguson er líklega eini stjórinn í deildinni sem þarf ekki að óttast um starf sitt. Kaupin á Anderson komu mörgum í opna skjöldu þar sem Chelsea hafði lengi haft augastað á Anderson. Hann fæddist 13. febrúar 1988 í brasilísku borginni Porto Alegre. Brasilíumönnum hefur oftar en ekki gengið erfiðlega að fóta sig í ensku úrvalsdeildinni og því verður athyglisvert að fylgjast með framgöngu Andersons. JONATHAN WOODGATE Woodgate sló rækilega í gegn á síðustu leiktíð. Hann kom til liðsins að láni frá Real Madrid og eftir frábæra frammi- stöðu ákvað Middles- brough að ganga frá kaupum á kappanum. Hann hefur verið óheppinn með meiðsli og ef hann sleppur við þau er hann Middlesbrough ómetanlegur. MICHAEL OWEN Enginn efast hins vegar um getu hans á knattspyrnuvellinum og Newcastle þarf á honum að halda ef liðið ætlar að blanda sér í toppbaráttuna. Drengurinn er fæddur markaskorari og vonandi fyrir unnendur góðrar knattspyrnu nær Owen að sleppa við meiðsli í vetur. STJARNAN SPÁ DV Sam Allardyce kemur með stöðugleika í liðið, en mikill skortur á slíku hefur verið undanfarin ár. Allardyce er þekktur fyrir það að ná því allra besta út úr leikmönnum sínum. Obafemi Martins var góður í fyrra og hann verður enn betri í vetur. Gott lið sem mun stríða þeim stóru. 6 MIDDLESBRO Middlesbrough hefur notað marga uppalda leikmenn á síðustu leiktíðum og eiga mikið hrós skilið fyrir það. Middlesbrough endaði í tólfta sæti á síðustu leiktíð, átta stigum fyrir ofan fallsæti. Það verður seint sagt að Middlesbrough eigi glæsta sögu að baki en félagið hefur sannað sig sem nokkuð stöðugt úrvalsdeildarlið á síðustu árum. SPÁ DV Erfitt tímabil framundan hjá Boro. Það er eitthvað við Middlesbrough sem segir manni að liðið komist ekki upp í topp tíu. Liðið sýndi ótrúlegan óstöðugleika á síðustu leiktíð og það er aldrei hægt að bóka örugg úrslit í leik hjá Middlesbrough. KOMNIR: Luke Young, Tuncay Sanli, Jeremie Aliadiere. HEIMAVÖLLURINN Riverside-völlurinn tekur 35.100 áhorfendur og var byggður árið 1994. Félagið hefur leyfi til að stækka leikvanginn upp í 42 þúsund áhorfendur ef þörf krefur. 13 Jeremie Aliadiere, 24 ára gamall franskur strákur sem hefur verið í herbúðum Arsenal frá 1999. Hann náði aldrei að vinna sér fast sæti í liði Arsenal og ákvað að söðla um í sumar í von um að fá að spila meira. Fljótur leikmaður sem sýndi getu sína í deildarbikarnum með Arsenal á síðustu leiktíð. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN GARETH SOUTHGATE: Gareth Southgate er enn skráður sem leikmaður Middlesbrough og segist vera klár í slaginn ef leikmenn vantar vegna meiðsla. Hann er því fyrsti spilandi stjórinn í deildinni í sjö ár. Southgate er ekki með tilskilin réttindi til að starfa sem knattspyrnustjóri í ensku úrvals- deildinni en er að vinna í því. FARNIR: Alan O’Brien, Scott Parker, Antoine Sibierski, Titus Bramble, Pavel SrniceK, Craig Moore, Olivier Bernard. NEWCASTLE Newcastle hefur reynt eins og rjúpan við staurinn um að komast og halda sér í hópi sex efstu liða á Englandi undanfarin ár. Leikmennirnir eru til staðar en einhverja hluta vegna hefur stöðugleikinn ekki verið til staðar hjá félaginu. Því á Sam Allardyce að breyta. HEIMAVÖLLURINN Stuðningsmenn Newcastle eru jafnan taldir þeir bestu á Englandi. Heimavöllur liðsins heitir St. James’ Park , tekur 52,387 áhorfendur og er jafnan uppselt á alla leiki liðsins. Stækkun er fyrir- huguð og eftir hana munu 60 þúsund áhorfendur komast fyrir á vellinum. FYLGIST MEÐ STJÓRINN SAM ALLARDYCE: Sam Allardyce er meistari í að ná því besta út úr sínum leikmönnum og kannski er það einmitt það sem Newcastle hefur skort á síðustu árum. Bolton, undir stjórn Allardyce, fer seint í sögubækurnar fyrir skemmtanagildi en það stóð ekki á árangrinum. Damien Duff var arfaslakur á síðustu leiktíð og varla hægt að ímynda sér að hann verði jafnslakur í vetur. Á góðum degi er Duff frábær leikmaður sem getur ráðið úrslitum leikja með hraða sínum og leikni. Nær hann að rífa sig úr þeirri lægð sem hann hefur verið í? DAVID JAMES Litríkur markvörður sem óhætt er að segja að hafi hlotið uppreisn æru á síðustu leiktíð þar sem hann átti hvern stórleikinn á fætur öðrum. James er einn besti markvörður deildarinnar á meðan hann heldur sér á milli stanganna, því í úthlaupum á hann það til að gera klaufaleg mistök. PORTSMOUTH Hermann Hreiðarsson er mættur til suður-strandar liðsins og þar ætla menn sér stóra hluti. Harry Redknapp hefur farið mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar sá maður er yfirleitt naskur í kaupum á nýjum leikmönnum. Portsmouth endaði í níunda sæti á síðustu leiktíð og ætlar sér enn hærra í vetur. SPÁ DV Sterk varnarleikur verður aðalsmerki liðsins, rétt eins og á síðustu leiktíð. Reynsluboltar í hverri stöðu í vörninni og sjálfur David James á milli stanganna. Redknapp er staðráðinn í að koma liðinu í Evrópukeppni og hefur farið mikinn á leikmannamarkaðnum. Það tekst þó ekki. KOMNIR: Hermann Hreiðarsson, John Utaka, David Nugent, Arnold Mvuemba, Paris Cowan-Hall, Callum Reynolds, Martin Cranie, Sulley Muntari, Sylvain Distin. HEIMAVÖLLURINN Fratton Park, heimavöllur Portsmouth, tekur aðeins 20.688 áhorfendur. Hann var byggður árið 1898. Völlurinn er kominn til ára sinna og félagið hefur þegar gefið út að það ætli sér að byggja nýjan völl, sem mun taka 36 þúsund áhorfendur. 11 Sulley Muntari fæddist 27. ágúst 1984 í Konongo í Gana. Hann er kröftugur miðjumaður sem lék vel með landsliði Gana á HM í fyrra. Portsmouth keypti Muntari frá Udinese fyrir 900 milljónir króna. Árið 2005 neitaði Udinese tilboði frá Manchester United í Muntari. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN HARRY REDKNAPP: Harry Redknapp er er klókur stjóri og nýtur mikilla vinsælda hjá stuðnings- mönnum þeirra félaga sem hann stýrir hverju sinni. Redknapp tók við Portsmouth árið 2001, hætti í fússi í nóvember árið 2004 og tók aftur við liðinu ári síðar. Það er sjaldan lognmolla í kringum þennan litríka stjóra. KOMNIR: Elano, Javier Garrido, Geovanni, Gelson Fernandes, Rolando Bianchi, Valeri Bojinov, Vedran Corluka. FARNIR: Stephen Jordan, Nicky Weaver, Joey Barton, Sylvain Distin, Hatem Trabelsi, Trevor Sinclair. KOMNIR: Nani, Anderson, Owen Hargreaves. FARNIR: James Morrison, Ross Turnbull, Mark Viduka, Daniel Graham, Malcolm Christie, Stuart Parnaby, Abel Xavier. KOMNIR: Jose Sanchez Enrique, Cacapa, Alan Smith, David Rozehnal, Joey Barton, Mark Viduka. FARNIR: Andy Griffin, Svetoslav Todorov.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.