Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Qupperneq 35
DV Sport FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 35
10
13
11
KEVIN DOYLE
Doyle verður 24 ára gamall 18.
september. Hann Kom til
Reading frá Cork City árið
2005. Doyle skoraði þrettán
mörk á síðustu leiktíð og var
valinn besti ungi leikmaður
Írlands á árinu 2006. Hann
var einnig tilnefndur sem
besti ungi leikmaður
úrvalsdeildarinnar, en beið þar
lægri hlut fyrir Cristiano Ronaldo.
DWIGHT YORKE
Yorke öðlaðist nýtt líf þegar hann
gekk í raðir Sunderland fyrir ári.
Keane ákvað að stilla honum
upp á miðjunni og það
svínvirkaði. Þessi 35 ára
gamli brosmildi leikmaður
nýtur mikilla vinsælda hjá
stuðningsmönnum
Sunderland og reynsla hans
mun vega þungt í baráttu liðsins
um að halda sæti sínu í liðinu.
STJARNAN
SPÁ DV
Góð stemning er í Sunderland eftir frábær umskipti sem liðið
sýndi á síðustu leiktíð. Liðið hrósaði sigri í næstefstu deildinni
og er með vindinn í bakið. Þetta verður þó alls ekki auðvelt.
Liðið fer vel af stað en missir örlítið dampinn undir lok
tímabilsins.
14
READING
Reading var spútniklið síðustu leiktíðar. Reading kom liða mest á óvart
og endaði í áttunda sæti á sínu fyrsta tímabili í úrvalsdeildinni. Mörg
lið hafa náð góðum árangri á sínu fyrsta tímabili í efstu deild en ekki
náð að fylgja því eftir. Nú er það verk Steve Coppell að sýna fram á að
árangurinn á síðustu leiktíð var engin tilviljun.
SPÁ DV
Reading kom liða mest á óvart á síðustu leiktíð. Annað tímabilið
í efstu deild vill oft reynast liðum erfitt og sú verður raunin hjá
Reading í vetur. Þeir fóru langt á samheldninni á síðasta tímabili
og hún verður að vera til staðar ef ekki á illa að fara í vetur.
KOMNIR: Emerse Fae, Kalifa Cisse.
HEIMAVÖLLURINN
Madejski-völlurinn
var byggður árið
1998 og tekur
24.161 áhorfanda.
Ruðningslið
borgarinnar notar
völlinn einnig.
Völlurinn er
nefndur eftir John
Madjeski,
stjórnarformanni
Reading.
15
Brynjari Birni Gunnarssyni. Brotthvart
Stevens Sidwells frá félaginu gæti
þýtt að Brynjar Björn fái meira að
spila en á síðustu leiktíð. Hann sýndi
það og sannaði oft á tíðum á síðustu
leiktíð að hann á fullt erindi í
byrjunarliðið hjá Reading. Brynjar er
traustu miðjumaður sem leggur sig
allan fram í leiki.
FYLGIST
MEÐ STJARNAN
STJÓRINN
STEVE COPPELL:
Coppell var valinn
stjóri síðasta
tímabils eftir að
hafa náð frábærum
árangri með
Reading. Coppell
hefur þá reglu að
skrifa alltaf aðeins undir
eins árs framlengingu á samningi
sínum. Hann breytti hins vegar út af
vananum í mars og skrifaði undir
tveggja ára samning.
FARNIR: Kenny Cunningham, Tommy Miller.
SUNDERLAND
Búast má við erfiðum vetri fyrir Roy Keane og lærisveina hans í Sunderland.
Þrátt fyrir að hafa unnið næstefstu deildina á síðasta tímabili, þá er stærð
leikmannahópsins ekki að þvælast fyrir Keane. Honum hefur gengið illa að
fá þá leikmenn sem hann hefur óskað eftir til liðsins.
HEIMAVÖLLURINN
Sunderland leikur
heimaleiki sína á
Stadium of Light,
eða Leikvangi
ljósanna. Völlurinn
var tekinn í notkun
árið 1997 og tekur
49 þúsund
áhorfendur.
Gríðarleg stemning
verður þegar
Sunderland mætir
nágrönnum sínum í
Newcastle og
Middlesbrough.
FYLGIST
MEÐ
STJÓRINN
ROY KEANE:
Keane vann
kraftaverk með
Sunderland á
síðustu leiktíð.
Hann tók við liðinu
í fallsæti í ágúst fyrir
ári og stóð uppi sem
sigurvegari þegar
leiktíðinni lauk. Keane er reynslulítill
knattspyrnustjóri og í vetur reynir
virkilega á hæfileika hans í því starfi.
Craig Gordon. Sunderland keypti
Gordon frá Hearts fyrir níu milljónir
punda, sem samsvarar rúmum 1,1
milljarði króna. Hann er þar með
dýrasti markvörður Bretlandseyja og
þriðji dýrasti markvörður sögunnar, á
eftir Gianluigi Buffon og Angelo
Peruzzi. Hann hlýtur því að geta
eitthvað strákurinn. Gordon er 24 ára
gamall.
DIMITAR BERBATOV
Þessi búlgarski snillingur gekk til liðs
við Tottenham í fyrra. Hann lék
49 leiki með liðinu og skoraði í
þeim 23 mörk. Berbs er
sóknarmaður númer eitt hjá
Tottenham og var ótrúlega
fljótur að aðlagast enska
boltanum. Hann er ekki
aðeins markaskorari heldur
leggur hann einnig upp færi fyrir
samherja sína. Berbatov er 26 ára.
FREDDIE LJUNGBERG
Hinn sænski Freddie Ljungberg gekk til
liðs við West Ham frá Arsenal í
sumar og eru miklar væntingar
bundnar við Svíann knáa hjá
félaginu. Hann spilaði yfir 300
leiki með Arsenal á þeim níu
árum sem hann lék með liðinu
og í þeim skoraði hann 72
mörk. Forráðamenn West Ham
búast við því að Ljungberg komi
liðinu í hæstu hæðir.
STJARNAN
SPÁ DV
Margir Íslendingar hafa taugar til West Ham. Félagið hefur
styrkt sig gríðarlega með leikmönnum sem þekkja enska
boltann vel. Curbishley hefur sýnt það í gegnum tíðina að hann
er snjall knattspyrnustjóri sem nær því besta út úr leikmönnum,
líkt og sannaðist hjá Charlton.
8
TOTTENHAM
Tottenham endaði í fimmta sæti á síðasta keppnistímabili og
því verður spennandi að sjá hvort liðið nái að fylgja þeim góða
árangri eftir. Þeir hafa keypt til sín marga góða leikmenn og eytt
miklum peningum það sem af er sumri.
SPÁ DV
Tottenham hefur verið að banka á Meistaradeildardyrnar á
undanförnum árum og nú er þeirra tími kominn. Ef þeir verða
ekki fyrir miklum skakkaföllum geta þeir ógnað efstu liðum
deildarinnar. Tottenham kemst loks upp fyrir erkifjendur sína í
Arsenal.
HEIMAVÖLLURINN
White Hart Lane er
heimavöllur
Tottenham og tekur
um 36 þúsund
áhorfendur.
Leikvöllurinn á sér
langa sögu og það
er oft gríðarlega
góð stemning á
heimaleikjum
Tottenham.
4
Younes Kaboul er 21 árs gamall
Frakki og stór og sterkur leikmaður
sem gekk til liðs við Tottenham í
sumar eftir að nokkur af sterkustu
liðum Evrópu höfðu barist um
leikmanninn. Kaboul er talinn einn af
efnilegri leikmönnum Evrópu um
þessar mundir.
FYLGIST
MEÐ STJARNAN
STJÓRINN
MARTIN JOL:
Það er töluverð
pressa á Martin Jol
á komandi
tímabili enda
hefur Tottenham
fengið til sín góða
leikmenn í sumar.
Lið hans spila oft á
tíðum skemmtilegan bolta en það er
spurning hvort það dugi til að koma
liðinu ofar á töfluna.
WEST HAM
Arsenal spilar einn skemmtilegasta fótbolta Evrópu en hann er því
miður ekki nógu árangursríkur. Liðið er uppfullt af ungum og efnilegum
fótboltamönnum sem virðast hafa gaman af því sem þeir eru að gera.
Liðið missti sinn besta mann og fyrirliða þegar Thierry Henry fór en
Arsene Wenger gæti átt einhvern ás upp í erminni, sannið til.
HEIMAVÖLLURINN
Upton Park er
heimavöllur West
Ham og tekur
rúmlega 35 þúsund
manns í sæti.
Eggert Magnússon
er staðráðinn í því
að finna nýjan
heimavöll fyrir
félagið og því er
líklegt að Upton
Park verði ekki
heimavöllur liðsins
til frambúðar.
FYLGIST
MEÐ
STJÓRINN
ALAN CURBISHLEY:
Er margreyndur
knattspyrnustjóri
sem hefur náð
góðum árangri.
Hann átti stóran
þátt í því að liðið
hélt sér í deildinna á
síðasta ári. Núna er
spurning hvernig tekst til með
lið sem menn búast við einhverju af.
Pressan er að minnsta kosti töluverð
á stjóranum.
Hinn 24 ára gamli Dean Ashton er
ætlað að fylla skarð Carlos Tevez sem
yfirgefur félagið að öllum líkindum á
næstu misserum. Hann missti af öllu
síðasta tímabili vegna meiðsla og
vonast stuðningsmenn West Ham til
þess að Ashton verði iðinn við að
skora mörk á næsta tímabili.
EMILE HESKEY
Hann er fæddur 11. janúar 1978
og er margreyndur sóknar-
maður. Hann er kannski ekki
hæfileikasti leikmaðurinn
sem spilar í ensku
úrvalsdeildinni en býr aftur
á móti yfir miklum
líkamlegum styrk. Heskey
hefur leikið 43 landsleiki með
enska landsliðinu á sínum ferli
og skorað í þeim fimm mörk.
WIGAN
Liðið náði góðum árangri þegar það tryggði sér sæti í ensku
úrvalsdeildinni í fyrsta sinn fyrir tveimur árum. Wigan komst
meðal annars óvænt í úrslitaleik deildarbikarsins árið 2006.
Liðið lenti í sautjánda sæti í fyrra og líklegt að róðurinn verði
þungur hjá liðinu á komandi tímabili.
SPÁ DV
Wigan fer seint í sögubækurnar fyrir skemmtilega knattspyrnu.
Chris Hutchings er líklegur kandídat til að verða sá fyrsti sem
fær að taka pokann sinn. Ástæðan fyrir falli er meðal annars sú
að Emile Heskey er skærasta stjarna liðsins.
KOMNIR: Michael Brown, Jason Koumas,
Carlo Nash, Andreas Granqvist, Mario
Melchiot, Antoine Sibierski, Titus Bramble.
HEIMAVÖLLURINN
JJB Stadium er
heimavöllur Wigan
Athletic og tekur
rúmlega 25 þúsund
manns í sæti. Að
meðaltali mættu
tæplega 20 þúsund
manns á leiki með
liðinu síðan það
tryggði sér sæti í
deildinni fyrir
tveimur árum.
18
Jason Koumas er landsliðsmaður
með Wales og gekk til liðs við Wigan
í sumar frá W.B.A. Þessi 28 ára gamli
miðjumaður er öflugur leikmaður og
mikilvægt fyrir Wigan að hann leiki
vel í vetur. Hann er góður
sendingamaður og góður
skotmaður.
FYLGIST
MEÐ STJARNAN
STJÓRINN
CHRIS HUTCHINGS:
Tók við liðinu af
Paul Jewell í haust
eftir að hafa verið
aðstoðarmaður
hans í vetur.
Hutchings var
knattspyrnustjóri
Bradford City í stuttan
tíma árið 2000 en var rekinn eftir tólf
tapleiki í röð með liðið. Titus
Bramble var fyrsti leikmaðurinn sem
Hutchings samdi við, mörgum til
mikillar furðu.
FARNIR: Curtis Ujah, Jonathan Hayes, Greg
Halford, Steven Sidwell, Alan Bennett, Scott
Davies, Curtis Osano.
KOMNIR: Craig Gordon, Paul McShane,
Dickson Etuhu, Kieran Richardson, Michael
Chopra, Russell Anderson, Greg Halford.
FARNIR: Mark Yeates.
KOMNIR: Fredrik Ljungberg, Craig Bellamy,
Richard Wright, Julien Faubert, Scott Parker.
FARNIR: Leighton Baines, Lee McCulloch,
Matt Jackson, David Unsworth, Arjan De
Zeeuw.
FARNIR: Marlon Harewood, Paul Konchesky,
Yossi Benayoun, Shaun Newton, Nigel Reo-
Coker, Tyrone Mears.
KOMNIR: Kevin-Prince Boateng, Younes
Kaboul, Darren Bent, Adel Taarabt, Gareth
Bale.