Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Qupperneq 37
DV Helgarblað Föstudagur 10. ágúst 2007 37
K
ristbjörg
Kristmunds-
dóttir er ný-
lent úr löngu
flugi frá
Bandaríkj-
unum þegar
blaðamaður
bankar upp
á. Hún er að pakka upp úr einni
ferðatösku og niður í aðra því það
er ekki nema ein og hálf klukku-
stund þangað til hún fer með flugi
til Egilsstaða. Þrátt fyrir ferðalög-
in veigrar Kristbjörg sér ekki við að
tala við blaðamann og sitja fyrir hjá
ljósmyndara áður en hún leggur í
hann.
Kristbjörg kveikir á kertum áður
en hún fær sér sæti og bíður bros-
andi eftir spurningum blaðamanns
sem byrjar á því að spyrja hana
hvort hún hafi alla tíð lifað heil-
brigðu lífi.
„Ég held að ég hafi fæðst með
áhuga á jóga,“ segir hún hugsi. „Ég
var líklega tíu ára þegar ég sá jóga-
bók í fyrsta sinn og vissi samstund-
is að þetta var eitthvað sem ég vildi
gera. Ég eignaðist mína fyrstu jóga-
bók þegar ég var ellefu ára, pabbi og
mamma gáfu mér hana í jólagjöf.
Ég byrjaði smátt og smátt að stunda
jóga og undanfarin tuttugu og fimm
ár hef ég gert það reglulega.“
Kristbjörg segir lifandi og
skemmtilega frá. Hún tjáir sig með
öllum líkamanum og það er ekki
erfitt að sjá hvers vegna fólk laðast
að henni. Hún geislar af hreysti og
lífsgleði og það væri synd að segja
að aukakílóin hafi gert sig heima-
komin á líkama hennar. Blaða-
maður, sem berst hetjulegum bar-
daga við vöðvabólgurnar, dag eftir
dag, kemst ekki hjá því að hugsa að
kannski sé jóga svarið. Eftir svari
Kristbjargar er ekki ólíklegt að svo
sé.
„Jóga heldur manni í kjarnanum,
í tengslum við uppsprettuna hið
innra. Hugurinn er oft fullur af ótta,
kvíða og væntingum og hugmynd-
um um það hvernig hlutirnir eiga
að vera. Yfirleitt gerum við meira af
því að hugsa um aðra og eigum það
til að gleyma sjálfum okkur, því sem
er raunverulega gott fyrir okkur
sjálf. Þegar við festumst í óttanum
og lífsgæðakapphlaupinu er jóga
góð leið til þess að draga athyglina
aftur inn í kjarnann og minna okk-
ur á hin raunverulegu gildi, hvað
það er sem við raunverulega vilj-
um, og hjálpar okkur að fylgja því
eftir. Raunveruleg hamingja, sem
eingöngu kemur innan frá, verð-
ur aðeins upplifuð í andartakinu,
þegar við erum í tengslum við innri
uppsprettu. Jóga er mjög gott fyr-
ir okkur í neyslusamfélagi þar sem
streita og flótti frá „sársauka“ er að
fara með okkur öll.“
Kristbjörg hefur kennt jóga í tæp
tuttugu ár þannig að hún ætti að
vita hvað hún er að segja.
„Þegar ég bjó fyrir austan kenndi
ég jóga á Egilsstöðum, Reyðarfirði,
Seyðisfirði og Eskifirði. Ég keyrði
líka upp um allar sveitir, upp í Skrið-
dal og Jökuldal til þess að kenna
fólki að iðka jóga.“
Jóga felur í sér heilunarkraft
Kristbjörg fullyrðir að jóga örvi
heilunarkraft líkama og sálar og
það sé gott í baráttunni við andlega
jafnt sem líkamlega sjúkdóma, sem
að hennar sögn eru oftar en ekki
samtengdir. Ég spyr hana hvort sá
sem hefur fengið þann úrskurð hjá
lækni að hann sé með krabbamein
og eigi aðeins eitt og hálft ár eftir
ólifað geti byrjað að stunda jóga til
að styrkja sig.
„Það væri það besta sem við-
komandi gæti gert fyrir sjálfan sig.
Allir geta gert jóga, jafnvel þeir
sem eru rúmliggjndi á sjúkrahúsi. Í
þeim tilfellum er hægt að gera önd-
unaræfingar og litlar, mjúkar æfing-
ar. Ég held að allt sé mögulegt svo
framarlega sem maður finni réttu
leiðina og sé tilbúinn til þess að
gera allt það sem þarf til að ná ár-
angri. Í þessu tilfelli er alls ekki víst
að viðkomandi ætti aðeins eitt og
hálft ár eftir, árin gætu þess vegna
orðið þrjátíu og fimm. Ég þekki til
fólks sem hefur fengið þann dóm
að vera dauðvona og eiga aðeins
þrjá mánuði eftir. Læknirinn kvaddi
með þeim orðum að nú væri um að
gera að lifa lífinu til fulls þessa þrjá
mánuði. Þetta sama fólk hefur dáið
ellidauða. En slíkt gerist aðeins
með róttækum breytingum á lifn-
aðarháttum og viðhorfi til lífsins.
Þá er nauðsynlegt að endurmeta
alla þætti og forgangsraða upp á
nýtt. Orðið jóga þýðir í raun eining,
eining við kjarnann sinn, eða þann
sem maður í rauninni er. Einingu
við þann skapara sem skóp okkur,
hvaða nafni sem við köllum þann
skapara. Jóga er í raun og veru leið
til þess að halda sér í þessu eining-
arástandi. Í framhaldi af því leið-
réttist líkamsstarfsemin eins mikið
og mögulegt er því einingin opnar
fyrir heilunarkraftinn. Jóga er var-
anleg lausn, með því að stunda jóga
gerir þú þér gott og þú býrð að því
alla ævi, sama hvað á bjátar.“
Frumherjinn Kristbjörg
Eins og áður sagði bjó Kristjörg
ásamt fyrrverandi eiginmanni sín-
um í sveitinni í rúmlega tuttugu ár,
nánar tiltekið á Fljótsdalshéraði.
Þar byggðu þau fallegt, lífrænt bú
sem er Vallanes.
„Eftir að ég flutti í sveitina tengd-
ist ég náttúrunni mjög sterkt og ég
byrjaði strax að rækta lífrænt fyr-
ir mig og mitt fólk. Við vorum með
kúabú og í fyrstunni var maðurinn
minn mest fyrir kýrnar. Hann fékk
samt fljótlega áhuga á ræktuninni
og í dag rekur hann þetta bú þar
sem hann ræktar lífrænt grænmeti,
yndislega fallegt og gott. Við vorum
með þeim fyrstu til að fara þessa
leið á eftir ábúendum í Skaftholti og
á Sólheimum í Grímsnesi. Jörðin á
Vallanesi er öll lífræn, hver einn og
einasti hektari er lífrænn.“
Nú halda eflaust margir að líf-
ræn ræktun sé nútímafyrirbæri og
ég spyr Kristbjörgu hvort fólk hafi
yfirhöfuð verið að kveikja á gæðum
lífrænt ræktaðs grænmetist umfram
annað grænmeti.
„Fólki fannst þetta bara hallær-
islegt til að byrja með,“ segir Krist-
björg og skellihlær. „Menn álitu
sem svo að þetta væri gamli tím-
inn, svona hefðu gömlu karlarn-
ir farið að. En það var samt einn
og einn sérvitringur sem hringdi
með öndina í hálsinum til þess að
spyrja hvort það væri rétt sem hann
heyrði að hjá okkur gæti hann feng-
ið lífrænt ræktað grænmeti. Smátt
og smátt fór þetta svo að breiðast út
og njóta sífellt meiri vinsælda. Ann-
ars held ég að fólkið í sveitinni hafi
í fyrstu litið mig hornauga, þessa
undarlegu konu sem stundaði og
kenndi jóga, ræktaði lífrænt græn-
meti og bjó til blómadropa. Í dag
finn ég hins vegar fyrir kærleika og
virðingu frá sveitungunum.“
Byltingarkenndir blómadropar
Blómadropar. Það eru einmitt
þeir sem leika stórt hlutverk í því
sem Kristbjörg er að bardúsa þessa
dagana. Þeir sem ekki trúa á óhefð-
bundnar lækningar telja slíka
dropa húmbúkk og vitleysu og líkja
þeim gjarnan við dropa þá sem
farandsölumenn seldu fyrr á tím-
um og töldu fólki trú um að lækn-
uðu allt frá brotnu hjarta upp í ban-
væna sjúkdóma. Kristbjörg, sem er
harður talsmaður blómadropa, auk
þess að vera einn af framleiðendum
þeirra, blæs á slíkar sögur.
„Ég byrjaði að nota blómadropa
ári eftir að ég flutti í sveitina. Í fyrst-
unni notaðist ég við erlenda dropa
því þá kunni ég ekki að búa þá til
sjálf. Strax eftir fyrsta sumarið,
þegar ég fann hvað droparnir voru
magnað og frábært fyrirbæri, fór ég
að gera dropa ásamt tveimur vin-
konum mínum. Droparnir okkar
virkuðu svo rosalega vel, betur en
erlendu droparnir. Það þurfti ekki
meira til þess að koma mér í gang
og ég fór að búa til dropana fyrir al-
vöru og hef verið að síðan þá.“
Það er ekki ólíklegt að lesend-
ur velti því fyrir sér hvað leynist í
dropunum. Hvað þeir innihaldi
sem geri fólki gott. Kristbjörg svarar
að bragði.
„Það er kraftur náttúrunnar.
Blómadropar eru í rauninni lífs-
orka hverrar jurtar fyrir sig. Allar
jurtir hafa ákveðna virkni sem við
þurfum á að halda, mismunandi
eftir því hvað það er sem við erum
að kljást við. Sum blóm gefa mikla
gleði og hafa orku sem opnar fyr-
ir hjartað. Svo eru til jurtir, eins og
melablóm, sem gefa djúpa jarð-
tengingu og styrkir tenginguna við
rætur okkar. Hún er góð fyrir þá sem
ferðast mikið á milli landa því öll
þurfum við að eiga rætur einhvers
staðar í heiminum. Við þurfum að
sækja orku til jarðarinnar, rétt eins
og við sækjum orku til himinsins.
Kraftur jurtanna getur hjálpað okk-
ur að koma jafnvægi á tilfinninga-
lífið og hugsanir okkar. Hann hjálp-
ar okkur að losa um orkuhindranir
sem myndast þegar við höfum orð-
ið fyrir áfalli. Krafturinn getur með-
al annars hjálpað þeim sem eru of-
urviðkvæmir og taka allt inn á sig,
eru stressaðir, kvíðnir, svo eitthvað
sé nefnt. Með því að vera ekki í
kjarnanum okkar erum við ekki að
taka ábyrgð á eigin lífi, ekki að velja
orkuna okkar og lífið okkar heldur
látum við stjórnast af því sem ger-
ist í kringum okkur og við gleym-
um hver við erum og hvað við vilj-
um. Droparnir geta hjálpað okkur
að vinda ofan af gömlum áföllum
og erfiðum umhverfisáhrifum sem
draga okkur oft frá kjarnanum okk-
ar þar sem kærleikurinn og gleðin
býr.“
Náttúran í dropatali
Kristbjörg tók með sér fulla
ferðatösku af blómadropunum
góðu til Bandaríkjanna. Eins og
stundum gerist skilaði taskan sér
ekki þegar áfangastað var náð og
fannst ekki fyrr en þremur dög-
um seinna. Þá fór ekki á milli mála
að tollverðir höfðu athugað vel og
rækilega hvað leynist í þessum litlu
flöskum sem við nánari könnun
innihéldu ekkert nema náttúruna
sjálfa í dropatali.
„Ég var að kenna að nota íslensku
blómadropana, sem ég framleiði
sjálf, á vikunámskeiði í Kólóradó.
Þar var ég að kenna við School of
Natural Medicine kúrs sem heitir
blómadropaterapistanám. Þetta er
skólinn sem ég lærði við og útskrif-
aðist frá árið 2000 og hef tekið að
mér að kenna þetta fag bæði í skól-
anum úti og líka við útibú sem skól-
inn er að opna hérna heima. Eft-
ir að kúrsinum lauk var ég áfram í
nokkra daga og tók fólk í einkatíma.
Það var mjög gaman og jafnframt
athyglisvert að sjá hvað Bandaríkja-
menn eru að sumu leyti öðruvísi en
við en samt svo líkir líka. Þeir eru
að takast á við svipaða hluti og við.
Mér finnst gaman að sjá hvernig
fólk er orðið meðvitaðra um líf sitt
og líðan og áttar sig á því að það
ber sjálft ábyrgð á eigin lífi. Fólk er
stöðugt að átta sig betur á því að við
sköpum okkar eigið líf með hugs-
unum okkar, hugmyndum og til-
finningum. Ef við leyfum neikvæð-
um, erfiðum tilfinningum að vera
ráðandi, þá skapar það ákveðið ferli
í lífi okkar og það dregur að sér enn
meiri erfiðleika. Ef við náum því að
leyfa jákvæðum tilfinningum að
vera ríkjandi í daglegu lífi, þá dreg-
ur það að sér jákvæðni. Blómadrop-
arnir, líkt og jógað, hjálpa okkur að
höndla þetta.“
Kristbjörg starfar sem ráðgjafi
og notar blómadropana með tilliti
til þess hvað amar að fólki.
„Ef fólk er að kljást við þung-
lyndi fær það dropa sem hjálpar því
að stíga út úr þunglyndinu. Kannski
þarf fólk að leita sér frekari lækn-
inga en droparnir geta gert herslu-
muninn. Þegar fólk leitar til mín
vegna líkamlegra sjúkdóma ráðlegg
ég því auðvitað að leita til læknis
auk þess að nota dropana, sem geta
farið dýpra. Ég reyni að komast að
andlegu rótinni að sjúkdómnum
og ástæðu þess að einstaklingur-
inn hefur þróað með sér einhvern
ákveðinn sjúkdóm. Í mínum huga
eru sjúkdómar skilaboð frá líkam-
anum um að það sé eitthvað í lífi
mínu sem er ekki að ganga upp.
Það getur verið svo margt, til dæm-
is tilfinningaleg áföll, hvaða viðhorf
við höfum til lífsins, til okkar sjálfra
og annarra. Ef við höfum neikvætt
viðhorf gagnvart okkur sjálfum, þá
kemur það örugglega út í streitu. Ef
við erum forfallnir rasistar kemur
það líka út á líkamanum. Í gegnum
árin hef ég, bæði sem jógakennari
og terapisti, þjálfað með mér að
lesa út úr líkamstjáningu fólks. Ef
við vinnum ekki úr tilfinningum
okkar sitja þær fastar innra með
okkur eða leika lausum hala í lífi
okkar, þá leyfum við tilfinningun-
um að stjóra lífi okkar og það kem-
ur niður á líkamanum sem verður
veikari fyrir. Það fer rosaleg orka í
að bæla niður tilfinningarnar, að
vera stöðugt í tilfinningauppnámi
og hlutverki dramadrottningarinn-
ar. Blómadroparnir hjálpa til við
að vera óháðari þessum tilfinning-
um og hugsunum, vinna úr þessum
innri hindrunum og vera í andlegu
jafnvægi.“
Námskeið fyrir jógakennara
Klukkan tifar og blaðamaður er
orðinn dauðhræddur um að Krist-
björg missi af fluginu til Egilsstaða.
Sjálf er hún sallaróleg og áður en
hún kveður gefur hún sér tíma til
þess að finna til dropa gegn streitu,
lífsins koníak.
„Ég verð með jógakennaranám-
skeið sem byrjar 17. ágúst. Nám-
skeiðið byrjar í Bláfjöllum þar sem
við verðum í tvær vikur. Það er al-
gjört æði að búa uppi í Breiðabliks-
skála í tvær vikur, vakna klukk-
an half sex á morgnana og byrja
að gera jóga klukkan sex. Nám-
skeiðið heldur áfram í september
og þá mæta nemendur einu sinni
í viku auk þess að fara í tvo jóga-
tíma endrum og eins fram í októ-
ber. Námskeiðið er fyrir alla þá sem
vilja verða jógakennarar og þeir
sem hafa ekki gert jóga áður þurfa
að ljúka jógaástunduninni í seinna
hluta námsins, eða þar til viðkom-
andi hefur náð því að vera upp
undir fjóra mánuði í jóga. Útskrift
verður í október. Þeir sem hafa ver-
ið á jógakennaranámskeiði í Blá-
fjöllum fá stjörnur í augun, þeir
verða mjúkir í framan og það kem-
ur sælubros á andlit þeirra þegar
minnst er á þá góðu daga.“
Þessi lýsing á vel við Kristbjörgu
sjálfa, hugsa ég með mér þegar ég
kveð hana í dyrunum. Þegar ég ek
burt frá húsinu lít ég í baksýnisspeg-
ilinn og sé að hún stendur ennþá
brosandi í dyrunum. Kristbjörg er
kona sem hefur fundið innra jafn-
vægi. thorunn@dv.is
Fæddist
„Fólki fannst þetta bara
hallærislegt til að byrja
með. Menn álitu sem
svo að þetta væri gamli
tíminn, svona hefðu
gömlu karlarnir farið
að. En það var samt
einn og einn sérvitring-
ur sem hringdi með
öndina í hálsinum til
þess að spyrja hvort
það væri rétt sem hann
heyrði að hjá okkur
gæti hann fengið líf-
rænt ræktað græn-
meti.“
Litin hornauga
„annars held ég að
fólkið í sveitinni hafi í
fyrstu litið mig
hornauga, þessa
undarlegu konu sem
stundaði og kenndi
jóga, ræktaði lífrænt
grænmeti og bjó til
blómadropa.“