Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Qupperneq 38
föstudagur 10. ágúst 200738 Helgarblað DV Öll eigum við okkur óskir og drauma. Hagir fólks eru ólíkir og þau vandamál sem þjóðfélög heimsins kljást við eru líklega jafn ólík og þau eru mörg. Sumar þjóðir berjast við hungursneið og vatnsskort á meðan aðrar glíma við verðbólgu og verðlag. Sjö þjóðþekktir einstaklingar veltu því fyrir sér hvað vantar að þeirra mati. Guðjón Bergmann, rithöfundur, fyrirlesari og jógakennari Ánægja með það sem maður hefur „Þetta er mjög opin spurning og maður gæti far- ið að væla yfir einhverju sem vantar í þjóðfélagið. Í rauninni væri auðveldara að svara þeirri spurning- unni hvað vantar ekki. Og svo vaknar spurningin um það hver ég þykist vera til að segja fólki til um hvað það á að gera til þess að öðlast það sem það vantar, nema það biðji mig að veita sér aðstoð. Einhver gæti svarað sem svo að það vanti meiri peninga, meiri menntun eða meiri viðurkenningu frá samfélaginu, en að mínu mati vantar mig ekki nokkurn skapaðan hlut. Ég myndi segja að fólki vanti yfirleitt ekki neitt nema það að vera sátt við það sem það hefur. Í því er fólginn lykillinn að lífshamingjunni.“ Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður Þolinmæði? „Þolinmæði! Það vantar meiri þolinmæði í samfélag- ið. Mig sjálfan skortir þolinmæði. Ákvarðanir eru teknar í of miklu hasti. Þetta á bæði við um stórt og lítið.“ Afnám neitunarvalds og rommflösku Erpur Þórólfur Eyvindsson, tónlistarmaður „Þriggja tíma svefn til viðbótar! Í grunninn vantar mig ekki neitt, ég á allt. Vandinn er sennilega sá að það er eitthvað sem mig vantar en hef ekki fundið ennþá. Jú, bíddu, mig vantar Havana Club Maximo flösku. Hún kostar samt 300 þúsund krón- ur og það eru held ég bara nokkrar þannig flöskur í umferð í heimin- um. Síðan er fáránlegt að það vant- ar ennþá Víetnamskan veitingastað í Reykjavík. Í alvörunni talað þá finnst mér vanta að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna missi neitunarvald sitt og auðlindir sem komust í hendur Vest- urlanda með vafasömu hætti verði endurheimtar. Það er lífsspursmál og eina leiðin til að tryggja frið og lýðræði í veröldinni. Ef þetta næst í gegn held ég að tilveran okkar allra hljóti farsælan endi. Vonandi missir samt öryggisráðið neitunarvald sitt áður en ég eignast flöskuna.“ Björgvin Franz Gíslason leikari Öryggi og frið :„Friður er mér efst í huga eftir þessa óhuggulegu ofbeld- isöldu. Mér hefur lengi ofboð- ið endalaust ofbeldi í Reykja- vík og ég skil ekki af hverju öryggi borgaranna sé ekki bet- ur tryggt. Því miður geta þeir ekki um frjálst höfuð strokið og mér finnst skrítið að segja frá því að mér leið betur í miðborg Los Angeles en Reykjavíkur um helgar. Ég er mjög ánægður að sjá átak gegn kynferðisbrotum en það verður að taka á ofbeld- inu. Ég veit um svo marga sem treysta sér varla í miðbæ borg- arinnar seint á kvöldin eða um helgar.Það vantar einfaldlega öryggi og um það þurfum við að sameinast.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.