Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Side 39
DV Helgarblað föstudagur 10. ágúst 2007 39
Hrafnhildur Halldórsdóttir,
útvarpskona
Meiri tíma
fyrir fjölskyld-
una
„Það vantar ekkert af verald-
legum hlutum. Það vantar meiri
tíma fyrir fjölskylduna. Við erum
alltaf með samviskubit yfir því að
heimsækja foreldra okkar ekki
nógu oft og eyða ekki meiri tíma
með börnunum okkar. Á sama
tíma eru gerðar miklar kröfur til
okkar í vinnunni þar sem árangur
næst ekki nema þegar við gefum
henni allan okkar tíma. Þetta á
sérstaklega við um konur. Þetta er
samvinnuverkefni samfélagsins
sem við þurfum að huga að. Frið-
ur er mér líka ofarlega í huga. Við
þurfum að leita inn á við og vera
þakklát fyrir það sem við höfum í
stað þess að vilja alltaf meira.“
„Það vantar ekki neitt. Það eru algjörar al-
snæktir. En okkur finnst alltaf eitthvað vanta
og það er mjög pirrandi tilfinning. Það minnir
mig á Jack Nickolson í myndinni As Good as
it gets. Í byrjun myndarinnar var hann alltaf
pirraður því hann vantaði alltaf eitthvað. Þeg-
ar hann svo uppgötvaði að lífið yrði kannski
ekkert betra þá fyrst fóru hjólin að snúast.
Hann fékk kærustu og fór í ferðalag. Við höld-
um stundum að allt sé háð ákveðnum skil-
yrðum, ef veðrið væri betra, ef ég væri aðeins
sætari, ef ég væri aðeins grennri. Ég er mjög
ánægð með lífið, sjálfa mig, börnin mín, hús-
ið mitt og með að vera edrú. En svo vaknaði
ég þunglyndi í morgun því mér fannst mér
vanta betri heilsu og meiri peninga. Það má
endalaust fabúlera með þetta. En það vantar
nauðsynlega að leikskólakennarar fái sömu
laun og Alþingismenn. Það er fáranlegt að láta
aðra passa börnin sín og ætla síðan ekkert að
borga fyrir það.“
Elísabet Jökulsdóttir skáld
Mjög ánægð með
lífið og tilveruna
Kristján Hreinsson skáld
Réttlæti
„Það vantar réttlæti. Það hlýtur eiginlega að vera réttlætanleg krafa hvers
og eins að fólk fái að lifa mannsæmandi lífi í þessum heimi. Staðan er sú að
í heiminum eru til menn, og samfélög jafnvel, þar sem mikill auður safnast
og meiri auður en menn geta nokkurn tímann eytt, jafnvel þótt þeir reyni
að sólunda og kasta á glæ. Þegar það gerist má eiginlega segja að auðlind-
ir fari til spillis. Þannig að í framtíðinni, hvort sem við lifum það eða næstu
kynslóðir eða aðrir, mun í framtíðinni verða jafnréttisbylting þar sem fólk
krefst réttlætis, á þeirri forsendu einni að öllum eigi að vera gert kleift að lifa
mannsæmandi lífi.“
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri
Það vantar meira
vit í þjóðina
„Það vantar minna af öllu. Minna af flottum
„lífstíll“ og matarsmekk. Minni heilsu - og útlits-
dýrkun. Minna af gríni og bulli. Við hljótum að
vera vitlaus til að láta eins og við látum og sætta
okkur við innihaldsleysið og ofgnóttina sem boð-
ið er upp á. Það vantar meira vit.
Sjálfa vantar mig ekki neitt en langar auð-
vitað oft í óþarfann. Ég er enginn engill en um
leið ekkert neyslufrík, sem sagt frekar púkó.
Við Íslendingar erum svo ung þjóð að við erum
ginkeypt fyrir innihaldsleysi og drasli. Það er
svo auðvelt að halda að við getum fyllt upp í
tómarúm og andlega ófullnægju með draslinu,
bæði af efnislegum og andlegum toga, en það
tryggir ekki ánægju. Ég er bara ekki nógu kjör-
kuð til að halda því fram að þjóðin sé að breyt-
ast í hálvita en læt nægja að segja að það vanti
meira vit.“