Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Síða 52
Tr
yg
g
va
g
a
ta
ry
g
g
va
g
a
ta
föstudagur 10. ágúst 200752 Helgarblað DV
Föstudagur Laugardagur
Tr
yg
g
va
g
a
ta
Á Café amour mun hinn ókunnugi en jafnframt viðkunnanlegi plötusnúður Dj
Stranger halda uppi stemningu. Verður við völd á föstudags- og laugardagskvöld-
ið. Hann mun sjá til þess að menn haldi sér á tánum og verði með dansglampann í
augunum fram á morgun.
Á VélSmiðjunni verður hættuleg stemning þar sem
hljómsveitin Úlfarnir munu mæta til leiks. munu þeir félagar
spila bæði föstudags- og laugardagskvöld og er miðaverð á
Úlfana 1.200 krónur en frítt inn til miðnættis. Það er
spurning hvort Sigrún Björk bæjarstjóri mæti ásamt restinni
af bæjarstjórninni í djammgallanum.
Á Kaffi aKureyri mun Dj. Siggi rún mæta með brilljantín
í hárinu og þeyta skífum eins og hann hafi aldrei gert neitt
annað. Verður hann í búrinu á föstudags- og laugardags-
kvöld. mun Siggi sjá til þess að menn haldi á sér hita í
höfuðborg norðurlands.
HinSegin Ball Á naSa
Það er gay Pride-stemning úti um
allan bæ í kvöld enda allir komnir í
dúndrandi hýran fíling og gleði eftir
gleðigönguna. Á nasa verður
hinsegin dansleikur þar sem enginn
annar en Dj Páll Óskar sér um að gera
allt vitlaust. Það verður glimmer-,
glamúr-, leður- og latex-stemning á
nasa í kvöld. Be there or be straight.
StrÁKaBall Á Barnum
Í tilefni gay Pride-hátíðarinnar
sem haldin er í reykjavík um
helgina verður sérstakt strákaball
haldið á Barnum í kvöld. Á efri
hæð staðarins spila Dj manny og
Dj fairyboy en á þeirri neðri
verður engin önnur en rósa sem
alltaf er í stuði.
Árni SVeinS
Á PriKinu
trúbadorinn góðkunni
jude frá Bretlandi verð-
ur á Prikinu um
klukkan níu í kvöld.
Þetta er þó ekki jude
law, eins og margur
hefur haldið fram. Svo
kemur Dj Árni Sveins
og klárar dæmið með
pottþéttum hitturum
sem allir elska.
Brynjar mÁr Á SÓlon
Stuðpinninn Brynjar már sér um tónlistina á
Sólon á föstudagskvöldið. Það eru fáir plötu-
snúðar á Íslandi sem eru jafnduglegir og Brynjar
sem á milli setta
stendur pliktina
við míkrafóninn
á fm957.
Danstónlist eins
og hún gerist
best og allir
dansa, úti um
allt.
Dj Stef Á HVerfiSBarnum
Það er enginn annar en Dj
Stef sjálfur, persónulega, sem
ætlar að halda uppi stemmar-
anum á Hverfisbarnum í
kvöld. Steffarinn kallar sko
ekki allt ömmu sína, en
vissulega flest. Hann er heitur
með hittarana, hamrar þá
harkalega hátt yfir dans-
hólfið. Þið fattið þetta.
fjör Á VegÓ
Í kvöld spilar á Vegamótum
plötusnúður er kennir sig við
fönk górillunnar, öfgakennda
og lítið útbreidda plötu-
snúðastefnu ættaða úr
frumskógum Kongó. Dj
gorilla funk er agalegur nagli
og hikar ekki við að þeyta
feitum bassa í allar áttir með
þeim afleiðingum að fólk
dansar og glansar.
terror DiSKÓ Á Barnum
Á Barnum verður hryllings-
diskótek á efri hæðinni enda er
það hryllingsplötusnúðurinn
terror sem spilar diskó. Á neðri
hæðinni mun svo plötusnúða-
teymið Barcode sjá um að allir
dansi sig í svefn, eða sleik. ef
þú tjúttar ekki í kvöld ertu ekki töff og ef þú
mætir ekki á barinn ertu bara einfaldlega lúði.
Óli og rÓSa
gleðjaSt Á PriKinu
Í tilefni þess að Prikið
var valið mest gay
friendly Prik í heimi af
gay-blaðinu out and
Proud verður allt
vaðandi í gay-
stemningu langt fram
á morgun á Prikinu. regnbogar og rósir, flöskur
og dósir munu svífa um loftið á meðan Dj rósa
og Óli litli að spila einhverja viðeigandi tónlist.
SKemmtanalöggan
VaKtar SÓlon
Bíddu, vó! Hvað er í gangi, er
enginn Brynjar már á Sólon í
kvöld? jú, hann er bara uppi á
borði að dansa á meðan rikki g og
atli sjá um partíið og konurnar.
löggurnar ætla ekki að klikka á
því að standa vörð um öryggi
gesta á Sólon þetta kvöldið og
sendu engan annan en skemmt-
analögguna atla til að rukka fólk
um partí og stuð og sjá til þess að allt fari skemmtilega
fram, enda er hann nú líka skemmtanalögga!
HljÓðfæri og Söngur Á HreSSÓ
Það verður spilað á hljóðfæri og það verður
sungið á Hressó í kvöld en strákarnir í Public
- samt ekki enemy, ætla að koma fólkinu í
rétta gírinn áður en Dj maggi mætir á
staðinn og stillir upp kassettutækinu og
segulbandsspólunum og byrjar að spila old
School partípopp. Samt ekki. en maggi
ætlar allavega að þeyta nokkrum skífum og
sjá til þess að fólki verði sópað út með
ruslinu undir morgun.
milljÓnamæringarnir Á BroaDway
milljónamæringarnir eiga fimmtán ára afmæli og gefa út
disk á næstu dögum. Þeir
ætla svo sannarlega að
sletta úr klaufunum og
fagna framtakinu með
dansleik á skemmtistaðn-
um Broadway í kvöld.
gleðin hefst klukkan 22 og
er miðaverð einungis tvö
þúsund krónur.
jBK Á ÓlÍVer
Þegar sólin fer að skína og sumarið
færist yfir er alveg pottþétt að
sætasta stelpan á ballinu er á
Ólíver. Þetta veit plötusnúðurinn
jBK sem sér um að gjörsamlega
blasta kerfið í drasl helgi eftir helgi
og er kvöldið í kvöld engin
undantekning. Dustið rykið af
dansskónum og dettið í gang. Það
er plötusnúðurinn Haukur sem
hefur kvöldið um níu, með rólegum en seiðandi tónum.
HauKur og jBK Á ÓlÍVer
Dj Haukur og Dj jBK ætla að vera
með partí á Ólíver í kvöld. taktu
fram dansskóna, skelltu mikka
jackson í græjurnar heima og
æfðu þig aðeins á moonwalkinu
áður en þú kíkir á Ólíver í kvöld.
annars gæti orðið alveg hrikalega
vandræðalegt fyrir þig að vera
eina manneskjan sem ekki kann
tungldansinn því allir aðrir á Ólíver kunna sporin.
StelPnaBall
Á Q-Bar
Það er stelpna-
ball á Q-bar í
kvöld, í tilefni af
gay Pride-hátíð-
inni sem haldin
verður um
helgina. Þær Dj eva maría og Dj Birna Hrönn
sjá um stemninguna, en þær eru einhverjir
vanmetnustu plötusnúðar landsins.