Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Page 59
Pottþéttur
Pink Panther 2
Leikararnir Andy Garcia, John
Cleese, Alfred Molina og Aishwarya
Rai hafa
allir verið
ráðnir til
þess að
leika í
næstu
Pink
Panther-
kvikmynd.
Steve
Martin,
Jean Reno
og Emily
Mortimer
munu öll
snúa aftur
í hlutverk
sín í framhaldinu. Cleese mun taka
að sér hlutverk lögreglustjórans
Dreyfus, en það var Kevin Kline sem
lék hann í fyrri myndinni, sem var
endurgerð á ódauðlegum gaman-
myndum Peters Sellers um
seinheppna lögreglumanninn
Clouseau og ævintýri hans.
Walken leikur
svindlara
Leikararnir Christopher Walken og
Alessandro Nivola hafa samþykkt að
leika í
vega-
myndinni
Five
Dollars a
Day, en
það er
fagtíma-
ritið
Variety
sem
greinir frá
þessu. Í
myndinni
leikur
Walken aldraðan svindlara sem
stærir sig af því að geta lifað eins og
kóngur fyrir aðeins fimm dollara á
dag. Alessandro mun leika son hans
sem hefur meðal annars farið í
fangelsi fyrir glæpi föður síns. Nigel
Cole leikstýrir og tökur hefjast í
næsta mánuði.
föstudagur 10. ágúst 2007DV Bíó 59
Transformers í 20 ár
formers má þó finna alls staðar,
en meðal annars hafa rapparar og
rapphljómsveitir út um allan heim
tekið sér nöfn úr þáttunum og má
þá helst nefna Megatron, Optimus
Prime og The Decepticons.
Kvikmynd næstum 20 árum
eftir æðið
Það vakti víðast hvar athygli þeg-
ar leikstjórinn Michael Bay tilkynnti
að hann hefði í hyggju að leikstýra
kvikmynd eftir teiknimyndasög-
unum góðu. Bay fékk til sín marga
af þeim sem unnu við upphaflegu
teiknimyndaþættina til að aðstoða
sig, meðal annars Floro Dery sem
sá um allt útlit teiknimyndanna og
einnig útlit kvikmyndarinnar. Það
er Steven Spielberg sem framleiðir
myndina, sem er nú fjórða vinsæl-
asta kvikmynd sumarsins og hef-
ur halað inn næstum 300 milljónir
bandaríkjadollara, en það er helm-
ingi meira en kvikmyndin kostaði.
Hasbro með hugmynd
Ástæða þessa að kvikmyndin
um Transformers var gerð svona
löngu á eftir eiginlega æðinu, er
einföld. Árið 2002 vildi leikfangar-
isinn �asbro framleiða kvikmynd
gerða eftir einhverjum af leikföng-
um sínum. Upphaflega var það
G.I. Joe sem átti að verða kveikj-
an að kvikmynd, en þegar Banda-
ríkjamenn réðust inn í Írak árið
2003 þótti ekki góð hugmynd að
trana leikfangahermönnum fram
á hvíta tjaldinu. Þess í stað otuðu
�asbro-menn Transformer heldur
að kvikmyndaframleiðendum sem
voru tregir í fyrstu. Það var svo ekki
fyrr en framleiðandinn Mike Delu-
ca sýndi kvikmyndinni áhuga árið
2004 og kom af stað fundi með for-
svarsmönnum �asbro og Steven
Spielberg, sem er annálaður að-
dáandi leikfanga og myndasagna.
Spielberg var aldeilis til í dæmið,
útvegaði handritshöfund og kom
meira að segja með hugmynd að
söguþræði.
Gagnrýndar persónur, vel
metnar tæknibrellur
Transformers hefur víðast hvar
fengið góða dóma, meðal annars
þjrár stjörnur hér í DV. Gagnrýn-
endur er þó flestir á sama máli og
segja að spennuatriði myndarinn-
ar og tæknibrellur hennar séu stór-
merkilegar, á meðan persónusköp-
un sé ekki nógu sterk. Fram kom
eftir að myndin var sýnd að í upp-
haflegu handriti myndarinnar voru
vélmennin mállaus, en ákveðið var
að láta þau tala þegar handritshöf-
undum fannst þeir vera að svíkja
aðdáendur vélmennanna, myndu
þau ekki tala.
Mega-beib og mega-lúði
Þrátt fyrir að myndin skarti úr-
valsleikurum í lykilhlutverkum,
voru aðalleikarar myndarinnar
báðir tiltölulega óþekktir. En það
eru þau Megan Fox og Shia Lebouf,
sem eru bæði fædd árið 1986. Segja
má með sanni að hlutverk þeirra í
Transformers hafi skotið þeim báð-
um upp á stjörnuhimininn. Shia er
um þessar mundir að leika í Indiana
Jones 4 ásamt �arrison Ford á með-
an Megan Fox er komin í hóp kyn-
þokkafyllstu kvenna í heimi og er af
mörgum talin vera næsta Angelina
Jolie.
Steven Spielberg, Ian Bryce og Michael Bay
ræða málin á tökustað, en það var spielberg sem kom með
hugmyndina að handritinu og sannfærði Bay um að leikstýra.
Teiknimynd í fullri lengd
Var gerð árið 1986 um ævintýri transformers.
Shia Lebouf
Leikur nú í Indiana Jones 4 og
var nánast óþekktur áður en
transformers-myndin var gerð.
Megatron Leiðtogi hinna illu
decepticons, sem vilja breyta
raftækjum jarðarinnar í hermenn.
Upphafleg leikföng
Optimus Prime-karlinn var
allra vinsælastur.
Clint semur
tónlist
Eilífðartöffarinn Clint Eastwood
hefur boðist til þess að semja nýja
tónlist við myndina Grace is Gone
eftir að hafa séð hana á dögunum.
Myndin var sýnd á Sundance-
hátíðinni,
þar sem
Wein-
stein-
dreifingar-
fyrirtækið
borgaði
fjórar
milljónir
Banda-
ríkjadala
fyrir að
eignast
réttinn.
Nýliðinn
Max
Richter
samdi fyrri tónlistina, en Clint vill
ólmur fá að spreyta sig. Kvikmyndin
fjallar um mann, leikinn af John Cus-
ack sem fer með dætur sínar í
ferðalag en forðast að segja þeim að
móðir þeirra sem er hermaður hafi
látist í Írak.
rekin úr
Playboy-höllinni
Leikarinn Colin �anks, sem margir muna eflaust eftir
úr kvikmyndinni O.C., hefur samþykkt að leika í Playboy-
kanínukvikmynd, sem enn hefur ekki fengið nafn. Það er
Anna Faris sem fer með aðalhlutverk myndarinnar, en hún
fjallar um Playboy-kanínu sem er rekin af Playboy-setrinu
og þarf að hefja nýtt líf. Myndin er framleidd af fyrirtæki
Adams Sandlers, �appy Madison Productions. Mun Colin
�anks leika ungan mann í myndinni með mikinn áhuga
á kanínunni. Þeir leikarar sem þegar hafa verið staðfestir
í myndina eru Monet Mazur, Kiely Williams, Tyson Ritter,
Owen Benjamin, Rachel Specter og Beverly D‘Angelo. Er
þá búist við því að Adam Sandlers og hans menn í �appy
Madison muni leika smáhlutverk í myndinni.
Nýr Punisher
Framhaldsmynd um hinn ógnvænlega
Punisher er nú í bígerð. Vinnuheiti kvik-
myndarinnar hefur þegar lekið út, The Pun-
isher: Welcome Back Frank. Tökur á mynd-
inni munu hefjast í Montreal í Kanada í lok
september, en sögusvið myndarinnar er þó
New York borg þar sem Frank Castle, sögu-
hetja myndarinnar lendir í átökum við maf-
íósa.
Leikstjóri myndarinnar er Lexi Alex-
ander sem meðal annars gerði kvikmynd-
ina �ooligans. Aðalhlutverk myndarinnar
verður í höndum Ray Stevenson úr Rome-
þáttunum en Thomas Jane lék söguhetjuna
Frank Castle í fyrri myndinni.