Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Qupperneq 62
föstudagur 10. ágúst 200762 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Á Barnalandi.is mátti sjá slúðursögu í gær um að kín- verski smáhundurinn Lúkas væri flúinn til fjalla á ný. Það mun þó ekki vera satt en þó er hitt rétt að Lúkas mun vera ansi hvekktur þessa dag- ana. Hann á nokkuð erfitt með að aðlag- ast borgar- lífinu á ný og íhugar eigand- inn, Kristjana Svansdóttir, að setja hann í nokkurs konar endurhæfingu á höfuðborgar- svæðinu. n Gillzenegger fer hamför- um á brakandi ferskri og glæ- nýrri heimasíðu sinni. Í nýj- ustu færslu sinni lofar Gillz tímamótaviðtali við stúlku af klámkynslóðinni. „Það er mik- ið búið að tala um klámkyn- slóðina núna undanfarið ár en aldrei hefur tekist að fá viðtal til að skyggnast almenni- lega inn í heim þess- arar nýju kynslóðar. Stelpa sem er fædd 1992 stundaði kynmök með 12 mismunandi strákum núna um verslunarmanna- helgina. Ég er að vinna í því að taka smáviðtal við hana, ég er að velta því fyrir mér hvort 12 tittlingar á einni helgi þyki eðlilegt hjá klámkynslóð- inni eða hvort þetta hafi verið slöpp helgi.“ n Þorsteinn Már Baldvins- son athafnamaður gekk á fjallið Kaldbak við Eyjafjörð um verslunarmannahelgina samkvæmt heimildum DV. Það væri kannski ekki í frásög- ur færandi nema fyrir þær sakir að hundur varð á vegi hans við fjalls- ræturnar sem enginn virtist vera með í sinni umsjá. Og voffi var það áfjáður í félags- skap að hann fylgdi Þorsteini alla leiðina á topp fjallsins. Ekki fylgir sögunni hvað varð um hvutta að fjallgöngunni lokinni, né hvort um var að ræða hinn þjóðþekkta Lúkas sem hélst við í fjalllendinu við Eyjafjörð framan af sumri eins og frægt varð. Hver er maðurinn? „Hann heitir Þorsteinn Blær Jó- hannsson, tvítugur að aldri, fædd- ur og uppalinn á Selfossi.“ Hvað kallar þú þig þegar þú ert í draginu? „Ég kalla mig Blæ, sem ég dreg af millinafninu mínu.“ Af hverju drag? „Ég er mikið fyrir alls kyns list- ræna sköpun, til dæmis að teikna, og bara yfirleitt allt sem er listrænt. Ég nota dragið sem ákveðna leið til þess að tjá sköpunargáfu mína og leyfa henni að fá útrás. Gervið er að hluta til mín eigin hönnun, ég bý til karakterinn, ákveð hvernig hann á að vera og hvernig hann á að líta út og finn ákveðið lag fyrir karakt- erinn. Þetta er langur prósess og mikil vinna liggur á bak við þetta. Fyrir keppnina voru stífar æfingar, dansæfingar, make-up-æfingar og fleira í þeim dúr og það má segja að þetta hafi verið hálfs mánaðar ferli. Ég er svo rosalega heppinn að eiga marga vini sem starfa við hönnun, snyrtingu og dans. Ég bara hringdi nokkur símtöl og fékk besta fólkið á sínu sviði í lið mér mér.“ Var þetta hörð keppi? „Já, við vorum fimm sem tók- um þátt í keppninni og ég átti alls ekkert frekar von á því að vinna hana. Ég hafði keppt tvisvar áður og í bæði skiptin lent í öðru sæti. Það má segja að þarna hafi sannast máltækið að allt er þegar þrennt er. Nú er ég hættur að keppa og á bara eftir að kveðja og krýna nýja drottn- ingu á næsta ári.“ Keppnin um dragdrottningu er undanfari Hinsegin daga sem verða haldnir hátíðlegir um helgina. Ætlar þú að koma fram í gervinu? „Já, ég verð í göngunni sem gengur niður Laugaveginn. Það er vaninn að dragdrottninginn sé með. Ég verð á sérvagni og lagið mitt spilað undir. Vala vinkona og Einar, kærastinn hennar, re-mixuðu fyrir mig nokkur lög, það var mikil vinna að fá þetta allt saman rétt gert.“ Líður þér vel þegar þú kemur fram í dragi? „Já, þetta er æðislegt, eins og öll listræn sköpun. Þetta er eins og að fá að stíga á svið í leikhúsi og leika. Sjálfur er ég ekki leikmenntaður en ég starfa sem stílisti og það er kannski svona næsti bær við. Þetta er ekki sami vettvangurinn en á báðum stöðum er verið að gera óveruleikann raunverulegan. “ Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx xx xx xx xxxx +15 2 +11 2 +15 2 +12 2 xx xx xx xx xx xx xx xx xx +202 +xx +xx +xx +xx +12 +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx xx xx +10 3 +10 3 +13 3 +9 4 +15 3 xx xxxx +12 2 xx+10 2 +14 3 xx xx xx xx xx xx xx xx +141 2 -xx -xx MAÐUR DAGSINS NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði allt er þegar þrennt er Þorsteinn Blær Jóhanns- son Valinn drag-drottning við hátíðlega athöfn í Loftkastalanum síðastliðinn miðvikudag. Krýningin er nokkurs konar forleikur Hinsegin daga sem verða um helgina. DV mynd Ásgeir Nýjar ÍSleNSKar ÞjóðSöGur Ungur maður sem af-plánaði refisvist á Litla-Hrauni sótti um reynslulausn þegar hann hafði setið af sér helming refsingarinnar. Þar sem fanginn hafði bæði verið til fyrirmynd- ar og þetta var hans fyrsta refs- ing var tekið tillit til óska hans og honum veitt reynslulausn- in. Fanganum barst bréf þessu til staðfestingar. Einn hængur var á, hann átti að fá frelsið 24. desember, það er á aðfangadag jóla. Þessu vildi fanginn fá breytt, vildi fá að losna degi fyrr, það er á Þorláksmessu. Hann rök- studdi mál sitt með því að hann ætti yngri systkini sem vissu ekki hvar stóri bróðir var og það væri fráleitt fyrir hann að koma heim á aðfangadag án þess að vera með jólagjafir, þess vegna varð að hann að losna tíman- lega til að geta keypt gjafir. Ekki var hlustað á umkvartan- ir fangans. Ákvörðuninni varð ekki breytt. Þá reyndi hann að fá að losna klukkan níu að morgni aðfangadags. Það gekk ekki heldur. Þá vildi hann að lögregla færi með sér í búðir svo tryggt yrði að hann stryki ekki klukku- stundum áður en hann fengi frelsið. Það kom ekki til greina. Þegar útséð var með að ákvörð- uninni yrði breytt gafst fanginn upp og tilkynnti að hann færi ekki fet. Það varð úr; hann afþakkaði reynslulausnina og sat inni all- an þann tíma sem dómurinn kvað á um. (Úr fangasögum) Maður einn á Norðurlandi hét Jón. Hann var aldrei kallað- ur annað Jón, stöku sinnum Nonni. Þegar Jón var kominn á miðjan aldur var brotist inn hjá honum. Litlu var stolið og fátt var eyðilagt. Þá var Jón í Reykja- vík svo sveitungar hans vissu vel að Jón kom hvergi nærri innbrotinu. En eftir þetta var Jón aldrei kallaður annað en Jón þjófur, eða Nonni þjófur. (Úr uppnefnissögum)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.