Árbók skálda - 01.12.1956, Blaðsíða 26

Árbók skálda - 01.12.1956, Blaðsíða 26
24 speglar samsuðu monts og forvitni. Hún er ekki fríð, nokkuð rasssíð, en lag- lega iimuð, fín og smurð. „Þetta er spennandi," segi ég þaðan sem ég stend á keisnum. Konan horfir á mig með hroka í auga; hún talar ekki við pikkaló eins og mig. Hún er kona hins mikla bassa. Brosið stirðnaði á andlit mínu. Hvað vildi ég líka vera að ávarpa fólk, ég sem var ekki yfir neitt settur nema skips- rotturnar — og við þær var ég hræddur. En nú eru allir komnir á sinn stað og Grímsi grípur stýrisstöngina, kippir í húfuskyggnið, kallar snjallt: „Sleppal" „Þóftubandið klárt?!" „Fulla ferð!" Þá róta skrúfurnar upp sjónum og Grímsi leggur hart og knálega á stýrið, stendur gleiður, og löðrið frussast yfir hann og bátana, sem þeysa í samfloti yfir hafflötinn. Stafnbúarnir stíga ölduna taktbundið hofmannlega, með árarn- ar í kross, tilbúnir að ýta sundur þegar bassinn kallar. Og nú sleppir Grímsi annarri hendinni af stýrisstönginni og bregður fyrir auga til að athuga allar aðstæður, stefnu torfunnar og stærð ... En hvað er þetta? Hinn skörulegi maður og mikli bassi verður allt í einu að 99 útlimum, líkist vindmyllu í lausu lofti og fellur aftur fyrir sig — í hafið. Ég leit á konuna. Neðri parturinn á andliti hennar varð slappur. Svo missti hún kikinn, síðan vitið — og byrjaði að æpa. Kíkirinn féll ofan á dekk og glerin úr honum brotnuðu í mél. „Jesús María," flissaði Nikolja matsveinn og sló á læri sér. Hann stóð á dekkinu horaður eins og engispretta og skjálfandi eins og störin í landi feðra hans. Konan pataði mállaus í áttina til hans, fékk svo málið og sagði í fáti: „Viljið þér ekki stinga yður? Maðurinn minn er nefnilega að drukkna." „Það eru hákarlar," hló Nikolja og tók undir sig stökk, ekki fyrir borð, heldur að loftventlunum yfir vélarúminu. Inn í þá tróð hann sér og hrópaði: „Vélalið! Komið upp fljótt, hann Grímsi er að drukkna!" Vélamennirnir komu, allir komu, og Nikolja útskýrði fyrir þeim aðdragandann í stuttu máli. Karl- arnir göptu og horfðu hugfangnir á það sem fram fór á hafinu. Konan vissi ekki sitt rjúkandi ráð og veifaði manni sínum eins og vitstola manneskja. „Grímsi minn, ég er hér!" Að svo mæltu renndi hún beittum rauð- máluðum nöglunum svo harkalega eftir hársverðinum, að augun glenntust upp á gátt — og hvíslaði eitthvað ráðþrota. Síðan ávarpar hún hópinn á dekkinu: „Ég er aumingi. Vill ekki einhver bjarga manninum mínum, hann er að drukkna." „Hann fær ábyggilega slag," hló Nikolja og dúaði í hnjáliðunum. Konan henti þetta á lofti og hrópaði: „Hæ, Grímsi minn! Passaðu að fá ekki slag!" „Haltu kjafti kona," kveður við frá Grímsa. Nikolja hló eins og fáviti, og nú fór að færast líf í tuskurnar. Grímsi sýpur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Árbók skálda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.