Árbók skálda - 01.12.1956, Blaðsíða 95

Árbók skálda - 01.12.1956, Blaðsíða 95
93 skólaórs áttu drengimir að segja. til um nöfn og atvinnu. foreldranna og gefa aðrar upplýsingar vegna skýrslugerðar. Einhverju sinni þegar Tímó- teus hafði mælzt til þessara upplýsinga hafði faðir hans ranghvolft til hans stálgráum augunum og sagt: „Ég er götusópari, mitt starf er að sópa skin- helginni hégómanum og sjálfsblekkingunni út úr þessum bæ." Hann spurði móður sína: sópar hann virkilega göíur, spurði hann sneyptur, nei barn hvaða fjarstæða, hvað í ósköpunum hefur komið inn hjá þér þessari heimsku- legu grillu. (Hann hlýtur að hafa verið að ljúga að mér). Hvað gerir hann þá, spurði hann; hvað er þetta barn, hann er þekktur og mikilsmetinn bæjar- ráðsfulltrúi og ritstjóri vikublaðs, vissirðu þetta ekki, auðvitað vissirðu það kjáninn þinn. (Hann laug þá að mér). Faðir Péturs, bæjarfulltrúi líka, var opinskár og hressilegur karl, matvöru- kaupmaður, hann ávarpaði Tímóteus „herra minn" eða „ungi maður" og drakk te með þeim strákunum á sunnudögum þegar Tímóteus kom. Hann átti til að segja: „Og hvað hefur faðir þinn nú í pokahominu til að hrella okkur með í næstu viku, ha?" og Tímóteus roðnaði vegna væntanlegra öfga föður síns og viðurkenndi að hann vissi það ekki. „Jæja ef hann heldur áfram á þessari braut þá held ég hann fái sig bráðum fullkeyptan, hann er alltaf að blása að glóðunum sem Ráðið mun velgja 'honum með einhvern daginn", og síðan rak hann upp þennan fræga hrossahlátur. Þegar Tímóteus var á heimleið eftir slíkar tedrykkjur þá fór vanalega dvínandi stolt hans yfir ræktarleysinu, og hann leit ekki lengur á það sem karlmannlega uppreist gegn hinum „fífldjarfa" föður sínum, eins og hann reyndi að hugsa sér það væri. Þetta var bara enn ein hliðin á hugleysi hans, það fékk bara útrás í ræktarleysinu. En hann má sjálfum sér um kenna að vera ekki við mig eins og aðrir feður, hann vill ekki mína hjálp svo hann fær hana ekki, hann fyrirlítur mig, hann þykist hafa skömm á mér eða svo segir hann, hversvegna ætti ég þá að hjálpa honum úr því hann hátar mig, endaþótt hann sé minn eigin faðir sem mamma segir auðvitað að hann sé en hún segir líka honum þyki vænt um mig eins og elsku Jesú á himnum en ég trúi ekki neinu sem hún segir svoleiðis. Eftir skólatíma þetta kvöld gaf Tímóteus föður sínum nánar gætur til að athuga hvort á honum sæi nokkur merki þeirrar steikingar sem Pétur hafði um morguninn boðað að fram færi á bæjarráðsfundinum. En það var engin- breyting á ytri ásýnd föður hans, móðir hans var kannski guggnari og fölari, baksvipurinn á föður hans var jafnfráhrindandi og fáskiptinn sem fyrr, þar sem hann sat við skrifborðið og var ennþá að vinna. Alltaf að vinna. Þegar Tímóteus fór að hátta um kvöldið, var honum undarlega létt yfir því að faðir hans skyldi ekki hafa sætt þeim örlögum sem hann hafðí sett sér svo skýrt fyrir sjónir, og honum fannst hann vera samaðili föður síns að ein- hverjum sigri sem þeir hefðu unnið á Craddock-feðgum. nei svona fer ekki draumurinn, ég banna það, eg ætti að vera í rúminu og bíða þangað til björninn hefur drepið föður minn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Árbók skálda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.