Árbók skálda - 01.12.1956, Blaðsíða 77
75
Þú reyndir að hugga hana.
— Vertu ekki hrædd, sagðir þú. Já, ég hef selt sál mína. En hvers virði er
sál mín? Líkaminn er miklu meira virði en sálin. Þó ég selji sál mína þúsund-
sinnum, þarf ég aldrei að láta hana af hendi. Maður, eða djöfull, sem leggur
stund á sálnakaup, á ekki annað skilið en að hann sé svikinn.
Hún hlaut að vera þér sammála. Á fslandi eru sálnakaup friðhelg störf og
lögleg. Það var einu sinni maður austur í Odda, sem hvað eftir ananð seldi
sál sína, og sveik alltaf kaupin í gjalddaga. Þannig á að fara með þá, sem
kaupa sálir. En hina, sem kaupa kroppinn, þá er aldrei hægt að svíkja. Þess
vegna má ekki selja kroppinn.
Þú starðir á hana, og hún brosti til þín, og hvemig var þreki þessarar konu
varið, að hún skyldi geta brosað á slíkri stund. Þú sazt negldur stundarkorn,
en spurul augu og undrandi horfðu á þig.
— Bíðurðu eftir að ég segi eitthvað? spurðir þú lágri röddu.
— Já, sagði kona þín.
— Jæja, sagðir þú, ég skal segja eitthvað.
En þú sagðir ekkert. Kona þín beið.
—■ Segðu þá, sagði hún.
— Já, sagðir þú, ég skal segja. Við erum búin að fá leigt. Er það ekki
dæmalaust gott? Og það er ekki braggi, engin skonsa eða kytra, ekkert greni
undir ups, heldur tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð.
Andlit hennar fór að ljóma. Það var fáránlegt. Hvaða ástæðu hafði hún til
að gleðjast? Það lá við að hún hlæi. Og hún sagði:
— Nú getum við loksins tekið báða strákana okkar heim.
Þá var mælirinn fullur. Þú raukst á fætur og tókst um axlir hennar.
— Báða strákana? Hvílík fásinna. Ég seldi báða drengina til þess að fá
íbúðina. Ég seldi sál mína og báða syni mína með köldu blóði.
Ibúð til leigu fyrir barnlaus hjón, var sagt.
fbúð til leigu fyrir barnlaus hjón.
Fyrir barnlaus hjón.
Barnlaus hjón.
En þið áttuð tvö börn og þú sagðist ekki eiga börn og þið mynduð ekki
eignast börn.
Ykkur var tekið opnum örmum. Steingeld hjón. Konan óbyrja og maðurinn
geldingur. Hvílík hamingja og hvílíkt hnoss. fbúðin upp á gátt og svona ættu
öll mannanna börn að vera, ófrjó eða að minnsta kosti morðingjar. Það er
glæpur að láta barn fæðast.
Og á nóttinni tókstu konu þína varlega í faðm þér og skimaðir í kringum
þig. Því hver vissi nema húseigandinn stæði á hleri og hlustaði eftir hverju
hljóði úr svefnherbergi þínu eða lægi á gægjum við glufu eða glugga. Og öll
æska þín kom í bylgju, sem helltist yfir þig, hrundi yfir þig og laugaði þig
sælu og laugaði þig hita og laugaði þig snertingu, laugaði þig heitri, langri
og mjúkri snertingu.