Árbók skálda - 01.12.1956, Side 32

Árbók skálda - 01.12.1956, Side 32
30 skautsbauginn, viku eftir viku, nes af nesi og breiddarstig af breiddarstigi, upplitað og skellótt, draugalegt eins og Hollendingurinn íljúgandi. 'Jtlendu skipin hafa kvatt fyrir löngu; sum hafa flautað í kveðjuskyni, skipshafnir annarra veifað — og skipin síðan horfið jafn hljóðlaust og þau komu. Með haustinu komu þokumar, þaðan sem Pólstraumurinn og Golfstraum- urinn mætast og ísinn fró Spítzbergen og Síberíu gufar upp. Einstaka reka- drumbar sunnan úr höfum sigla hjá í þokunni, mahogní frá sunnanverðum Mexíkóflóa, barrviður frá fljótunum í Síberíu. Þokulúðurinn vælir í sífellu og þokan snýst kringum siglingaljósin, leysist upp í flóka, þéttist aftur, smýgur inn í hvern krók og kima, hljóðlega og leitandi — og allt er blautt, járn sem tré. Á stjórnpalli stendur Grímsi, þögull og hugsandi, byrjaður að grána í vöngum. Hann, eins og meiri hluti skipshafnarinnar, er niðurdreginn. Sumarið er fíaskó, og það er ekki til að bæta skapið, að kaffi, sykur og tóbak er gengið til þurrðar — og bannsett þokan í ofanálag. En ekkert fær á Hlölla. Glaðværð hans og áhyggjuleysi er ódrepandi. Gegnum þokuna berst dill- andi rödd hans, söngur um suðrænar meyjar og allar syndimar sem hann hefur drýgt með þeim. Svo skipast veður í lofti —- skyndilega eins og ætíð við heimsskautsbaug- inn. Þruma sprengir himininn; loftið yfir Thule tætist sundur. Glampa slær á blauta brúna og snöggur skjálfti fer um fúnar máttarstoðir skipsins. Regnið streymir niður eins og hellt sé úr fötu, steypist eins og foss með. skruðningi ofan af bátadekkinu, fram hjá eldhúskýrauganu, niður á dekkið. Og ein og ein alda, lotulöng og gráðug, byltir sér inn yfir borðstokkinn og sleikir græðgis- lega allt sem fyrir er, járn tré og gler. Önnur þruma splundrar loftinu, annar glampi — og það verður albjart í eldhúsinu. Nikolja hættir andartak að hnoða deigið, lítur upp — hlustar. „Það er að koma haust," segir hann þreytulega. „Það er að koma haust, hvuti litli," — tekur síðan aftur til við deigið. Kaldur gustur fór um garðinn og feykti fölnuðum laufblöðum og bréfarusli á leiðið. Ég hrökk við og vaknaði til sjálfs mín. Það var orðið dimmt og hafði kólnað. Kveikt hafði verið á ljóstýrunum í garðinum og daufa skímu lagði á skakkan krossinn, ruslið og arfann. Ég hreinsaði burt mesta ruslið, en það gagnaði lítið. Við hlið dýru leg- steinannna var leiði Nikolja eftir sem áður jafn fátæklegt. Hér var ekkert meira að gera. Ég snart krossinn lauslega í kveðjuskyni og hélt á braut. Þá fór þytur um garðinn, og ég heyrði rödd bergmála í fjarska. Það var Nikolja að kalla. „Þannig á að taka þá, hvuti litli, leiftursnöggt, þá eru þeir varnar- lausir!" Ég nam staðar og svipaðist um — en það var ekkert að sjá. Kyrrð og friður ríkti í garðinum —■ og það var rétt svo að ég gat greint litla trékrossinn inn á milli stóru fallegu legsteinanna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Árbók skálda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.