Árbók skálda - 01.12.1956, Page 101

Árbók skálda - 01.12.1956, Page 101
Thor Vilhjctlmsson: Saga þar sem ekkert gerist Þau lágu í sandinum á strönd hins margauglýsta Miðjarðarhafs. Helztu litir eins og vænta mátti blátt og gult. Var ekki sjórinn blár og hlaut ekki sandurinn að vera gulur? Hver tæki mark á sögu um suðræna baðströnd án þeirra lita? Himinninn blár. Ekki ský. Þau liggja þar án þess nokkuð gerist. Um morguninn höfðu þau komið á eyna Mallorca með litlu hvítu skipi frá Barcelona. Alla nóttina var siglt. Um nóttina hafði reykurinn úr gulum stromp- inum flaksazt hvítleitur út' í hið þykka myrkur sem var svo svart. Um morgun- inn stóðu þau í stefni og horfðu á ferðalög flugfiskanna sem stukku upp úr sjónum að fá sér lífsloft og tvo höfrunga rétt framan við skipið sem döðruðu við stefni þess eins og geðbilaður tugthúslimur að bera smyglað rakblað að slagæð sinni. Þar var ein kona með kastaníubrúnt hár (og örlaði fyrir rauðri glóð í því líkt og í kolum á ami þar sem eldsins líf dvínar) tekið saman í hnakkanum, augu blá í sólbrúnu andliti, það var lítið svo manni datt í hug þau litlu höfuð sem byggja upp orðstír hausaveiðaranna í Amazonfrumskógi; en varirnar voru þykkar. En í þesum bláu augum leyndist bjartur tregi eins og í mynd eftir Botticelli. Hún var í hvítri silkiskyrtu sem sýndi brjóstin, hve lítil og há og hve ung. Langur mjór hálsinn renndi sér hæversklega og mjúklega í rauðan klút sem leðurhólkur hélt saman. Og hún var í svörtu síðú pilsi sem náði niður á mjóaleggina, mjaðmarýr og grönn. 1 brúnum ilskóm úr leðri, roðaðar neglur á tám. Einn hæfileika hafði þessi kona: að þegja á þann hátt að maðuxinn ímyndaði sér að hún væri að hlusta á hann, — og vera ósýnileg í nálægð sinni ef einhverjum væri þægð í því. Þetta var ein af hinum frægu menntuðu stúlkum frá Bandaríkjum Ameríku: og hafði yfir sér þann hreinlætisblæ sem jaðrar stundum við gerilsneyðingu. Allt svo hreint og þrifið og snyrt og snurfusað. Það liggur við að allt jarð- neskt hafi verið skrubbað burt, en er þá allt himneskt? Eins og sálirnar sem sleppa upp úr hreinsunareldinum til himna. Hvað er eftir? Þú hugsar: col- gatetannsápa, þú hugsar ilmvatn Chanel fimm, naglalakk Dupont, deodor- ant odorono (leitið sérfræðings ef þér hafið þráláta fílapensla eða ofholdgun). En hefur þér gleymzt að kannski er þama kona sem hefur ekki fundið sína heitu nótt. Draumurinn hefur grafizt eins og bannlýst þrá. En hinar heims- frægu lyktir víkja einstaklingunum til hliðar, um sinn. Maðurinn sem fylgdi henni var rauðbirkinn og freknóttur með ljóst hár,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Árbók skálda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.