Félagsbréf - 01.07.1956, Page 11
FÉLAGSBRÉF
9
rússnesku kommúnistanna og Rauða
hersins með aðstoð innlendra föður-
landssvikara og Stalinista. Hann seg-
ir:
„I orði kveðnu — til þess að eyða
hinum fasistisku innrásarmönnum —
settu kommúnistaflokkar þessara
landa á laggirnar víðtæk andfasist-
isk sambönd, samkvæmt ráðum og
fyrirmælum, sem þeim voru gefin af
félaga Stalin. Þessi sambönd tóku
til smábændá, bórgara og í stuttu
máli allra, sem fengnir urðu í fé-
lagsskápinn vegrta haturs á Hitler
og reiðubúnir til að taka upp bar-
áttu fyrir frelsi lands síns“.
Þessi sambönd voru með öðrum
orðum varpa, sem kommúnistar
drógu til þess að veiða í alla þá,
sem báru í brjósti liatur til fasista
og nazista, en sem þeir frá önd-
verðu tetluðu sér að nota eingöngu
til þess að kúga þessar þjóðir undir
yfirráð kommúnista.
Og livernig voru svo fulltrúarnir
valdir til þessa bráðabirgðaþjóð-
fundar, sem stóð að baki liinni ung-
versku bráðabirgðastjórn"? Þeir voru
valdir af liinum svokölluðu þjóð-
nefndum, en þær voru valdaráns-
tæki, sem kommúnistar notuðu mjög
í Austur-Evrópu eftir hrun Þýzka-
lands. Kommúnistar komu þeim upp
í öllum þessum löndum í skjóli
Rauða hersins og hvarvetna tóku þær
sér héraðsstjómarvöld og lögroglu-
vald. Þar sem Rauði herinn, sem
hafði sín ákveðnu fyrirmæli um al-
gera undirokun þessara landa, vakti
yfir öllum framkvæmdum, liggur það
í hlutarins eðli, að kommúnistar og
handbendi þeirra höfðu yfirtök í
liverri „þjóðnefnd" að heita mátti.
En þó ekki algerlega. Þjóðfundur-
inn varð að vísu mjög litaður þjónk-
un og hollustu við kommúnista, en
borgaralegir flokkar og lýðræðis-
sinnár áttu þó allmyndarlegan hóp
þjóðfundarmanna, sem neituðu að
beygja sig fyrir þvingunum Rauða
hersins. Þetta varð til þess, að með-
limum Debrecen-stjórnarinnar var
harðbannað að koma inn á, eða
hlutast til um mál á „athafnasviði"
Rauða hersins. Stjórnin liafði aðeins
mjög takmörkuð Völd á „baksvið-
inu“, þar sem Rauði herinn þóttist
hafa unnið 'verk sitt til fulls. Hins-
vegar höfðu „þjóðnefndir“ kommún-
ista frjálsar hendur til þess að reka
Sovét-áróður sinn, hvar sem var í
landinu. Með aðstoð þeirra var
pólitískri lögreglu hvarvetna komið
á fót og tólc hún unnvörpum hönd-
um þá, Sem sakaðir voru um sam-
vinnu við fasista og nazista. Stóð
hún um þetta starf sitt beint undir
yfirráðum upplýsingaþjónustu Rauða
hersins. Að sjálfsögðu tók hún og
höndum fjölda manns, sem algerlega
voru saklausir af þessháttar sam-
vinnu, og voru þá einkum tíndir úr
þeir, sem líklegastir þóttu til and-
spymu gegn kommúnistum. Hinsveg-
ar gerðist nú samtímis það ldálega
fyrirbrigði, áð ýmsir ósvífnustu
slagsmálahundar og gróðabraskarar
úr hópi Nazista sóra ákaft af sér
alla hollustu við íjttí félaga og voru
með fögnuði og stolti teknir inn í
Kommúnistaflokkinn. Pólitíska lög-
reglan ungverska var t.d. að miklu
leyti mönnuð fyrrverandi nazistum,
enda treystu kommúnistar þeim auð-
sæilega bezt til hryðju- og glæpa-
verka þeirra, sem vinna skyldi.