Félagsbréf - 01.07.1956, Síða 17
FÉLAGSBRÉF
15
Bela Kovacs - píndur Kommúnistar rœna syni Nagys fjögra ára
\il að játa og líflátinn. og liafa í lialdi til aS beygja föður hans.
ákæran um samsæri gegn ungversku
stjóminni gleymd.
Ameríski fulltrúinn í hemáms-
nefndinni kraföist þess, að nefndin
fengi öll tækifæri til þess að rann-
saka alla málavöxtu í sambandi við
handtöku Kovacs. Því var gersam-
lega neitað, og sömu útreið fengu
svipuð tilmæli af hálfu brezka full-
trúans. Rökin vom þau, að þriggja
velda rannsókn í þessu máli væri
„ruddalegt brot á löglegum rétti
ungverskra alþýðudómstóla og óvið-
eigangi takmörkun á löglegum rétt-
indum Sovétskra hernámsyfirvalda".
Bela Kovacs varð fyrsta fómar-
dýrið, en annars var atlögunni fyrst
og fremst stefnt að Ferene Nagy.
Nagy, sem ennþá var talsmaður vin-
samlegrar stefnu í garð Sovétríkj-
anna, fór í leyfi til Sviss 18. maí,
fullviss um þaö, aS engin sérstök
hætta væri á ferðum. Þetta var þó
ærið gálausleg ráðstöfun, því að í
fjarveru hans hafði varaforsætisráð-
herrann, Rakosi, raunverulega allt
ráS stjómarinnar í hendi sér.
Sjálft rothöggiö á Smábænda-
flokkinn féll 30. maí. Þá vom birtar
ákærur á Nagy forsætisráðherra,
reistar á „játningum", sem Kovacs
átti að hafa gert í fangelsinu. Sam-
kvæmt þeim var forsætisráðherrann
riðinn við samsæri — gegn sinni
eigin ríkisstjórn — og virtust allir
nema kommúnistar sjá, hvað ákæran
var afkáralega aulaleg.
Stjóm Smábændaflokksins geröi
foringja sínum þegar viSvart og
lagði fast að honum að hverfa þeg-
ar heim og svara þessum fáránlegu
staðleysum. En 2. júní sagði Nagy
af sér ráðherraembætti og þvertók
fyrir aS fara til Ungverjalands. Olli
þaS vinum hans ýmsum og flokks-
mönnum sárum vonbrigðum.
En í þessu máli öllu kom vélræða-
tækni kommúnista harla vel í ljós,
eins og hún er í eðli sínu. Er þess
þá fyrst að geta, að kommúnistar
tóku fjögra ára gamlán son Nagys
og héldu honum sem gísl, en létu