Félagsbréf - 01.07.1956, Síða 24
22
FÉLAGSBRÉF
um morðin í Katyn og kenndi Þjóð-
verjum um þau, en sakaði jafnframt
Pólverja í London um að vera í
samvinnu við Hitler. 26. apríl sleit
Sovét-stjórnin stjórnmálasambandi
við útlagastjórnina í London. Skjöl,
sem síðan liafa komið í ljós, sanna
ótvírætt sök Rússa í þessum hrylli-
lega glæp og bendir allt til þess, að
Stalín hafi sjálfur gefið fyrirskip-
unina um morðin. Voru 4000 lík
grafin upp í Katyn og sannaðist, að
liér voru pólskir liðsforingjar, en um
þúsundir annarra, sem hurfu á veg-
um Sovét-yfirvalda, er ennþá ókunn-
ugt með öllu.
Raunverulega var Sovétstjórnin
harðánægð með þessi málalok, því að
hún hafði náð þeim tilgangi sín-
um að varpa skugga á stjórnina í
London og þóttist liafa gilda ástæðu
til fjandskapar við hana.
Næsta liöfuðviðfangsefni Moskvu-
manna var að eyðileggja þann þjóð-
ræknisanda og ættjarðarást, sem
ennþá lifði í þeim leifum pólska
hersins, sem af hafði tórt ófarir Pól-
lands. Þetta varð ekki gert með öðru
en því að handtaka eða láta drepa
svo marga sem auðið væri af hinum
gömlu, reyndu liðsforingjum, sem
enn voru eftir, og veikja eftir megni
heimavamarliðið, sem var öflug
hreyfing, sem hlýddi útlagastjóm-
inni í London. Leiðtogi pólsku neð-
anjarðarlireyfingarinnar var Tadeusz
Bor-Komorowski, hershöfðingi, er
síðar varð víðkunnur maður sem
Bor hershöfðingi. Hann hafði undir
stjóm sinni harðsnúnar og mæta vel
skipulagðar neðanjarðarsveitir út um
allar byggðir hins hemumda Pól-
lands, og ollu þær nazistum mörgum
þungum búsifjum. í Warsjá stýrði
hann einnig ágætlega æfðri léttvopn-
aðri leynisveit.
22. júlí 1944 tók „þjóðfrelsisnefnd-
in“ í Lublin, sem skipuð hafði verið
og studd á laggirnar að undirlagi
Bor hershöfðingi.
Rússa, alla borgaralega stjóm lands-
ins í sínar hendur. Þetta var auð-
vitað lielber lögleysa. En viku síðar
átti Rauði herinn ekki ófarna til
Warsjár nema 10—15 km.
29. júlí útvarpaði aðalstöð Rússa
í Moskvu áskorun til pólsku þjóðar-
innar um uppreisn gegn Þjóðverj-
um í Warsjá. Askomnin var birt í
nafni Osobka-Morawski, kunnugs
Moskvudindils og meðlims í Lublin-
nefndinni. Næsta dag var samhljóða
áskorun birt í Moskvuútvarpinu, og
heitið fast á Pólverja að varpa af
sér oki nazista. Þessar áskoranir
taldi Bor liersliöfðingi að táknuðu
það, að Sovétherinn myndi sam-
stundis koma til hjálpar, ef neðan-
jarðarhreyfingin pólska hæfist handa
og gripi til vopna.