Sveitarstjórnarmál - 01.06.1975, Blaðsíða 23
5. ÁRSFUNDUR
HAFNASAMBANDS
SVEITARFÉLAGA
5. ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga var haldinn í húsa-
kynnum Iðnaðarjmannafélags
Hafnarfjarðar 15. nóvember 1974.
Fundinn sátu 54 fulltrúar, 32 frá
44 aðildarhöfnum sambandsins og
22 gestir. Þar á meðal voru Hall-
dór E. Sigurðsson, samgönguráð-
herra, Brynjólfur Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri, og Aðalsteinn Júlíus-
son, hafnamálastjóri.
Formaður Hafnasambandsins,
Gunnar B. Guðmundsson, stýrði
fundinum og aðstoðarfundarstjóri
var Einar Þ. Mathiesen, formaður
hafnarnefndar í Hafnarfirði. Fund-
arritari var Jóhann Klausen, bæj-
arstjóri, og honum til aðstoðar
Unnar Stefánsson, ritstjóri.
Aldrei fleiri flutningaskip
en 1974
í setningarræðu sinni á fundin-
um sagði Gunnar B. Guðmundsson
m. a.:
„Frá því við hittumst síðast á
ársfundi Hafnasambandsins fyrir
rúmu ári, hefur hinn hagstæða byr
til siglingar þjóðarskútunni laegt.
Útflutningsútvegirnir hafa komizt
í erfiðleika, gengi krónunnar hef-
ur verið breytt og vart hefur orðið
söluerfiðleika á útflutningsafurð-
um. Enn hefur þó andblær hins
hagstæða byrjar borið til landsins
um 37 fiskiskip, samtals 9.326 brl.
og 12 flutningaskip, samtals 10.381
brl. eða alls 19.701 brl.
Árið 1973 voru alls skráð 70 ný
skip, en 39 afmáð af skipaskrá.
Skipum fjölgaði því um 31, sam-
tals að stærð 8 þús. brl. Hefur
aldrei á svo skömmum tíma orðið
önnur eins aukning í flutninga-
skipastólnum eins og á yfirstand-
andi ári.
Þessi gífurlega aukning byggðist
á óeðlilegu kaupæði fram eftir ár-
inu og þar af Ieiðandi óraunhæfri
eða a. m. k. skammvinnri flutn-
ingsþörf, sem notuð var til þess að
knýja á um leyfi til skipakaupa.
Sökum ónógrar aðstöðu eða starfs-
liðs til afgreiðslu í landi lágu mörg
þessara skipa dögum og vikum sam-
an í höfn, lilaðin vörum og biðu
losunar.
Fjöldi þessara skipa er nú orðinn
verkefnalaus hér innanlands, en
kannski tekst með þessu að byggja
upp kaupskipaflota, er leitar er-
lendra markaða.
Mikinn hluta flutningavandans
s. 1. sumar hefði verið unnt að leysa
með því að verja andvirði l/2 skips
til þess að reisa hafnarskemmur, t.
d. í Reykjavík og á Akureyri, og
þar með auðvelda uppskipun, hraða
afgreiðslu og auka nýtingu skipa-
stólsins. Sem dæmi má nefna, að 4
skip anna sama flutningsmagni á
ári eins og 5 skip, ef ferðatíminn
er styttur úr 17 dögpim í 14 daga."
Meiri hagsýni af hálfu
hins opinbera
„Ég gat þess við setningu síð-
asta ársfundar, að lítils samræmis
gætti í kaupum fiskiskipa til lands-
ins og úrbótum á þeirri aðstöðu,
sem skipum þessum er ætluð í
höfnum landsins. Því miður hefur
lítil breyting orðið þar á til batn-
aðar, ef nokkur. Nauðsynlegt er,
svo nátengd sem skip og hafnir
Séð yfir fundarsalinn í Iðnaðarmannahúsinu I Hafnarfirði. Lengst tilvinstri út við glugga sitja Bergsteinn Gizurarson, verkfrœðingur og
Daníel Gestsson, yfirverkfræðingur á Hafnamálastofnuninni, og fremsMr við borðið sitja þeir Pétur Bjarnason, hafnarstjóri á Akureyri og á
móti honum Jóhann Klausen, bæjarstjóri á Eskifirði.
SVEITARSTJÓRNARMÁL