Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 11
NÝJUNGAR í ATVINNULÍFINU
Unniö viö upptöku á gulrótum í októbersól. Ljósm. Hafsteinn Jóhannesson.
Lífrænt samfélag — ný
þróunarstefna
Viðbrögð Mýrdœlinga við skipbroti hefðbundinnar
byggðastefiiu og kreppu í landbúnaði
Gunnar Agúst Gunnarsson, verkefnisstjóri þróunarverkefnis-
ins „Lifrœnt samfélag“
Það skiptast á skin og skúrir í at-
vinnulífi Mýrdælinga líkt og hjá
flestum öðrum. Ovissa um framtíð-
ina setur meir en oft áður mark sitt á
mannlíf í strjálbýlinu. Megindrættir
í þeirri mynd sem íslenskar byggða-
fréttir færa okkur eru þessir: Traust
manna á árferði, veðurfar, gæftir- og
opinbera fyrirgreiðslu; vonin um
skjótfengið happ, aflahrotu, góðan
þerri eða rífleg framlög til fram-
kvæmda úr opinberum sjóðum; fé-
lagsleg einangrun og fábreyttar ný-
sköpunarhugmyndir; ósjálfstæði og
bjargarleysi byggðanna. Þótt þessi
mynd sé vissulega ýkt hefur engu að
síður hægt og rólega sigið á ógæfu-
hliðina hjá fjölda byggðarlaga. Mið-
stjómarvald ríkisins og langvarandi
samdráttur í frumatvinnuvegum
þjóðarinnar - landbúnaði og sjávar-
útvegi - hafa kynt undir eyðingar-
eldinn á landsbyggðinni. Nýjar
framleiðslugreinar hafa öðru hverju
skotið upp kollinum, oft fyrir tilstilli
hins opinbera. Oftar en ekki hafa þó
slíkar tilraunir endað með ósköpum,
257