Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Síða 16
UMHVERFISMÁL
ítarleg framkvæmdaáætlun í um-
hverfis- og þróunarmálum
Umhverfisráðuneytið hefur hafið
undirbúning að gerð ítarlegrar fram-
kvæmdaáætlunar í umhverfis- og
þróunarmálum.
Framkvæmdaáætlunin skal gerð á
grundvelli skýrslu um stefnu ríkis-
stjórnarinnar í umhverfismálum, sem
kynnt var í mars sl. og ber heitið „Á
leið til sjálfbærrar þróunar".
Til þess að vinna að gerð þessarar
framkvæmdaáætlunar hefur ráðu-
neytið m.a. skipað sjö starfshópa og
á sambandið fulltrúa í fjórum þeirra.
Starfshópur um úrgangsmynd-
un, sorphiröu og meöferö spilli-
efna
Starfshópur um úrgangsmyndun,
sorphirðu og meðferð spilliefna hef-
ur það verkefni að skilgreina sjálf-
bæra þróun í þessum málaflokki, að
setja honurn markmið til skenrmri og
lengri tíma og að semja fram-
kvæmdaáætlun í umhverfis- og þró-
unarmálum til aldamóta. Starfshóp-
urinn á að ljúka störfum eigi síðar en
í mars 1994.
Formaður starfshópsins er Sigur-
björg Sæmundsdóttir, deildarstjóri í
umhverfisráðuneytinu, en af hálfu
sambandsins hafa Guðrún Hilmis-
dóttir verkfræðingur og Ingvar Ingv-
arsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, ver-
ið tilnefnd í starfshópinn.
Umhverfismál og byggöarþróun
Annar starfshópur ráðuneytisins
hefur til umfjöllunar umhverfismál
og byggðarþróun. í þann starfshóp
skipaði stjórn sambandsins Guðrúnu
Zoéga, borgarfulltrúa í Reykjavík, og
Kristján G. Magnússon, hrepps-
nefndarnrann í Vopnafjarðarhreppi.
Formaður starfshópsins er Jón
Gunnar Ottósson, skrifstofustjóri í
umhverfisráðuneytinu.
Umhverfismál, feróa- og
samgöngumál
Þriðji hópurinn ræðir umhverfis-,
ferða- og samgöngumál. í þann hóp
tilnefndi stjórn sambandsins Þórunni
Gestsdóttur, ritstjóra í Reykjavík, og
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóra í
Vestmannaeyjum. Formaður starfs-
hópsins er Þórhallur Jósepsson,
deildarstjóri í samgönguráðuneyt-
inu.
Umhverfismál, iönþróun og
orkumál
Fjórði hópurinn hefur til meðferð-
ar umhverfismál, iðnþróun og orku-
mál. Fulltrúar sambandsins í starfs-
hópnum eru Eiríkur Finnur
Greipsson, oddviti Flateyrarhrepps,
og Jóhanna Reynisdóttir, sveitar-
stjóri Vatnsleysustrandarhrepps.
Formaður starfshópsins er Jón Ingi-
marsson, skrifstofustjóri í iðnaðar-
ráðuneytinu.
Einn hinna hópanna fjallar um
búnaðarmál og fræðslu. Fornraður
þess hóps er Sigurður Á. Þráinsson,
upplýsingafulltrúi í umhverfisráðu-
neytinu. Annar þeirra fjallar um um-
hverfismál og landbúnað og er for-
maður Sveinbjörn Eyjólfsson,
deildarstjóri búnaðarsviðs í landbún-
aðarráðuneytinu, og sá þriðji ræðir
umhverfismál og sjávarútveg og er
formaður þess hóps Halldór Árna-
son, aðstoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra.
Guðlaugur Gauti Jónsson, deildar-
sérfræðingur í umhverfisráðuneyt-
inu, er starfsmaður allra hópanna.
Sveitarstjórnir nýti
lögleyfðar heimildir til að
koma í veg fyrir að slæleg
umgengni spilli umhverfi
Á aðalfundi Landssambands kúa-
bænda, sem haldinn var á Blönduósi
23. og 24. ágúst sl., var samþykkt
svofelld tillaga sem beint var til
sveitarfélaga um land allt:
„Aðalfundur Landssambands kúa-
bænda 1993 lýsir ánægju sinni með
þann árangur sem náðst hefur í að
bæta umgengni á bændabýlum. Því
nriður má þó í flestum sveitum sjá bæi
þar sem misbrestur er á þessu. Fund-
urinn telur að sterkasta vopn bænda í
baráttunni um hylli neytenda sé
hreinleiki íslenskra landbúnaðaraf-
urða og að góð ímynd sveitanna í
hugum þeirra hljóti að vera forsenda
fyrir árangri á því sviði. Það er því alls
ekki einkamál landeigenda hvernig
umgengni er háttað. Því skorar fund-
urinn á sveitarstjórnir að nýta þær
heimildir laga, sem fyrir hendi eru, til
að koma í veg fyrir að umhverfi
spillist af völdum slælegrar um-
gengni."
262