Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 18
UMHVERFISMÁL
Frá Hólmavík. Ljósm. Stefán Gislason.
Hugmyndir heimamanna
Stefán Gíslason, sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps
Sorpmálin hvíla þungt á okkur
sveitarstjórnarmönnum um þessar
mundir. Með vaxandi sorpmagni og
auknum kröfum um hollustu við
meðferð og eyðingu á sorpi verður
þessi málaflokkur sífellt erfiðari við-
fangs og - það sem okkur finnst verst
af öllu - dýrari.
Baráttan viö sorpið
Ýmsum kann að finnast að okkur,
hvort sem það er „okkur Hólmvík-
ingum“, „okkur Vestfirðingum“ eða
„okkur íslendingum“, hafi lítið orðið
ágengt í baráttunni við sorpið. Samt
væri verulega ósanngjarnt að halda
því fram að við höfum setið aðgerða-
laus og horft á sorpið hrúgast upp.
Þvert á móti er mikil vinna í gangi í
þeim tilgangi að finna sem bestar og
hagkvæmastar lausnir á þessum
vanda. I því sambandi er nærtækast að
nefna verkefnið sem nú er að hefjast
hér á Vestfjörðum í samvinnu um-
hverfisráðuneytisins, Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga. Einnig er
hægt að benda á ýmis staðbundin
verkefni og framkvæmdir sem miða
að því að leysa sorpvandamál ein-
stakra byggðarlaga.
En um hvað snúast þessi verkefni?
Og eftir hverju erum við að leita? Jú,
við erum að leita að ódýrri og um-
hverfisvænni leið til að losa okkur við
allt það sorp sent til fellur. Þetta er
yfirleitt gert annaðhvort með urðun
eða brennslu. En er ekki hugsanlegt
að við höfum vanrækt rannsóknir á
rótum vandans? Hvað er allt þetta
dómadags rusl eiginlega að gera í
sorppokum hjá venjulegu fólki? Væri
ekki nær að leita leiða til að létta að-
eins á sorppokunum, draga úr magn-
inu sem í þá berst? Þá yrði eftirleik-
urinn alla vega auðveldari og - það
sem okkur finnst best af öllu - ódýr-
ari!
Hvar á að spila vörnina?
Baráttan við sorpið er varnarbarátta
og fram til þessa höfum við kosið að
spila vömina aftarlega. En er ekki
sagt að sókn sé besta vörnin? Væri
264