Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 19

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 19
UMHVERFISMÁL ekki ráð að spila vörnina framar? Til að einfalda málið, eða e.t.v. til að flækja það, getum við skipt að- gerðum í vörninni í þrjá flokka: • í fyrsta lagi: Aðgerðir sem miða að því að minnka umfang þess sorps sem til fellur. • í öðru lagi: Aðgerðir sem miða að því að sem minnstur hluti þess sorps, sem fellur til, þrátt fyrir aðgerðir í fyrsta flokki, fari óflokkaður hina al- mennu sorpeyðingarleið, þ.e. í urðun eða brennslu. • í þriðja lagi: Aðgerðir sem miða að því að eyðing þess sorps, sem fer hina almennu sorpeyðingarleið, þrátt fyrir aðgerðir í öðrum flokki, valdi sem minnstum umhverfisspjöllum og komi að sem mestu gagni, ef um gagnsemi getur verið að ræða. Minni úrgangur? Eins og áður hefur komið fram höfum við sinnt lítt um fyrsta flokkinn af þessum þremur. Ef okkur tækist hins vegar að finna leiðir til að létta verulega á sorppokum heimilanna, eins og ég orðaði það hér áðan, myndi það í senn hlífa umhverfi okkar og spara verulega fjármuni. En hvað er í sorppokunum? Eflaust er það mjög misjafnt eftir heimilum, en sennilega fer þar mikið fyrir umbúðum af ýmsu tagi, svo sem utan af mjólk og mjólk- urafurðum. Þessar umbúðir eru gjarn- an úr plasti eða plasthúðuðum pappír, taka mikið pláss og henta illa til end- urvinnslu. Væri ekki ráð að setja á stofn sérstakan starfshóp til að kanna möguleika á að draga úr þessu urn- búðafargani, ásamt því að telja neyt- endum trú um að hægt sé að verulegu marki að komast af án þessara um- búða. Ef við stöldrum aðeins lengur við mjólkurafurðaumbúðirnar, þá hefur greinilega orðið ör þróun á því sviði á síðustu mánuðum og árum. Þessa þróun má kenna við framfarir, um- búðirnar henta neytendum afar vel, og enginn sem reynt hefur þarf að efast um gæði innihaldsins. I hverri plast- dollu er hæfilegur skammtur í eina skyndimáltíð og e.t.v. fylgir kornmeti með í sérstöku plasthólfi. Þægindin eru augljós, en eftir situr spurningin um það hversu lengi við höfum efni á þægindum af þessu tagi. Því má svara til að þessar umbúðir séu ekkert svo dýrar, og eflaust er það rétt, enda snýst spurningin ekki um það, heldur um það hversu lengi við höfum efni á þægindum af þessu tagi út frá um- hverfissjónarmiðum. Mjólkurafurðaumbúðir eru auðvit- að ekki það eina í sorppokunum. Þar er einnig að finna aðrar einnota um- búðir af ýmsu tagi; ávaxtabakka úr einangrunarplasti, eggjabakka úr ein- angrunarplasti, tómar fiskbollu- og ávaxtadósir, svo eitthvað sé nefnt - að ógleymdum bréfbleiunum sem eyðast upp til agna í náttúrunni á svo sem 500 árum. Það væri óhófleg bjartsýni að halda að allir þessir hlutir geti horfið af sjónarsviðinu á næstunni, en einhverjum árangri hlýtur að vera hægt að ná með samstilltu átaki. Meiri flokkun? Víkur nú sögunni að aðgerðum í öðrum flokki, þ.e. aðgerðum sem miða að því að sem minnstur hluti þess sorps, sem fellur til, þrátt fyrir allt, fari óflokkaður hina almennu sorpeyðingarleið, í brennslu eða urð- un. I þessu sambandi má m.a. velta fyrir sér afdrifum lítilla glerflaskna og krukkna, svo sem undan tómatsósu, kardimommudropum, C-vítamín- töflum, matarolíu, marmelaði, barna- mat, Neskaffi eða bara hverju sem er, öðru en drykkjarvörum. Þessar um- búðir fara gjarnan í ruslið, nema sá hluti þeirra sem fær nýtt hlutverk á saft- og sultuframleiðsluheimilum. Allar þessar dollur mætti endurnýta ef til væri kerfi sem tæki við þeim og kæmi þeim aftur til framleiðenda við- komandi vöru. Þetta kann svo sem að virðast fjarstæðukennt, en í raun er jafn einfalt eða flókið að koma tómum umbúðum frá neytendum til fram- leiðenda, eins og það er að koma vör- um í þessum sömu umbúðum frá framleiðanda til neytenda. Aðferóirnar í Árslev Hvað varðar sorpflokkun og að- gerðir til að draga úr magni þess sorps, sem eyða þarf með urðun eða brennslu, getum við lært mikið af reynslu nágrannalandanna, og að sjálfsögðu höfum við þegar lært sitt af hverju. Á síðasta hausti heimsótti ég ásamt fleiri Hólmvíkingum vinabæ- inn Árslev í Danmörku. Þar er lands- lagið eins frábrugðið vestfirskum fjöllum og hugsast getur og þröngbýli mikið á okkar mælikvarða. Á slíkum stöðum komast menn ekki hjá því að leggja verulega mikið á sig til að sorpvandinn vaxi þeim ekki yfir höf- uð í orðsins fyllstu merkingu. Forsvarsmenn verktakafyrirtækis, sem sér um sorphirðu í Árslev og víðar, sögðu okkur frá því að aðeins um 15% af því sorpi, sem þar fellur til, væru urðuð. Allt hitt, þ.e. 85% af sorpinu, er endurnýtt með einhverjum hætti. Á malbikuðu gámasvæði í Árslev standa um það bil 15 gámar, þar sem fólk getur losað sig við tiltekinn úr- gang. Þar er m.a. sérstakur gámur fyrir einangrunarplast, annar fyrir venjulegt plast, enn annar fyrir pappa, einn fyrir pappír og dagblöð, einn fyrir mold og grjót, einn fyrir steypu- brot, einn fyrir tígulstein og einn fyrir timbur svo eitthvað sé nefnt. Á gámasvæðinu eru einnig ílát fyrir tómar flöskur og gríðarstór haugur fyrir hvers konar garðúrgang. Fyrr- nefnt verktakafyrirtæki hefur einnig á sínum vegum sérstakan sendiferða- bíl til móttöku á spilliefnum. Ungar konur með háskólapróf í efnafræði aka um sveitarfélagið á þessum bíl og heimsækja hvert einasta heimili fjór- um sinnum á ári til að taka við spilli- efnum sem falla þar til. Og sé fjöl- skyldan ekki heima koma þær bara aftur eftir nokkra daga. Að sögn for- svarsmanna fyrirtækisins hefur þessi aðferð skilað margföldum árangri á við hina hefðbundnu spilliefnamót- töku þar sem fólkið þarf sjálft að koma efnunum á móttökustað. Nú, og ef Danirnir eru orðnir leiðir á sófa- settinu sínu, þá fara þeir ekki með það út á hauga og horfa á það brenna til að það lendi ekki hjá vandalausum, heldur hringja þeir í endurnýtingar- þjónustuna, sem sækir viðkomandi hlut heim og kemur honum í næstu „Genbrugs“-verslun. Nú er auðvitað ekkert sjálfgefið að við getum notað aðferðir Árslevbúa óbreyttar á Vestfjörðum. Bæði eru landfræðilegar aðstæður afar ólíkar eins og áður hefur komið fram, og þess ber líka að gæta að í Árslev búa 265

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.