Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Qupperneq 21
UMHVERFISMÁL
veldara fyrir að losa sig við þennan
úrgang, svo sem með því að setja upp
litla brotajárnsgáma inni í íbúðar-
hverfum.
4. Landbúnaöarplast
Af eðlilegum ástæðum fellur ekki
til mikið af landbúnaðarplasti né
rúllubaggaplasti í Hólmavíkurhreppi,
en öðru máli gegnir um nærliggjandi
sveitarfélög. Oddviti Hólmavíkur-
hrepps hefur lagt það til að bændur
pakki þessu plasti í bagga og grafí þá
á vísum stað. Síðan yrði plastið grafið
upp þegar fundnar hafa verið heppi-
legar leiðir til að endurnýta það. I
þessu sambandi mætti einnig hugsa
sér að plastböggunum yrði safnað
saman af stærra svæði og þeir
geymdir á einum stað til síðari nota.
Einhverjir bændur hafa þegar
þennan hátt á. Þannig sá ég í vetur
mjög einfaldan heimasmíðaðan búnað
til að pakka rúllubaggaplasti. Þetta
var krossviðarkassi sem bindigarn var
þrætt í. Plastinu var síðan troðið í
kassann og hnýtt fyrir þegar kassinn
var fullur. Þannig fengust þéttir og
snyrtilegir, kantaðir baggar sem stafl-
ast sérlega vel. Baggar af þessu tagi
myndu henta mjög vel til orkufram-
leiðslu í sorpbrennslustöðvum, en
nánar verður vikið að þeim málum hér
á eftir.
5. Útboö og uröun
Þessa dagana er verið að auglýsa
útboð á sorphirðu og sorpurðun á
Hólmavík. Undanfarin ár hefur sorp-
inu verið brennt með misjöfnum ár-
angri við lágt hitastig en nú er ákveðið
að taka upp urðun í staðinn, a.m.k.
fyrst um sinn. Væntanlegur verktaki
mun sjá um alla þætti sorphirðunnar
og sorpeyðingarinnar, þ. á m. allar
framkvæmdir á urðunarstaðnum.
Urðunarstaðurinn verður aðeins opinn
almenningi stutta stund í hverri viku
en sorpgámi valinn staður utan við
hliðið inn á urðunarsvæðið til að auð-
velda fólki að losna við sorp eftir til-
tektir og annað tilstand. Inni í bænum
verða einnig settir upp sorpgámar
annars vegar fyrir óflokkað sorp og
hins vegar lífrænan úrgang. Það er
skoðun hreppsnefndarinnar að með
þessum skipulagsbreytingum muni
umgengni um sorpið batna en land-
rými til urðunar er þó heldur tak-
markað.
6. Brennsla til orkuvinnslu
A Hólmavík er mikill áhugi á þeim
möguleika að nýta orku frá sorp-
brennslu til húshitunar. í því sam-
bandi hefur athyglin einkum beinst að
íþróttahúsinu eða félagsheimilinu
sem þar er nú í byggingu. Sorp-
brennslustöð í nágrenni hússins er
talin geta annað orkuþörf þess ásamt
því að hita upp sundlaug sem hugs-
anlega yrði byggð við húsið. Reyndar
hefur verið reiknað út að orkan frá
sorpi Hólmvíkinga myndi að auki
duga til að kynda svo sem 10 einbýl-
ishús en rétt er að fara varlega í áætl-
anir af því tagi, m.a. vegna þeirra
vandamála sem flutningur orkunnar
hefur í för með sér.
Eins og fram hefur komið er há-
hitabrennslan nýtilkomin sem raun-
hæfur valkostur en ef frumkvöðlum á
þessu sviði tekst vel til má vænta þess
að Hólmvíkingar skoði þennan
möguleika af fullri alvöru á næstu
árum.
Lokaorö
Eg hef hér að framan drepið á ýmis
atriði sem komið hafa upp í umræðum
og vangaveltum Hólmvíkinga um
sorpmál og sagt frá þvf helsta sem þar
er á döfinni í þessum málaflokki.
Dæmin, sem ég hef nefnt, eru þó
engan veginn einstök í sinni röð því
að hvarvetna blasa þessi sömu við-
fangsefni við forsvarsmönnum
byggða. Það er þó von mín að eitthvað
af þessum atriðum geti vakið upp
spurningar og orðið efni í umræður.
Og orð eru til alls fyrst.
Grein þessi er samhljóða framsöguerindi,
sem höfundur flutti á fundi um umhverfismál
sveitarfélaga á ísafirði 26. maí
Umsókn um framlög úr
Framkvæmdasjóði aldraðra 1994
Stjóm Framkvæmdasjóðs aldraöra auglýsir eftir umsóknum
um framlög úr sjóðnum árið 1994. Eldri umsóknir koma aðeins
til greina séu þær endurnýjaðar. Nota skal sérstök umsóknar-
eyðublöð sem fylla ber samviskusamlega út og liggja þau
frammi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Einnig er
ætlast til að umsækjendur lýsi bréflega einingum húsnæðisins,
byggingarkostnaði, verkstöðu, fjármögnun, rekstraráætlun,
þjónustu- og vistunarþörf ásamt mati þjónustuhóps aldraðra
(matshóps) og þar með hvaða þjónustuþætti ætlunin er að
efla.
Umsókn skal fylgja ársreikningur 1992 endurskoðaður af
löggiltum endurskoðanda og kostnaðaryfirlit yfir fyrstu níu
mánuði ársins 1993.
Sé ofangreindum skilyrðum ekki fullnægt áskilur sjóðstjórn
sér rétt til aö vísa umsókn frá. Umsóknir skulu hafa borist
sjóðstjórninni fyrir 1. desember 1993, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 REYKJAVÍK.
V.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra
267