Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 22
UMHVERFISMÁL
Sorporkustöðin að Svínafelli
Ingvar Níelsson verkfrœðingur
Sorporkustöðin að Svínafelli í
Hofshreppi í Austur-Skaftafellssýslu
var formlega tekin í notkun þann 21.
júní síðastliðinn að viðstöddu fjöl-
menni. Þorsteinn Jóhannsson, odd-
viti hreppsins, rakti aðdragandann að
því að ráðist var í framkvæmdir og
lýsti stöðinni. Hermann Svein-
björnsson, framkvæmdastjóri Holl-
ustuverndar ríkisins, ræsti stöðina,
en sérstakt hlutafélag, Brennu-Flosi,
sér um rekstur hennar. Fram-
kvæmdastjóri Brennu-Flosa hf. er
Olafur Sigurðsson, bóndi á Svína-
felli.
Öræfingar tókust á við þetta verk-
efni af sama stórhug og einatt hefir
einkennt þetta 120 manna samfélag
en þeir voru meðal fyrstu Islendinga
sem raflýstu híbýli sín með vatns-
orku úr bæjarlækjunum. Fyrr á öld-
um versluðu Öræfingar ýmist í Þor-
lákshöfn eða á Fáskrúðsfirði og fóru
þá fyrir vatnsföllin á jöklum eða yfir
fjallvegi. Og nú hafa þeir eina ferð-
ina enn „gengið fjallveg" og sett upp
hjá sér snyrtilega sorporkustöð, sem
eyðir öllum úrgangi úr sveitinni og
þjónar jafnframt þjóðgarðinum í
Skaftafelli yfir ferðatímann.
Sorporkuvélin að Svínafelli getur
fargað allt að 180 tonnum á ári af
úrgangi frá heimilum, útgerð, land-
búnaði, verslun, þjónustu og léttum
iðnaði og getur því þjónað 300-350
manna byggðarlagi. Vélinni hefir
verið valinn staður í ónotuðu loð-
dýrahúsi og nam heildarkostnaður
við uppsetningu stöðvarinnar - að
undanskildu kaupverði loðdýrahúss-
ins en framreiknaður á verðlag dags-
ins - rúmum sex milljónum króna.
Stöðin gekk samfellt þessa fyrstu
KRULLAND hringlaga einingasundlaug af sömu gerö og verið er aö setja upp á
Svínafelli.
ferðavertíð og sannaði ágæti sitt í
hvívetna.
I tengslum við sorporkustöðina er
verið að setja upp sundlaug fyrir
ferðafólk, sem hituð verður með
brennslunni, en við förgun á hverju
Sorpmagn i Öræfasveit i kg/viku. Stólparitiö sýnir greinilega áhrif ferðaþjónustunnar á sorpmagnib
268