Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 25

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 25
VERKASKIPTING RÍKIS OG SVEITARFÉLAGA á landi og starfa enn með sama nafni, þótt hlutverk þeirra sé nú með mjög breyttum hætti frá því sem áður var. Þó er ljóst að frá upphafi hefur framfærsluskylda og lítt skilgreind gagnkvæm trygging verið meginhlut- verk sveitarfélaganna, og er svo reyndar enn í dag. Óhætt er að fullyrða að staða sveitarfélaga í íslenskri stjórnsýslu sé býsna trygg. í 77. gr. stjórnarskrárinnar er kveðið á um tilvist sveitarfélaga, en þar segir að rétti sveitarfélaga til þess að ráða sjálf málefnum sínum skuli skipað með lögum. Um sveitarfélög gilda nú lög nr. 8 frá 1986, en þar segir í fyrstu grein að byggðin í landinu skiptist í staðbundin sveitarfélög sem stýra sjálf málefnum sínum á eigin ábyrgð. Akvæði um verkefni sveitarfélaga er síðan aðallega að finna í 6. gr. sveitar- stjórnarlaganna, en þeim má annars vegar skipta í skylduverkefni og hins vegar í valkvæð verkefni. Meginreglan er að sveitarfélögum er skylt að annast þau verkefni sem þeim eru falin í lögum og þeim er skylt að vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbú- anna eftir því sem þurfa þykir á hverjum tíma. Þetta orðalag er býsna víðtækt eins og heyra má. I sveitar- stjórnarlögum eru taldir upp helstu verkefnaþættirnir, svo sem félagsmál, fræðslumál, húsnæðismál, skipu- lags- og byggingarmál svo að fátt eitt sé nefnt, og eru þeir málaflokkar skilgreindir lítillega. Hitt er þó ljóst að allar helstu ákvarðanir og skilgreiningar á skylduverk- efnum sveitarfélaga er að finna í hinum margvíslegu lagabálkum og aragrúa reglugerða sem settar hafa verið um einstaka málaflokka. Valkvæðu verkefnin eru síðan nánast óteljandi. Lagareglan segir einfaldlega að sveitarfélög geti tekið að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þeirra, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum. Tak- mörkin eru þau ein að verkefnið varði íbúa sveitarfé- lagsins og öðrum hafi ekki verið falin úrlausn þess. Sveitarfélög geta t.d. ekki gengið inn á verksvið ríkis- stofnana eða annarra sem löggjafarvaldið hefur falið umsjá ákveðinna mála. Heimildir til sveitarstjórna samkvæmt þessu eru samt sem áður mjög víðtækar, og eflaust má telja það á valdi sveitarstjórnar að meta hvað varðar íbúana og hvað ekki. Gagnrýnin á núverandi skipan Undanfarin ár og jafnvel áratugi hafa farið fram miklar umræður um endurskoðun á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga svo og um endurskipan sveitarstjórn- armála og hafa ýmsar nefndir verið skipaðar til þess að fjalla m.a. um endurskoðun sveitarstjómarlaga og end- urskipan sveitarstjórnarumdæma með hugsanlega sam- einingu sveitarfélaga í huga. Auk þeirra hafa stjórn- skipaðar nefndir starfað til þess að fjalla um tekjustofna sveitarfélaga, verkaskiptingu rfkis og sveitarfélaga í heild svo og skiptingu verkefna í einstöku málaflokk- um. Ef dregin er saman sú gagnrýni, sem fram hefur komið á núverandi fyrirkomulag verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga, má segja að hún felist í fjómm meg- inatriðum: 1) Þar er í fyrsta lagi nefnt að ríkið hafi oft með höndum verkefni sem mun betur væru komin í höndum heimamanna vegna þekkingar þeirra á staðbundnum þörfum og aðstæðum og að sveitarfélögin geti leyst þau verkefni á skilvirkari hátt; 2) I öðru lagi er nefnt að verkaskipting ríkis og sveitarfélaga sé afar óskýr og flókin, mikil vinna sé lögð í margs konar uppgjör milli þessara aðila og að í mörgum tilfellum sé stöðug togstreita og ágreiningur um kostnaðaruppgjör og fjárhagsleg samskipti; 3) I þriðja lagi má nefna að ákvarðanir um fram- kvæmdir eru oft taldar teknar af þeim aðilanum sem ekki ber síðan nægjanlega ábyrgð á stofnkostnaði og rekstri viðkomandi verkefnis; 4) Og í fjórða lagi eru svo sveitarfélögin talin fjár- hagslega ósjálfstæð og of háð ríkisvaldinu. Auka mætti skilvirkni í opinberri stjórn- sýslu I ljósi þeirra vankanta, sem þannig eru taldir á nú- verandi verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, hafa fjögur meginmarkmið verið sett fram, sem hugmyndir um breytingu á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfé- laga byggja á: 1) Þar er fyrst að nefna að sveitarfélögin skuli einkum hafa með höndum verkefni sem ráðast af staðbundnum þörfum og þar sem ætla má að þekking á aðstæðum ásamt frumkvæði heimamanna leiði til betri og skil- virkari þjónustu, en ríkið annist fremur verkefni sem hagkvæmara er að leysa yfir landið í heild; 2) I öðru lagi að gera verkaskiptingu ríkis og sveit- arfélaga skýrari og einfaldari, þannig að hver mála- flokkur falli svo sem frekast er kostur undir annan hvorn aðilann; 3) I þriðja lagi að saman fari frumkvæði, framkvæmd og fjárhagsleg ábyrgð á stofnkostnaði og rekstri; 4) Og í fjórða lagi að sveitarfélögin verði fjárhags- lega sjálfstæð og minna háð ríkisvaldinu en nú er. Þessu til viðbótar hefur nú í seinni tíð komið æ betur í ljós að skipan opinberrar stjórnsýslu hér á landi er engan veginn nægjanlega skilvirk, þannig að taka megi í tíma nauðsynlegar ákvarðanir um stjóm rikisfjármála. Leiða má að því líkur að auka megi skilvirkni í opin- berri stjórnsýslu hér á landi með því að auka hlutdeild sveitarstjórna í opinberum rekstri. Ef litið er til annarra Norðurlanda, vekur sérstaka athygli að sveitarfélögin þar hafa með höndum um tvo þriðju hluta samneysl- unnar, meðan sveitarfélög hér á landi hafa með höndum tæpan fjórðung hennar. Markviss stefna í Evrópuráósríkjum I þessu sambandi er rétt að vekja athygli á skýrslu 271

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.