Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 37
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
sænskir rfkisborgarar, sem eru á íbúaskrá þjóðskrar 1.
september 1993, hver með sínu ríkisfangstákni: Danir
(Færeyingar og Grænlendingar) DK, Finnar FI, Norð-
menn NO og Svíar SE. Kosningarrétt hafa þessir er-
lendir ríkisborgarar því aðeins að þeir hafi átt lögheim-
ili hér á landi í þrjú ár samfellt frá 1. desember 1989.
Þeir danskir ríkisborgarar, sem búsettir voru á Islandi
6. mars 1946 eða höfðu verið hér búsettir einhvern tíma
á síðustu 10 árunum fyrir þann tíma, eiga kosningarrétt
á íslandi þegar þeir dveljast hér, skv. 1. gr. laga nr. 18/
1944, sbr. 1. gr. laga nr. 85/1946. Þeir eru því ekki háðir
skilyrðum um að hafa átt hér lögheimili samfellt í þrjú
ár.
Tekið er fram að ríkisfangstákn kunna að vera röng.
Þannig getur komið fyrir að maður, sem í raun og veru
er erlendur ríkisborgari, sé talinn íslenskur. Sveitar-
stjórnir verða að hafa þetta í huga þegar þær fara yfir
kjörskrárstofninn og gera úr honum fullgilda kjörskrá.
Sama er ef einhver er ekki á kjörskrárstofni af því að
hann er ranglega talinn erlendur nkisborgari á íbúa-
skrá.
3. Niðurfelling manna af kjörskrárstofni
Sveitarstjórn skal strika með bleki yfir línu (nafn og
persónuupplýsingar) allra þeirra sem hún fellir niður af
kjörskrárstofni og um leið skal gefa til kynna með
skammstöfun framan við nöfn hlutaðeigandi hver er
ástæða útstrikunarinnar. Útstrikunum og fyrrgreindum
skammstöfunum þeirra skal haga sem hér segir:
a. Skammstöfum + (krossmerki): Maður á skránni
er látinn.
b. Skammstöfun „e. ísl.“ (= ekki íslenskur ríkis-
borgari): Maður, sem með röngu er talinn ís-
lenskur ríkisborgari á skránni, enda sé ekki um
að ræða norrænan ríkisborgara með kosningar-
rétt.
4. Menn sem bætast á kjörskrárstofn
Nöfn þeirra manna, sem sveitarstjórn telur að bæta
skuli við kjörskrárstofn, skal rita á milli lína meðal íbúa
hlutaðeigandi húss, ef rúm er fyrir þá þar. Ef svo er ekki
skal rita nöfn þeirra aftan við aðalskrána, á sérstakt blað
eða blöð. Slík viðbót við kjörskrá skal vera alveg eins
úr garði gerð og aðalskráin, þ.e. götu- og/eða húsheiti í
stafrófsröð og undir þeim nöfn með þeim upplýsingum
sem eiga að vera á skránni. A þeim stað í aðalskránni,
þar sem maður ætti að vera, skal rita aftan við hlutað-
eigandi húsauðkenni: „Sjá viðb.“
5. Annað
Öll kjörskráreintök, sem tekin eru í notkun, skulu að
sjálfsögðu fá sömu meðferð að því er snertir leiðrétt-
ingar og áritanir.
Hagstofan hefur ekki tök á að láta í té sérstakar kjör-
skrár fyrir einstakar kjördeildir í sveitarfélagi. Séu
kjördeildir fleiri en ein ogjylgi kjördeildarskipting ekki
staðarröð kjörskrár skal fara þannig að: Kjördeildir
skulu auðkenndar með rómverskum tölustöfum í fram-
haldandi röð (I, II o.s.frv.), og síðan skal rita aftan við
hvert húsauðkenni á skránum númer þeirrar kjördeildar,
sem húsið tilheyrir. Þannig hefur verið farið að við
undanfarnar kosningar og gefist vel. Sveitarstjórn má
eins gera nýja kjörskrá fyrir hverja kjördeild kjósi hún
það heldur. Eins og áður segir skulu allar kjörskrár rit-
aðar á kjörskráreyðublöð Hagstofunnar.
V. Kjörfundir
Kjörfundir verða með sama hætti og áður, en þó hefur
sú breyting orðið að kjörfundi skal slíta eigi síðar en kl.
22 á kjördag, sbr. lög nr. 10/1991.
Greiða skal atkvæði með eftirfarandi hætti: Kjósandi
markar með ritblýi kross á atkvæðaseðilinn fyrir framan
þá fullyrðingu sem lýsir afstöðu hans til þeirrar tillögu,
sem sett er fram á atkvæðaseðlinum.
Hagstofan hefur sent eða sendir sveitarstjórnum
nánari leiðbeiningar um atkvæðagreiðsluna á kjör-
fundi.
Umdæmanefndir landshlutasamtakanna hafa ákveðið
í sameiningu að kjörfundir skuli standa hinn 20. nóv-
ember til kl. 22. Kjörstjórn (yfirkjörstjórn) ákveður á
hinn bóginn hvenær kjörfundur hefst. Þótt kjörfundi
verði lokið fyrr vegna þess að allir fbúar á kjörskrá hafa
neytt atkvæðisréttar síns mega kjörstjórnir ekki skýra
frá niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar fyrr en eftir að öll-
um kjörstöðum á landinu hefur verið lokað, þ.e. kl. 22.
Að talningu atkvæða lokinni skal kjörstjórn senda við-
komandi umdæmanefnd niðurstöður atkvæðagreiðsl-
unnar.
VI. Lokaorð
Þurfi sveitarstjórn á að halda fleiri en fjórum kjör-
skráreintökum ætlast Hagstofan til að hún sjálf geri
viðbótareintök af kjörskránni á eyðublöð, sem hún læt-
ur í té til þeirra nota.
283