Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Page 44
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
koma á laggirnar vinnuhópi er móti
tillögur að því hvernig staðið verði
að uppbyggingu vegasamgangna á
Norðausturlandi með tilliti til heils-
árstengingar við samgöngu-
kerfi Austurlands. Verði leitað til
Sambands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi um tilnefningu í slík-
an vinnuhóp. Þá verði þess óskað að
yfirvöld samgöngumála tilnefni einn
fulltrúa í vinnuhópinn."
Starfsemi EYÞINGS
Formaður EYÞINGS flutti í upp-
hafi fundar skýrslu stjórnar, og vara-
formaðurinn, Halldór Jónsson, bæj-
arstjóri á Akureyri, lagði fram
rekstraryfirlit fyrir fyrstu sjö mánuði
ársins. Einnig kynnti hann tillögu að
fjárhagsáætlun fyrir árið 1994 sem
var samþykkt síðar á fundinum.
Niðurstöðutölur hennar eru tæpar 5
millj. króna og tekjur eingöngu frá
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Aætlun
um gjöld miðast við að opnuð verði
skrifstofa og ráðinn starfsmaður í allt
að 50% starf.
í skýrslu stjórnar kom fram að frá
því að EYÞING tók til starfa hefði
stjórnin haldið 16 stjórnarfundi og að
umfangsmesta málið hefði verið ný
skipting landshlutans í sveitarfélög.
Stjórnin var á stofnfundi kjörin til
tveggja ára.
Ávarp og kveðjur
Avarp flutti á fundinum Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, og
ræddi sameiningu sveitarfélaga og
verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga. Kveðjur bárust fundinum frá
Birni Sigurbjörnssyni, formanni
SSNV, frá Fjórðungssambandi Vest-
firðinga, SSA og Hirti Þórarinssyni,
framkvæmdastjóra SASS, og var sú
kveðja þannig:
Framabraut til framtíðar
Fjórðungssamband reisti.
Eyþingi til afreka
engu síður treysti.
Við setningu fundarins bauð for-
maður Áskel Einarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Fjórðungssam-
bands Norðlendinga, sérstaklega
velkominn, en hann var heiðursgest-
ur fundarins.
Fundinn sátu 40 af 49 kjörnum
fulltrúum sem rétt áttu til setu á
fundinum svo og alþingismenn
Norðurlandskjördæmis eystra og
nokkrir aðrir gestir.
Fundarstjórar voru Björn Jósef
Arnviðarson, bæjarfulltrúi á Akur-
eyri, og Sveinn Jónsson, oddviti Ár-
skógshrepps, og fundarritarar Birgir
Þórðarson, oddviti Eyjafjarðarsveit-
ar, og Guðlaug Björnsdóttir. bæjar-
fulltrúi á Dalvík. Þorsteinn Jón-
atansson, fv. ritstjóri, færði fundar-
gerðina til bókar.
Næsti aðalfundur á Raufarhöfn
I lok fundarins bauð Guðmundur
Guðmundsson, sveitarstjóri á Rauf-
arhöfn, að næsti aðalfundur EY-
ÞINGS yrði haldinn á Raufarhöfn á
árinu 1994. Varþvíboði fagnað.
290