Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Síða 46

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Síða 46
ATVINNUMÁL traustan grwm, reisa eina liœð í einu, yfirbyggingin er engin. Aðrir hafa byrjað reksturinn á að taka stórt lán. Þar næst er keyptur stór jeppi, tölva og fín húsgögn á skrifstofuna. Þar er byrjað á að reisa yfirbygginguna og þakið. Síðan hrynur allt vegna þess að grunnurinn er enginn. I fallinu missir fjölskyldan húsnæðið, og jafnvel fleiri nátengdir ættingjar verða fyrir skelli. Þetta er munurinn á uppbyggingu fyrirtækja. Ætli ekki væri betur komið fyrir íslenskri þjóð ef fleiri hugsuðu eins og þær konur sem hafa byggt upp, og munu byggja upp, sín fyrirtæki eins og lýst var hér að framan. Athygli mína vakti hve þær konur sem ég talaði við sögðust vera ánægðar með að geta talað við konu um sín fjármál. Þær kvörluðu yfir því hve erfitt þeim hafi reynst að fá karlmcnn í „kerfinu" til að skilja það að þær vilja fara hægt af stað við uppbyggingu fyrirtækja sinna. Tillögur starfshópsins Við gerð tillagnanna ákvað starfs- hópurinn að höfð yrði hliðsjón af tölum um atvinnuleysi eftir land- svæðum. Að styrkir rynnu til kvenna á atvinnuleysisskrá að öðru jöfnu. Að styrkir nýttust einkum atvinnulaus- um konum. Og að leitast yrði við að ná varanlegum árangri í baráttunni við atvinnuleysi. Starfshópurinn skilaði svohljóð- andi tillögum til félagsmálaráðherra 11. október: A. Námsaðstoð til atvinnu- lausrakvenna kr. 5.443.000,00 B. Til sveitarfélaga - 20.445.000.00 C. Til einkaaðila - 33.660.000,00 D. Óráðstafað - 452.000,00 Nánar um tillögurnar Námsaðstoö Með styrkjum þessum er atvinnu- lausum konum, einkum þeim sem lítillar eða engrar menntunar hafa notið, gefinn kostur á að sækja nám sem skapar þeim betri stöðu á vinnumarkaði og styrkari grunn til reksturs fyrirtækja. Hér er um að ræða almennt grunnnám og grunn- nám í viðskiptagreinum til styrktar 53 konum í allt að 30 vikur. Félagsmálaráðuneytið mun gera samning við þrjár skólastofnanir sem munu sjá um námið. Styrkir þessir hafa nú verið auglýstir og munu fulltrúar viðkomandi skóla, stéttarfé- laga og félagsmálaráðuneytis velja úr umsóknum. Þetta er athyglisverð nýjung sem ekki hefur verið reynd hér á landi áður svo vitað sé. Það er, að gefa atvinnulausum kost á námi í svo langan tíma, sem sértæka aðgerð til að vinna gegn atvinnuleysi. Til sveitarfélaga Styrkveitingar til sveitarfélaga eru sérstæð nýjung. Að stórum hluta verður farið af stað með svokallaða námsatvinnu eða deildar stöður. Er hér í flestum tilfellum um að ræða aðhlynningarstörf við gæslu og umönnun yngri grunnskólabarna. Fyrirkomulag verður þannig að at- vinnulausar konur verða ráðnar til viðkomandi sveitarfélags, sem sér um verklega og bóklega starfsþjálf- un, umsjón og aðstöðu. Atvinnu- leysistryggingasjóður greiðir sam- svarandi þeim atvinnuleysisbótum sem viðkomandi á rétt á, en 60 millj. kr. framlag greiðir það sem upp á vantar til að lágmarkslaun náist. Deildar stöður. Eitt sveitarfélag, Hveragerði, sótti um styrk til að gera tilraun með svokölluð vinnuskipti, eða deildar stöður. Tilhögun sem þessi þekkist víða erlendis (job rotation eða karusel), en hefur ekki svo vitað sé verið reynd hér á landi. Framkvæmdin mun verða með þeim hætti að konur sem eru í vinnu fara í hlutavinnu á móti námi og rýma þannig til fyrir atvinnulausum kon- um sem fara einnig í hlutavinnu á móti námi og starfsþjálfun. Námið munu konurnar stunda í Fjölbrauta- skóla Suðurlands og auka þannig kunnáttu sína og hæfni. Reykjavrkurborg sótti um styrk til að ráða 50 atvinnulausar konur til aðhlynningarstarfa við grunnskóla Reykjavíkur. Konurnar verða í hálfu starfi og á móti í námi hjá Náms- flokkum Reykjavíkur, sem samsvar- ar hálfu starfi. Konurnar munu stunda nám í grunngreinum og í námsgreinum sem nýtast þeim í starfi, s.s. næringarefnafræði, slysa- hjálp o.fl. Starfshópurinn lítur á tvo fyrri hluta tillagna sinna sem athyglis- verða tilraun. Ef vel tekst til með framkvæmd þessara þátta má ætla að framhald verði á og námsatvinna verði fastur liður í starfi sveitarfélaga til að tryggja sem flestum þegna þeirra vinnu, um leið og starfsfólk byggir upp þekkingu og menntun sem nýtist þeim sem einstaklingum í starfi og skilar atvinnurekendum ánægðara og betur menntuðu starfs- fólki. Til einkaaðila Starfshópurinn kom sér saman um að styrkja einkaaðila með það í huga að styrkirnir rynnu til: • nýsköpunar, stofn- og rekstrar- kostnaðar, • framþróunar, hönnunar og mark- aðssetningar, • aðhlynningarstarfa. Við styrkveitingar var höfð hlið- sjón af atvinnuleysistölum hvers landsvæðis, að styrkir dreifðust hlut- fallslega milli landsvæða og því hve mörg ný störf sköpuðust. Dæmi um styrkveitingar Ef tekin eru dæmi um styrkveitingar má sjá að verkefnin eru margvísleg. Þar má nefna: • saumaskap hvers konar, allt frá undirfötum til tískufatnaðar, ut- anyfirfatnað og skófatnað • skinnavinnslu til framleiðslu á fatnaði, nytjahlutum og minja- gripum úr gæru, hreindýra- og geitaskinni ogfiskroði 292

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.