Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 52

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 52
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST Glöggt má á myndinni sjá óbeina vegglýsinguna og hitalagnir í stálklæðningu. Myndina tók Gunnar Valur Gísiason, núv. sveitarstjóri Bessastaðahrepps, við vigslu íþrótta- hússins. Ofan á límtrésbogana kemur síðan stálklæðning sem myndar innra byrði þaks og veggja, þar ofan á kemur plastdúkur sem er læstur saman á samskeytum, en það kemur í veg fyrir að raki komist í gegn. Þá kemur 20 cm þykk steinullareinangrun, síðan vind- pappi, og er þannig gengið frá sam- skeytum hans að tryggt er að ekkert vatn komist í gegn, og loks stál- klæðning yst. Þessi frágangur hefur reynst mjög vel bæði á Akranesi og í Þorlákshöfn og enginn leki komið fram á húsunum auk þess sem kynd- ingarkostnaður er ótrúlega lágur. Þá er mjög hagkvæmt að þurfa ekki að reisa vinnupalla inni í salnum þar sem innra byrðið er fullfrágengið þegar búið er að festa það á límtrésbogana. Gaflar hússins eru gerðir með sama hætti. Upphitun/loftræsing Að fenginni reynslu frá Akranesi var ákveðið að sleppa hefðbundnu ofnakerfi í íþróttasal og þess í stað voru lagðar hitalagnir í bárumar á þakstálinu. Þrátt fyrir að lagnirnar séu „upp á vegg“ nýtist hitinn mjög vel þar sem hann leitar eftir formi húss- ins. Þá er einangrun það góð að stóran hluta ársins er ekki nauðsynlegt að kynda salinn. Stofnkostnaður lækkaði verulega við þessa einföldu lausn. 1 búningsherbergjahluta eru hitalagnir í gólfum. Reynslan er góð og er kyndikostnaður álíka og í stóru ein- býlishúsi. Lofræsing er með ein- faldasta móti, aðeins er um að ræða einfalt loftræsikerfi vegna búnings- herbergja og baða. Lýsing Til að spara stofn- og reksturs- kostnað vegna lýsingar í íþróttasal var ákveðið að nota svokölluð „bryggjuljós" með spamaðarperum, raflögn er lögð með fram langveggj- um og ljósin, sem eru látin lýsa upp á loftið, eru fest á vegginn í þægilegri hæð og stungið í samband. Mjög auðvelt er að skipta um perur, vegna breiddar salarins reyndist þó nauð- synlegt að setja eina röð (8 kastara) af hefðbundinni íþróttahúsalýsingu og er fyrirhöfn og kostnaður vegna peru- skipta allur annar og meiri! Afgreiösla/anddyri/ búningsherbergi Við hönnun íþróttahússins var lögð áhersla á að tengja það sundlauginni sem best og er komið inn í sameigin- legt anddyri og afgreiðslu, hreinsitæki sundlaugarinnar voru færð í tækja- klefa undir fasta hluta áhorfendapall- anna og einnig var komið fyrir gufu- baðsklefa í nýbyggingunni. Mikil áhersla er lögð á samnýtingu af- greiðslu og búningsherbergja en byggð voru tvö ný búningsherbergi með tilheyrandi böðum. Gólf bún- Útdraganlegir áhorfendapallar. Hægt er að flytja þá hvert sem er ísalnum. Ljósm. U. St. ingsherbergja eru flísalögð og veggir og gólf í böðum og þurrkherbergjum. Gangar eru lagðir línoleumdúk. Ofan á nýju búningsherbergjunum eru svalir, um það bil 190 fermetrar að stærð, sem nýtast vel fyrir þrekþjálf- un, júdó, veitingar o.fl. Samkomuhús Þar sem húsið er langstærsta sam- komuhús Ölfushrepps er það notað til alls kyns samkomuhalds, þar á meðal tónleika af ýmsum toga. Því var leitað eftir áhorfendapöllum sem hægt væri að nota bæði með fram langhlið á íþróttakeppnum og þvers þegar um annars konar samkomur væri að ræða. Keyptir voru útdraganlegir bekkir sem eru 5 einingar með 80 sætum hver. Tveir starfsmenn geta með ein- földum búnaði dregið pallana fram þegar um keppni er að ræða og einnig út á gólfið og raðað þeim þar í margs konar uppstillingar. Þessi aðferð hef- ur reynst mjög vel jafnt við tónleika Sinfóníuhljómsveitar Islands og lítils jasskvintetts, en með staðarvali pall- anna má minnka og stækka salinn eftir því hvaða samkoma á í hlut. Aðalmarkmið byggingamefndar hússins var í upphafi spamaður í byggingu og rekstri. Með góðri sam- vinnu þeirra, hönnuða, verktaka og starfsmanna hefur tekist að byggja íþróttamiðstöð í Þorlákshöfn þar sem þessum markmiðum var náð. 298

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.