Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 60

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 60
FÉLAGSMÁL Á dauðhreinsunardeild Landspítalans þar sem tveimur tötiuðum konum hafa verið sköpuö atvinnutækifæri á almenn- um vinnumarkaði. Ljósm. Guðmundur Karlsson. hamlar samgöngum milli byggðar- laga. 011 þau ákvæði sem hér um getur eru til þess fallin að færa verk- efni frá ríki til sveitarfélaga. Næstu skref En það er margs að gæta við svona tilfærslu á verkefnum. Ef til dæmis á að tryggja rétt fatlaðra barna til náms í heimaskóla þarf að endurskoða fjármögnun sérkennslunnar í al- menna skólanum. Núna eru sér- kennslustundir greiddar samkvæmt kvóta í hverju fræðsluumdæmi, en fötluð börn þurfa mismunandi mikla aðstoð og því er í þessu kerfi hætta á að „dýrustu“ börnin séu send suður, þar sem kostnaðurinn lendir á rík- inu. Það þarf að ganga þannig frá hnútunum á öllum sviðum að kerfið sé hvetjandi, þannig að sveitarfélög- in sjái sér hag í því að halda sem mestu af þjónustunni hjá sér. Treysta þarf lög um félagsþjónustu sveitarfélaganna og með sameiningu að efla sveitarfélögin til að gera þau færari um að taka að sér aukin verk- efni. A næstu árum þarf að vinna markvisst að því að gera almennar stofnanir aðgengilegar, bæði hvað varðar uppbyggingu þeirra og starf- semi, þannig að þær nýtist öllum. Tryggja verður fötluðum rétt sam- Kennslustund í almennum grunnskóla í Reykjavík þar sem fötluðu barni eru búin námsskilyrði við hæfi. Ljósm. Halldóra Sigurgeirsdóttir. kvæmt almennum landslögum á sama hátt og öðrum, t.d. réttinn til menntunar á öllum skólastigum við almenna skólann og til húsnæðis í félagslega húsnæðiskerfinu. Þá verður að tryggja þeim rétt til að skjóta málum sínum til áfrýjunar telji þeir á sér brotið. Lært af öórum Til að glöggva sig á afleiðingum þess að sameina sveitarfélög og flytja til þeirra verkefni getur verið gagnlegt að skoða hvað verið er að gera í nágrannalöndunum. Þar hefur þróunin verið svipuð því sem hér er að gerast. 306

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.