Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Blaðsíða 60
FÉLAGSMÁL
Á dauðhreinsunardeild Landspítalans
þar sem tveimur tötiuðum konum hafa
verið sköpuö atvinnutækifæri á almenn-
um vinnumarkaði. Ljósm. Guðmundur
Karlsson.
hamlar samgöngum milli byggðar-
laga. 011 þau ákvæði sem hér um
getur eru til þess fallin að færa verk-
efni frá ríki til sveitarfélaga.
Næstu skref
En það er margs að gæta við svona
tilfærslu á verkefnum. Ef til dæmis á
að tryggja rétt fatlaðra barna til náms
í heimaskóla þarf að endurskoða
fjármögnun sérkennslunnar í al-
menna skólanum. Núna eru sér-
kennslustundir greiddar samkvæmt
kvóta í hverju fræðsluumdæmi, en
fötluð börn þurfa mismunandi mikla
aðstoð og því er í þessu kerfi hætta á
að „dýrustu“ börnin séu send suður,
þar sem kostnaðurinn lendir á rík-
inu.
Það þarf að ganga þannig frá
hnútunum á öllum sviðum að kerfið
sé hvetjandi, þannig að sveitarfélög-
in sjái sér hag í því að halda sem
mestu af þjónustunni hjá sér.
Treysta þarf lög um félagsþjónustu
sveitarfélaganna og með sameiningu
að efla sveitarfélögin til að gera þau
færari um að taka að sér aukin verk-
efni. A næstu árum þarf að vinna
markvisst að því að gera almennar
stofnanir aðgengilegar, bæði hvað
varðar uppbyggingu þeirra og starf-
semi, þannig að þær nýtist öllum.
Tryggja verður fötluðum rétt sam-
Kennslustund í almennum grunnskóla í
Reykjavík þar sem fötluðu barni eru búin
námsskilyrði við hæfi. Ljósm. Halldóra
Sigurgeirsdóttir.
kvæmt almennum landslögum á
sama hátt og öðrum, t.d. réttinn til
menntunar á öllum skólastigum við
almenna skólann og til húsnæðis í
félagslega húsnæðiskerfinu.
Þá verður að tryggja þeim rétt til
að skjóta málum sínum til áfrýjunar
telji þeir á sér brotið.
Lært af öórum
Til að glöggva sig á afleiðingum
þess að sameina sveitarfélög og
flytja til þeirra verkefni getur verið
gagnlegt að skoða hvað verið er að
gera í nágrannalöndunum.
Þar hefur þróunin verið svipuð því
sem hér er að gerast.
306