Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Síða 16
UMHVERFISMÁL
Jarðgerðarverkefni Sorpu
- endurvinnsla garðaúrgangs
af höfuðborgarsvæðinu -
Björn Gnðbrandur Jónsson umhverjisráðgjaji
Fyrir réttu ári birtist hér í Sveitarstjómarmálum grein
eftir undirritaðan um jarðgerð. Jarðgerð er í stuttu máli
endurvinnsla á hvers kyns úrgangi af líffræðilegum upp-
runa. Afurð þessarar endurvinnslu er næringarríkur jarð-
vegsbætir sem nýtist til hvers kyns ræktunar og upp-
græðslu. Úrgangur af líffræðilegum uppmna er stór hluti
af heildarmagni þess úrgangs sem reglulega fellur til í
samfélaginu, einhvers staðar um og yfir 60%". Pappír
og pappi, timburúrgangur, matarleifar, úrgangur frá mat-
vælavinnslu hvers konar, seyra úr rotþróm, garðaúrgang-
ur, allir eru þessir efnaflokkar af líffræðilegum uppruna
og flestir þ.a.l. hæfir í jarðgerð. Að öðru leyti er vísað í
téða grein um almenn atriði varðandi jarðgerð.
A því ári sem síðan er liðið hafa nokkur jarðgerðar-
verkefni verið gangsett hérlendis. Umfangsmest þeirra er
jarðgerðarverkefni Sorpu bs. þar sem unnið er með
" Þctta hlutfall er byggt á skýrslu umhverfisráðherra frá því í febrúar 1991 (Skýrsla um framtíðarskipan sorphirðu, meðferð úrgangsefna og endurvinnslu) og
verkefninu um Grænar fjölskyldur frá sama ári (sjá Sveitarstjómarmál 1. tbl. 1992). í þessu hlutfalli er gert ráð fyrir úrgangi frá atvinnurekstri. Hins er að geta að
skilgreiningar á úrgangi eru enn á reiki og óljóst hvort t.d. er rciknað með úrgangi frá landbúnaði í skýrslu umhverfisráðherra og Ijóst að ekki er reiknað með
afgangsefnum við byggingarframkvæmdir, uppgröft og efnistöku hvers konar. Af þessu er ljóst að hlutfallstölur geta breyst verulega allt eftir því hvaða skil-
greiningar eru notaðar.
1 0