Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 22
VE RKASKI PTING RÍKIS OG SVEITARFÉ L A G A
2,7%-stig í ársbyrjun 1997 og um 0,05%-stig til viðbótar
í ársbyrjun 1998. Ríkið mun lækka tekjuskatt í ársbyrjun
1997 sem nemur 2,65%-stiga útsvarshækkun.
Á grundvelli þess að einsetningarmarkmiðum laganna
verði náð á árinu 2002 í stað ársins 2000 með tilheyrandi
breytingum á fjölgun vikustunda munu þessar útsvar-
hækkanir duga til að standa undir auknum rekstrarkostn-
aði vegna framkvæmdar laganna þannig breyttra árin
1997 til ársins 2000. Endurmeta þarf stöðuna fyrir árin
2001 og 2002.
Á árunum 1997 til 2001 verður varið frá riki og jöfn-
unarsjóði samtals um 400 millj. kr. á ári til sveitarfélaga
með yfir 2000 íbúa til að greiða allt að 20% stofnkostn-
aðar við grunnskólabyggingar samkvæmt ákveðnum
normum og 135 millj. kr. til viðbótar árið 2002 eða allt
að 2.135 millj. kr. á tímabilinu. Gert er ráð fyrir að regl-
ur um stofnkostnaðarframlög jöfnunarsjóðs til sveitarfé-
laga með færri en 2000 íbúa verði óbreyttar og miði
áfram við um 20-50% kostnaðarþátttöku.
Þessi niðurstaða er ásættanleg fyrir sveitarfélög lands-
ins að mínu mati. Tekjutilflutningur til sveitarfélaganna
er mun meiri en fjölmargir gerðu sér vonir um við upp-
haf þessa rnáls. Með samkomulaginu hefur verið ákveð-
ið að auka fjárframlög til grunnskólans frá því sem verið
hefur.
Síðustu mánuði hefur verið tekist á við flókin út-
færsluverkefni sem samningurinn og allur þessi flutning-
ur verkefna og ábyrgðar felur í sér. Sú vinna hefur m.a.
mætt mikið á Garðari Jónssyni og Sigurjóni Péturssyni í
samvinnu við formann og framkvæmdastjóra sambands-
ins og fleiri ágæta starfsmenn þess. Eins og áður hafa
þessir fulltrúar sveitarfélaganna tekið myndarlega á mál-
inu í sátt við fulltrúa ríkisins sem og foreldra, nemendur
og kennara. Eg er viss um að þessi undirbúningsvinna
og síðar framkvæmd grunnskólalaganna af hálfu sveitar-
félaganna muni sýna öllum að grunnskólinn muni eflast
og dafna undir styrkri stjórn þeirra. Menntamálaráð-
herra, ríkistjóm og Alþingi hafa með þessum samningi
við sveitarfélögin sýnt vilja í verki til að efla gmnnskól-
ann í landinu undir forystu sveitarfélaganna.
nashuatei
★ Mest seldu
Ijósritunarvélar á Islandi!
★ Faxtæki ★ Fjölritar ★ Kjölbinditæki
Verið velkomin í vinningsliðið
Umboó: Hljómver, Akureyri
Póllinn, Isafirði
Geisli, Vestmannaeyjum
84