Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Qupperneq 9

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Qupperneq 9
FRÆÐSLUMÁL fræðsluskrifstofa. Grunnskólalögin hafa engin ákvæði um það efni og menntamálaráðuneytið hefur ekki gefið nein fyrirmæli um það. Ætla sveitarstjórnir sér að fara mismunandi leiðir í þessu efni. Verkefnisstjórn lýkur störfum Hinn 26. apríl 1996, tíu mánuðum eftir að hún var skipuð, kom verkefnisstjómin saman til síns 40. og síð- asta formlega fundar. Var þá endanlega gengið frá bréfi hennar til mín þar sem segir meðal annars: „Undirnefndir hafa skilað skýrslum og tillögum, nauðsynleg lagafrumvörp vegna flutningsins em komin fram, reglugerðir sem snerta flutninginn beint eru ýmist frágengnar eða komnar lil umsagnar, sveitarfélög hafa skipulagt sérfræðiþjónustu við grunnskóla og eru að ráða starfsfólk á skólamálaskrifstofur og ýmsum fram- kvæmdamálum varðandi flutninginn hefur verið komið í ákveðinn farveg. Eitt þeirra verkefna sem verkefnisstjórn var falið var að fjalla um ágreiningsefni sem ekki næðist samkomu- lag um í undirhópum. Verkefnisstjórn telur sig hafa leyst úr öllum slíkum málum á viðunandi hátt.... Ljóst er að enn þarf að fylgja ýmsum málum eftir en verkefnisstjóm telur eðlilegt að það sé gert á þeirn vett- vangi sem eðli máls krefst hverju sinni. Þeir aðilar sem fulltrúa hafa átt í verkefnisstjóminni geta hver um sig átt frumkvæði að frekara samstarfi og myndað nýjan sam- starfsvettvang innbyrðis og við aðra ef þörf krefur. Verkefnisstjórn lítur svo á að undirbúningur að flutn- ingi grunnskólans sé kominn á það stig að ekki verði aftur snúið. Verkefnisstjómin er sammála um að komið sé að þátttaskilum í vinnunni við flutning grunnskólans og telur því rétt að hún láti af störfum." Raunar lá sú niðurstaða, sem lýst er í þessu bréfi, fyrir 10. apríl eða í þann mund, sem kennarar ákváðu að ganga aftur til samstarfs á vettvangi verkefnisstjórnar- innar. Hún kom hins vegar saman að nýju með þátttöku fulltrúa kennara og ritar hann undir þetta bréf ásamt öðr- um. Með bréfi hinn 10. maí 1996 þakka ég verkefnisstjóm prýðileg störf hennar og vitna til orða minna í þingræðu hinn 2. maí, þar sem sagði: „Ég vil leyfa mér að nota þetta tækifæri á Alþingi að þakka þessum mönnum í verkefnisstjóminni fyrir ákaf- lega vel unnin störf og ég tel að án þeirra framlags og án þeirrar miklu vinnu sem unnin hefur verið í verkefnis- stjóminni hefði málið ekki komist á það stig sem það nú er og við stöndum frammi fyrir á Alþingi þegar öll frumvörp liggja fyrir og samkomulag hefur náðst um alla meginþætti málsins og lausn á öllum þeim atriðum sem upp hafa komið á þessu ferli sem við höfum unnið að frá því að frumvarpið var samþykkt í febrúar á sl. ári.“ Gekk það eftir, að Alþingi samþykkti öll lagafrum- vörp. sem lúta að gildistöku gmnnskólalaganna 1. ágúst 1996. Við meðferð málsins á Alþingi var mikils virði, að Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, gjörþekkti það sem fyrrverandi menntamálaráðherra, en hann flutti grunnskólafrumvarpið á Alþingi. Hitt skipti ekki síður máli, að Sigríður Anna Þórðardóttir er formaður mennta- málanefndar Alþingis, en hún var formaður nefndar um mótun menntastefnu, sem lagði til efniviðinn í grunn- skólafrumvarpið í ráðherratíð Ólafs G. Einarssonar. Hlutverk menntamálaráöuneytisins Samkvæmt grunnskólalögunum skal menntamálaráð- herra setja reglugerðir, sem kveða nánar á um útfærslu á ýmsum ákvæðum laganna. I menntamálaráðuneytinu hefur verið unnið að þessu verki. Öll reglugerðardrög voru kynnt verkefnisstjóm, áður en þau voru send til um- sagnar ýmissa hagsmunaaðila. Aður hef ég getið um reglugerðir um sérkennslu og sérfræðiþjónustu. Auk þeirra vil ég nefna eftirfarandi efnisþætti: Upplýsingaskyldu sveitarfélaga, lágmarksað- stöðu og búnað skólahúsnæðis, viðmiðunarstundaskrá, valgreinar, námsgögn, íslenskukennslu nýbúa, nemenda- verndarráð, agamál, skoðun prófúrlausna, framkvæmd samræmdra prófa, námsmat í sérskólum og Þróunarsjóð. Urn alla þessa þætti verða settar reglur eða reglugerðir. Vil ég sérstaklega geta þess varðandi framkvæmd og fyrirkomulag samræmdra prófa, að þörf er á því að auka miðlun upplýsinga um niðurstöður prófanna. Taka flest- ar þessara reglugerða gildi 1. ágúst næstkomandi. Vinna er hafin við endurskoðun aðalnámskrár. Hafa þrír embættismenn ráðuneytisins verið settir í verkefnis- stjórn vegna þess og með þeim starfar verkefnaráðinn starfsmaður. Innan tíðar verður áætlun vegna þess mikla starfs kynnt nánar. Stefni ég að því, að verkinu ljúki á tveimur árum bæði fyrir grunnskóla og framhaldsskóla. Þegar litið er á valdsvið menntamálaráðuneytisins, eft- ir að grunnskólalögin koma að fullu til framkvæmda, er ástæða til að vekja sérstaka athygli á 9. grein laganna, þar sem segir, að menntamálaráðherra fari með yfirstjórn málaflokksins og hafi eftirlit með því, að sveitarfélögin uppfylli þær skyldur, sem kveðið er á um í lögum, reglu- gerðum og aðalnámskrá. Ráðuneytið annast upplýsinga- öflun um skólahald og skólastarf og er ráðherra skylt að gera Alþingi grein fyrir framkvæmd skólastarfs á þriggja ára fresti. Þá hefur menntamálaráðuneytið úrskurðarvald í einstökum málum, sem snerta skólahald og starf í grunnskólum. Megintilgangur upplýsingaöflunar og eftirlits með skólahaldi er að fá fram vitneskju um það, hvort skóla- hald sé í samræmi við menntastefnu stjómvalda. Fylgst verður með því, hvort og hvernig tekst að framfylgja ákvæðum laga og reglugerða. I grunnskólalögunum er mælt fyrir unt nýmæli í eftirliti, öflun og miðlun upplýs- inga um skólastarf. Vinnureglur um þetta efni eru í mót- un. Eftirlitið felst lögum samkvæmt í samræmdum próf-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.