Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Qupperneq 46
UMHVERFISMAL
ferðaþjónustu á hálendi og jaðar-
svæðum Suðurlands.
Framkvœmd verksins 1993-1996
Grunnur var lagður að verkinu
árið 1993. Það ár var byrjað á til-
raunaverkefni í Ölfushreppi og því
fram haldið 1994 auk þess sem
vinna hófst að verkefninu í Mýr-
dalshreppi og Hvolhreppi. Tölu-
verður beinn árangur hefur orðið af
verkefninu Hreint Suðurland, t.d.
var unnin áætlun um þörf á úrbótum
í vatns- og fráveitumálum í Ölfus-
hreppi og í framhaldi af því var sá
verkþáttur, sem snýr að úrbótum
vegna fráveitna á lögbýlum í
hreppnum, boðinn út og þeim lokið
í árslok 1995.
Segja má að tilgangi verkefnisins
í þessum sveitarfélögum hafi verið
náð á tiltölulega skömmum tíma og
þau hröðum skrefum að verða
,,hrein“ sveitarfélög.
Verkinu var fram haldið 1995 og
stefnt er að að liúka því á árinu
1997.
Aðdragandi verksins var að Heil-
brigðiseftirlit Suðurlands kom á
framfæri hugmyndum um nauðsyn
og fyrirkomulag slíkrar könnunar
hjá öllum sveitarfélögum í fjórð-
ungnum. M.a. með kynningu á mál-
inu á aðalfundi Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga er haldinn var
á Kirkjubæjarklaustri í ágúst 1994.
Aðalfundurinn samþykkti eftirfar-
andi ályktun:
Aðalfundur SASS, haldinn á
Kirkjubæjarklaustri 12. og 13.
ágúst 1994, ályktar að fram fari
heildarkönnun varðandi neyslu-
vatnsgœði, fráveitur, sorphirðu og
förgun úrgangs á Suðurlandi. Leit-
að verði eftir samstarfi um verkið
við umhverfisráðuneytið og Sam-
band íslenskra sveitaifélaga.
Ljóst er að mikil nauðsyn er á að
vinna að umræddu verki, m.a.
vegna þróunar í atvinnumálum, t.d.
matvælavinnslu, ferðaþjónustu og
landbúnaði í framtíðinni, gagna-
söfnunar vegna mats á umhverfis-
áhrifum framkvæmda og sem hluti
af gagnagrunni fyrir sveitarfélög en
slíkur gagnagrunnur kæmi að mikl-
um notum í framtíðinni. A Suður-
landi er talin nauðsyn á að vinna
slíkt verk ogfá þar með góða heild-
aryfirsýn yfir þessa þœtti umhverfis-
mála, sem nýta mœtti við þá miklu
vinnu að nauðsynlegum úrbótum,
sem fyrirsjánleg er og vegna þróun-
ar atvinnumála á komandi árum,
sérstaklega vegna þeirrar þróunar
og markaðssetningar sem vœntan-
lega verður í matvœlaframleiðslu,
fiskvinnslu, landbúnaði og ferða-
þjónustu á grunni hreins og ómeng-
aðs umhverfis. Auk framangreindra
þátta hefur verkefnið töluvert al-
mennt fræðslu- og kynningargildi
um umhverfismál. Leitast hefur ver-
ið við að kynna verkefnið í skólum,
á fundum, ráðstefnum og í fjölmiðl-
um auk beinnar kynningar til þeirra
fjölmörgu sem sóttir eru heim vegna
vinnu við verkefnið. Segja má að
verkefnið leiti þar bæði til grasrótar-
innar og til vísindanna og leggi með
því sitt á vogarskálar sjálfbærrar
þróunar.
H-Laun
......... ii
Heildarlausn sem einfaldar
Launabókhald
Og það máttu bóka!
Tölvumiðlun hf, |
TOLVUIÍlrÐLUn ■ Grensásvegi 8, t
■ Sími:68 88 82 ^
1 08