Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 46

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 46
UMHVERFISMAL ferðaþjónustu á hálendi og jaðar- svæðum Suðurlands. Framkvœmd verksins 1993-1996 Grunnur var lagður að verkinu árið 1993. Það ár var byrjað á til- raunaverkefni í Ölfushreppi og því fram haldið 1994 auk þess sem vinna hófst að verkefninu í Mýr- dalshreppi og Hvolhreppi. Tölu- verður beinn árangur hefur orðið af verkefninu Hreint Suðurland, t.d. var unnin áætlun um þörf á úrbótum í vatns- og fráveitumálum í Ölfus- hreppi og í framhaldi af því var sá verkþáttur, sem snýr að úrbótum vegna fráveitna á lögbýlum í hreppnum, boðinn út og þeim lokið í árslok 1995. Segja má að tilgangi verkefnisins í þessum sveitarfélögum hafi verið náð á tiltölulega skömmum tíma og þau hröðum skrefum að verða ,,hrein“ sveitarfélög. Verkinu var fram haldið 1995 og stefnt er að að liúka því á árinu 1997. Aðdragandi verksins var að Heil- brigðiseftirlit Suðurlands kom á framfæri hugmyndum um nauðsyn og fyrirkomulag slíkrar könnunar hjá öllum sveitarfélögum í fjórð- ungnum. M.a. með kynningu á mál- inu á aðalfundi Samtaka sunn- lenskra sveitarfélaga er haldinn var á Kirkjubæjarklaustri í ágúst 1994. Aðalfundurinn samþykkti eftirfar- andi ályktun: Aðalfundur SASS, haldinn á Kirkjubæjarklaustri 12. og 13. ágúst 1994, ályktar að fram fari heildarkönnun varðandi neyslu- vatnsgœði, fráveitur, sorphirðu og förgun úrgangs á Suðurlandi. Leit- að verði eftir samstarfi um verkið við umhverfisráðuneytið og Sam- band íslenskra sveitaifélaga. Ljóst er að mikil nauðsyn er á að vinna að umræddu verki, m.a. vegna þróunar í atvinnumálum, t.d. matvælavinnslu, ferðaþjónustu og landbúnaði í framtíðinni, gagna- söfnunar vegna mats á umhverfis- áhrifum framkvæmda og sem hluti af gagnagrunni fyrir sveitarfélög en slíkur gagnagrunnur kæmi að mikl- um notum í framtíðinni. A Suður- landi er talin nauðsyn á að vinna slíkt verk ogfá þar með góða heild- aryfirsýn yfir þessa þœtti umhverfis- mála, sem nýta mœtti við þá miklu vinnu að nauðsynlegum úrbótum, sem fyrirsjánleg er og vegna þróun- ar atvinnumála á komandi árum, sérstaklega vegna þeirrar þróunar og markaðssetningar sem vœntan- lega verður í matvœlaframleiðslu, fiskvinnslu, landbúnaði og ferða- þjónustu á grunni hreins og ómeng- aðs umhverfis. Auk framangreindra þátta hefur verkefnið töluvert al- mennt fræðslu- og kynningargildi um umhverfismál. Leitast hefur ver- ið við að kynna verkefnið í skólum, á fundum, ráðstefnum og í fjölmiðl- um auk beinnar kynningar til þeirra fjölmörgu sem sóttir eru heim vegna vinnu við verkefnið. Segja má að verkefnið leiti þar bæði til grasrótar- innar og til vísindanna og leggi með því sitt á vogarskálar sjálfbærrar þróunar. H-Laun ......... ii Heildarlausn sem einfaldar Launabókhald Og það máttu bóka! Tölvumiðlun hf, | TOLVUIÍlrÐLUn ■ Grensásvegi 8, t ■ Sími:68 88 82 ^ 1 08

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.