Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 41
UMHVERFISMAL
60 - 60 , ♦ Meöalhiti í virku safnkössunum ■ Útihiti o
40 - < o o h
30 - " O ♦ ♦ O
20 - o
1 10 - ■ ■ .
0 - a
-10 _
< Ágúst '94 Sept. '94 Nóv. '94 Des. '94 Jan. '95 Febr. '95 Mars '95 Maí '95 Júní '95 Júlí '95 Sept. '95
Meðalhiti í safnkössunum á Kjalarnesi yfir tilraunatímabillð (ágúst 1994 til september
1995) auk útihita. Tlmaásinn er ekki linulegur.
Næringarrík afuró
Næringargildi jarðvegsbætisins er
mikið. Sem dæmi má nefna að
köfnunarefnis- og fosfórinnihald
jarðvegsbætisins frá nokkrum þátt-
takendum var að meðaltali svipað
eða örlítið lægra en í ferskum kúa-
skít.
Helstu vandamál sem
kunna aö stinga upp koll-
inum
Þátttakendur voru í viðhorfskönn-
un m.a. spurðir að helstu vandamál-
um sem upp hefðu komið. Flestir
nefndu flugur og lirfur í eða við
safnkassann og vonda lykt úr hon-
um en sögðu jafnframt að þetta
hefði ekki valdið teljandi óþægind-
um. Fljótlega lærist hvernig best er
að spoma við slíku.
Lítil eöa engin aukavinna
en nýr lífsstíll
I ljós kom að mannlegi þátturinn
er einna viðkvæmastur varðandi
góðan árangur við heimajarðgerð.
Það er mikilvægt að kveikja áhuga
hjá fólki og viðhalda honum. Þetta
kemur ekki á óvart því heimajarð-
gerð er nýtt fyrirbrigði í lífsstíl
fólks. Aðalatriðið er að breyta þarf
venjum fólks. Ekki er endilega verið
að krefjast aukins vinnuálags, held-
ur frekar þess að fólk temji sér nýjar
venjur og nýjan hugsunarhátt. Slíkt
krefst ætíð ákveðinnar virkjunar-
orku. I viðhorfskönnuninni sem
þátttakendur svöruðu kom í ljós að
þeim þótti almennt auðvelt að læra
og muna eftir því að flokka úrgang-
inn. Auk þess nefndu flestir að
heimajarðgerð yki sama sem ekkert
vinnuálagið á heimilunum.
Hvatning og upplýsingar
eru mikilvægar
Hlutverk sveitarfélaga er mjög
mikilvægt við að virkja íbúana til
þátttöku í heimajarðgerð og við-
halda áhuganum. Sveitarfélög geta
stuðlað að almennri heimajarðgerð
bæði með hagrænum stjórntækjum
og með kynningu og fræðslu.
Hagræn stjórntæki
Með hagrænum stjórntækjuni er
átt við að fólk sjái sér fjárhagslegan
hag í því að jarðgera. Akveðinn
hluti íbúa sveitarfélags tekur þátt í
heimajarðgerð vegna umhverfisvit-
undar. Annan hluta er hins vegar
aðeins hægt að virkja til þátttöku
með því að sýna fram á efnahags-
legan ávinning af þátttökunni. Sem
dæmi má nefna að svör í við-
horfskönnuninni sýndu að þátttak-
endur hefðu ekki byrjað að jarðgera
hefðu þeir sjálfir þurft að borga fyrir
safnílátin. Hins vegar ætluðu flestir
þeirra að halda jarðgerðinni áfram
þegar tilrauninni lauk, þ.e. þegar
búið var að styðja þá í gegnum upp-
hafstímabilið.
Fræösla og aftur fræösla
Upplýsingar, fræðsla og gott
skipulag skipta ekki síður máli ef vel
á að takast til með heimajarðgerð í
sveitarfélaginu. Persónuleg fræðsla í
garðinum strax í upphafi jarðgerðar
og möguleiki á að leita sér aðstoðar
ef vandamál skjóta upp kollinum eru
gífurlega mikilvæg atriði.
Útgáfa fræöslubæklinga á
vegum umhverfisráöu-
neytisins
I framhaldi af þessu verkefni
kemur út á vegum umhverfisráðu-
neytisins leiðbeiningarbæklingur
fyrir þá sem skipuleggja heimajarð-
gerð í sveitarfélögum auk notenda-
leiðbeininga fyrir þá sem vilja jarð-
gera lífrænan heimilisúrgang í
varmaeinangruðum ílátum.
Lokaorö
A Islandi er fyrri reynsla af
heimajarðgerð af þessu tagi lítil.
Verkefnið hefur skilið eftir dýrmæta
reynslu auk þess að auka mjög um-
ræðuna um möguleika þess að nota
aðferðina til endurvinnslu lífræns
heimilisúrgangs.
Hlutverk sveitarfélagsins til að
stuðla að góðum árangri og mikilli
þátttöku í heimajarðgerð felst í
fyrsta Iagi í að sjá til þess að íbúar
hafi aðgang að réttum tækjabúnaði
og að tryggja þeim aðgang að stoð-
efni. I öðru lagi verður sveitarfélag-
ið að tryggja að íbúar læri að jarð-
gera. Ef almenn þátttaka á að nást í
heimajarðgerðinni er einnig nauð-
synlegt að beita hagrænum stjórn-
tækjum, til dæmis með því að veita
afslátt af sorphirðugjöldum og/eða
gefa safnílátin. A Iðntæknistofnun
er hægt að kaupa eintak af loka-
skýrslu um ofangreint verkefni.
1 03