Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 16
LAUNAMAL
Breyting á samþykktum
Launanefndar sveitarfélaga
A fundi fulltrúaráðsins var á dagskrá tillaga um breyt-
ingar á samþykktum launanefndar sveitarfélaga. Björn
Jósef Amviðarson, þáv. bæjarfulltrúi á Akureyri og for-
maður launanefndarinnar, fylgdi tillögunni úr hlaði.
Eftir að allsherjamefnd fundarins hafði fjallað um til-
lögurnar og mælt með þeim voru þær samþykktar á
fundinum.
Nefndin gerði það einnig að tillögu sinni að bundið
yrði að formennska í samninganefnd við grunnskóla-
kennara verði í höndum Reykjavíkur. Var það sam-
þykkt.
I lok fulltrúaráðsfundarins voru kosnir í launanefnd
sveitarfélaga sem aðalmenn þeir Bjöm Jósef Arnviðar-
son, bæjarfulltrúi á Akureyri, Karl Björnsson, bæjar-
stjóri á Selfossi, Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, Björn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
fræðslu- og menningarsviðs Kópavogsbæjar, Asta Sig-
fúsdóttir, bæjarfulltrúi í Egilsstaðabæ, Jóhanna Reynis-
dóttir, sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhrepps, og Olafur
Hilmar Sverrisson, bæjarstjóri í Stykkishólmsbæ.
Þeim til viðbótar kæmu tveir fulltrúar tilnefndir af
Reykjavíkurborg.
A fundi borgarráðs hinn 2. júlí voru þeir Jón G. Krist-
jánsson, starfsmannastjóri borgarinnar, og Olafur Darri
Andrason, forstöðumaður rekstrarsviðs Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur, tilnefndir af hálfu borgarinnar í
launanefndina.
Sem varamenn hlutu kosningu Karl Jörundsson,
starfsmannastjóri Akureyrarkaupstaðar, Þórir Sveinsson,
fjármálastjóri Isafjarðarbæjar, og Gunnar Rafn Sigur-
bjömsson, starfsmannastjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Þeim til viðbótar komi tveir fulltrúar tilnefndir af
Reykjavíkurborg.
Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæð-
um gegn atkvæði Péturs Jónssonar, borgarfulltrúa í
Reykjavíkurborg, sem gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Taldi hann hlut borgarinnar fyrir borð borinn við
ákvörðun á fjölda stjórnarmanna.
Eftir viðræður sem fram hafa farið milli fulltrúa
stjórnar sambandsins og Reykjavíkurborgar samþykkti
stjórn sambandsins svofellda bókun á fundi sínum ný-
lega:
„í framhaldi af viðræðum fulltrúa sambandsins og
fulltrúa Reykjavíkurborgar um skipan Launanefndar
sveitarfélaga samþykkir stjómin að leggja til við næsta
landsþing sambandsins að gerð verði breyting á sam-
þykktum fyrir Launanefnd sveitarfélaga varðandi skipun
nefndarinnar, þannig að Reykjavíkurborg tilnefni þrjá
fulltrúa í nefndina.“
Eftir að Björn Jósef Amviðarson var skipaður sýslu-
maður Eyjafjarðarsýslu og hafði látið af starfi sem bæj-
arfulltrúi á Akureyri sagði hann af sér í launanefndinni.
Varaformaður nefndarinnar, Karl Bjömsson, tók þá við
formennsku í nefndinni og er formaður uns hin nýkjöma
nefnd, sem kosin var á fulltrúaráðsfundinum, kemur
saman og kýs sér fomiann.
Kjörtímabil launanefndarinnar sem kosin var á fundi
fulltrúaráðsins hefst 1. ágúst, um leið og samkomulagið
um yfírfærslu alls grunnskólakostnaðarins öðlast gildi.
F U LLTR ÚARÁÐS F U N D I R
Breytingar á fulltmaráði sambandsins
Á 52. fundi fulltrúaráðsins í Borgarnesi urðu tvær
breytingar á fulltrúaráði sambandsins.
Þórir Jónsson, hreppsnefndarmaður í Reykholtsdals-
hreppi, var kosinn aðalmaður í fulltrúaráðið fyrir Vestur-
land í stað séra Jóns E. Einarssonar, oddvita Hvalfjarðar-
strandarhrepps, sem lést hinn 14. september. Varamaður
hans var kosinn Páll Ingólfsson, varabæjarfulltrúi í Snæ-
fellsbæ.
Þá var Ingibjörg Hafstað, oddviti Staðarhrepps í
Skagafirði, kosin aðalmaður fyrir Norðurlandi vestra í
staðinn fyrir Jón Guðmundsson, fv. sveitarstjóra í Hofs-
hreppi, sem lét af starfi fyrir hreppinn á sl. ári. Sem vara-
maður hennar var kosinn Árni Bjamason, hreppsnefnd-
armaður í Akrahreppi í Skagafirði.
FRÁ STJÓRN SAMBANDSINS
Sveitarstjórnarlög í endurskoðun
Stjórn sambandsins hefur tilnefnt Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson, formann sambandsins, og Ingimund Sigur-
pálsson, bæjarstjóra í Garðabæ, í nefnd sem félagsmála-
ráðherra hefur skipað til þess að endurskoða sveitar-
stjórnarlögin nr. 8/1986.
Af hálfu félagsmálaráðuneytisins skipa nefndina Hún-
bogi Þorsteinsson skrifstofustjóri og Sesselja Ámadóttir,
deildarstjóri í ráðuneytinu, svo og Jón Kristjánsson al-
þingismaður, sem er formaður nefndarinnar.
Nefndinni er falið að ljúka störfum fyrir 15. janúar
1997.
Fjárniálaráðstefnan 20. og 21. nóv.
Hin árlega fjármálaráðstefna sambandsins verður í ár
haldin á Hótel Sögu miðvikudaginn 20. og fimmtudag-
inn 21. nóvember.